Vísir - 27.05.1961, Blaðsíða 3

Vísir - 27.05.1961, Blaðsíða 3
’ Laugardaginn 27. maí 1961 J Myndirnar eru úr ágætri og fróðlegri bók um þessa atburði. Hún nefnist: Að sigra eða deyja. Sjóorrustan mikla á Atlants- hafi. Bismarck—Hood. Höfundur: Will Berthold. Þýðandi: Stefán Jónsson, fréttamaður. Bókin kom út 1959. Tuttugu ár síöan Bismarck var sökkt Það hafði 3 dögum áður sökkt brezka orrustuskipinu Hood. í FYRRADAG voru 20 ár liðin frá því brezka orrustuskipinu H.M.S. Hood var sökkt á haf inu milli íslands og Grænlands í viðureign við þýzka flota- deild, en aðalskipið í flotadeild inni var hið nýja orrustuskip Þýzkalands, Bismark, þeirra mesta orrustuskip, og lang full komnasta, 35.000 smálestir að stærð. Þetta gerðist laugardaginn 24 maí. f einkaskeyti til Vísis mánudaginn var sagt frá þess- um sögulega atburði á þessa leið: „Hood varð fyrir skoti á ó- heppilegasta stað; það er beint í hergagnabúr skipsins, og sprakk skipið í loft upp, en ótt ast er að mestur hluti skips- hafnar, 1340 manna, hafi far- izt“. Hood var mesta orrustuskip í heimi, 42.000 smálestir. Kjöl- urinn var lagður á tíma fyrri heimsstyrjaldar og það var full smíðað 1920 og var tvívegis endurbætt og kostaði skipið alls 6 milljónir sterlingspunda. Það hafði m.a. 8 fallbyssur með 15 þml. hlaupvídd og af stærstu fallbyssunum var hægt að skjóta fallbyssukúlum, sem vógu 2000 pund, 17 mílur veg- ar Orrustuskipið var búið mörgum fallbyssum öðrum og tundurskeytapúðum, hafði flug vél á þilfari o.s.frv. Bismarck hafði 36 fallbyss- ur og var talið, að það hefði verið tekið í notkun haustið áður. Hvíldi mikil leynd yfir öllu varðandi skipið, en þó var kunnugt, að Þjóðverjar töldu, að í skipinu væru svo mörg vatnsþétt hólf, að ekki mundi gerlegt að sökkva því. Þegar Hood hafði verið sökkt hófst eltingaleikurinn mikli, sem Bismarck var sökkt í. Sjálfur Winston Churc hill tilkynnti laust fyrir kl. 11 þriðjudaginn 27. maí, að brezk herskip hefðu sökkt því. Ríkti mikill fögnuður yfir því í Bretlandi, því að þar „gerðu allir sér ljóst hver álits hnekkir Bretum mundi verða að því, ef Bismark' slyppi, enda þótt menn á hinn bóginn viti vel, að alltaf má búast við mót-læti slíku sem því, að missa stór og voldug herskip.“ Beðið var með óþreyju frek- ari fregna. Vitað var, að elt- ingaleikurinn hófst þegar eftir að Hood var sökkt. í fréttum Vísis 27. maí var m. a. sagt: „Líklegt er talið, að Bis- marck hafi látið úr norskri höfn s.l. fimmtudag — en ekki vitað í hvaða augnamiði sér- staklega, en það liggur í aug- um uppi, að Þjóðverjar senda slíkt skip aðeins til þess að inna mikilvægt hlutverk af hendi. Getgátur hafa komið fram, að skipið hafi ætlað milli fslands og Grænlands, hafi sett fallhlífarhermenn á land í Grænlandi og þar næst ætlað að herja á skipalestir." Úr brezkum könnunarflug- vélum hafði Bismarck sem sagt sézt í Björgvinjar-höfn miðvikudag, en — var horfið þaðan á fimmtudagsmorgun. Á föstudagskvöld sást til Bis- marcks á N.Atlantshafi og var þá brezk flotadeild og í henni orrustuskipin Hood og Prince of Wales komin á vettvang og flugvélaskipið Ark Royal, en flugvélar af „Örkinni" höfðu fundið skipið og misstu ekki af því eftir það og hæfðu það tundurskeytum, og dró við það úr ferð þess. Á mánudags- kvöld „komst orrustuskipið Prince of Wales í færi við það og önnur skip. Var þá ekki sjá- anlegt, að önnur skip væru í fylgd með Bismarck. Hófu skipin skothríð á það og sigldi skipið í hringi að því er virtist að nokkru leyti stjórnlaust. — Var skipinu siðan sökkt.“ Fleiri herskip og flugvélar komu við sögu ep hér hefur verið talið. Kl. 1 á þriðjudag barst frétt um, að Þjóðverjar hefðu við- urkennt, að skipinu hefði ver: ið sökkt, 400 sjómílur vestur af Brest. Eins og aijgljóst má vera, þar sem leynd mikil hvíldi yfir Bismarck, átti margt eftir að koma í Ijós síðar varðandi þessa atburði, sem ekki var um kunnugt, þegar fyrstu fréttir um afdrif •Hoods. og Bismarcks voru að berast Vísi og öðrum blöðum. í síðari fréttum kom fram, að af áhöfn Hoods kom- ust aðeins þrír lífs af, en af Bismarck 116, en um 4000 menn af skipshöfnum beggja létu lífið í þessum ægilega hildarleik. í frétt frá Hamborg fyrir nokkru var sagt, að vestur- þýzka flotastjórnin hefði skipað svo fyrir, að frei- gáturnar Hippe og Graf Spee, á heimleið frá Banda- ríkjunum, myndu leggja krók á leið sína, til þcss að vera í dag á þcim stað á hafinu, er Bismarck sökk, og varpa þar sveigum á haf- ið til minningar um hið mikla skip og þá, sem fórust með því. Þessi mynd birtist í B.T. á þriðjudaginn. Textinn var á þessa leið: Sigríður Geirsdóttir, ungfrú íslands á síðasta ári, sem þrátt fyrir 10 þúsund króna kjólainnkaup í Kaup- mannahöfn fyrir alheimsfegurðarkeppni í Kaliforniu tókst ekki að ná topp-sæti, er orðin sjónvarps-stjarna í Banda- ríkjunum. Sagt er að hún syngi jafn vel og hún lítur út. Magnús Guðmundsson ber fv. starfsbróður sökum. Nefnir dæmi um ölvun við störf. 1 Hood skotinn í tætlur. Vísir hefir borizt bréf frá Magnúsi Guðmundssyni, fyrr- verandi lögregluþjóni, þar sem hann segist vilja sanna sakleysi sitt af ákærunni um rangar sakargiftir, fyrir dómstóli þjóð- ar , eins og hann orðar það. I þessu bréfi segir hann m. a. frá einu dæmi um, að lögreglu- þjónn hafi verið drukkinn að starfi. Fer bezt á því, ao Magnús segi frá þessu með eigin orðum og fer frásögn hans'hér á eftir: Árla morguns, eða nánar til- tekið kl. 6—7 hinn 1. janúar árið 1959, var lögreglan kvödd að húsi einu í Hlíðahverfinu, hér í bæ, vegna kæru, kera bor- izt hafði þaðan. Þangað var sendur Einar Ólafsson, lög- regluþjónn, nú guðfræðinemi, ásamt öðrum, og kom það í hlut Einars að gefa skýslu um mál- ið. Á ákvörðunarstað hittu hin- ir sendu lögreglumenn fyrir stéttarbróður sinn, Þorstein J. Jónsson, klæddan einkennis- búningi lögreglumanna og var hann áberandi ölvaður. Segir ekki söguna rneir að sinni, en Þorsteinn vað eftir á staðnum, en hinir fóru aftur til að gegna skýidum sínum. Kvaðst Þorsteinn vera staddur Frh. á 11, s.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.