Vísir


Vísir - 10.06.1961, Qupperneq 8

Vísir - 10.06.1961, Qupperneq 8
8 VÍSIR Laugardaginn 10. júní 1961 ÚTGEFANDI: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiSsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 30,00 ó mónuSi. — í lausasölu krónur 3,00 eintakiS. — Síml 11660 (5 linur). — Félags- prentsmiSjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f. Kattarþvottur og yfirklór. Sjaldan hafa menn hér á landi séð annan eins kattarþvott og þann, sem fólginn er í yfirlýsingu vinnu- málasambands samvinnumanna, sem gefin var út í byrjun vikunnar vegna samninga þeirra, sem þá höfðu veriS gerðir við vetkfallsmenn fyrir norðan. I plaggi þessu er mikið um það talað, að samvinnu- menn hafi forðast langa vinnustöðvun, því að hún hafi svo mikið tjón í för með sér. Sú hafi verið ástæðan fyrir því, að gengið var til samninganna, og alls engin önnur. Samvinnumenn hafi viljað firra þjóðina miklu tjóni með því að gera þessa samninga — og vitanlega einnig þá, sem síðan hafa verið gerðir. Það er sannarlega fallegt að vilja firra þjóðina tjóni og vafalaust kemur engum til hugar að væna þessa samvinnuöðlinga um aðrar hvatir í þessum efnum! ! En með athæfi sínu eru þeir bara að kalla yfir þjóðina annað tjón og enn meira. ESa eru samvinnumenn svo vitgrannir, að þeir haldi, að þeir geti forðazt eða sloppið við þær afleiðingar, sem verri eru. Þeir eru að koma nýrri verðbólguholskeflu af stað. Foringjar Fram- sóknarflokksins vænta þess að sjálfsögðu, að þessi alda fleyti þeim í ráðherrastólana, en líkurnar eru ekki minni fyrir því, að hún verði þeim til meiri skaða en nokkrum öðrum. Fyrsti árangurinn. Það má segja, að fyrsti árangurinn af kauphækk- unarsókn Framsóknarmanna og kommúnista sé þegar kominn í ljós. Rætt hefir verið um þessi mál á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur, og þar hefir Geir Hall- grímsson borgarstjóri skýrt frá því, hvernig þessi mál horfi yið frá sjónarmiði bæjarins. Þegar kaup hækkar um tíu af hundraði, kostar það útgjaldaaukningu hjá bænum, sem nemur næstum 13 milljónum króna. Það fé verður bærinn að taka af borgurunum — hann verður að hækka útsvörin, því að aðra tekjustofna hefir hann ekki. Utsvörin verða að hækka um næstum níu af hundraði — og verður þá þegar farið að narta nokkuð í þær krónur, sem verka- menn fá til viðbótar í launaumslagið sitt. Og fleiri munu á eftir koma — eða ætli bóndinn þurfi ekki hærra kaup með því að hækka verð á af- urðunum. Er það þetta, sem þeir vilja? Sé það þetta, sem vakir fyrir foringjum Framsókn- arflokksins og kommúnista, þá virðast nú allar horfur á, að þeir fái þessa ósk sína uppfyllta. Áður en varir verður Hrunadansinn hafinn fyrir alvöru. Kannske Hermann Jónasson bjóði þá upp á lausn á öllum vand- anum — útláta- og sársaukalaust fyrir alþýðu manna eins og hann bauð 1956. 8u5ur-Vietnam er engin Ifigleg stjórnarandstak Fréttaritarinn John Stir- ling segir í fréttapistli frá Saigon — höfuðborg Suður- Vietnam — að skilyrði séu miður góð þar til þróunar stjórnarandstöðu, en þó hafi nú verið stofnað til hennar, og standi að henni fjórir menn, sem buðu sig fram í seinustu forsetakosningum sem forseta- og varaforseta- efni. Aðalmennirnir eru dr. Ho Nhat og Nguyen Dinhb Quat, sem ásamt varamönn- um sínum fengu 800.000 at- kvæði, en Ngo Dinh Diem forseti og varamaður hans, hlutu 5 milljónir atkvæða. Stjórnarandstæðingar nefna samtök sín „Lýðræðis- leg samtök stjórnarandstæð- inga“ og skulbinda þeir sig til að berjast gegn einræði og kommúnisma, heyja bar- áttu fyrir frelsi einstaklings- ins í lýðveldinu, og að hafa að marki einingu og viðreisn á lýðræðislegum grundvelli. Þessi samfylking hefir farið fram á, að hún verði skráestt sem viðurkennd og lögleg stjórnarandstaða, en hefir ekki enn fengið neitt svar frá stjórninni, enda mun Diem forseti líta á lög- lega stjórnarandstöðu „sem munað, er landið hafi ekki efni á að veita sér, meðan enn er um hættur að ræða frá þúsundum kommúnist- iskra hryðjuverkamanna í landinu“. Stirling minnir á, að fyrir ,einu ári hafi 18 kunnir borgarar myndað nefnd til baráttu fyrir frelsi og fram- förum og hafi hún máuðum saman lagt að stjórninni að stofna til róttækra breytinga á framkvæmdastjórninni. Nú heyrist ekkert frá nefnd- inni, hún hafi gliðnað sund- ur eftir hina missheppnuðu byltingartilraun í nóvember 1960, er fallhlífahermenn reyndu að ná á sitt vald forsetahöllinni. Diem þráað- ist við að gefast upp, þar til hjálp barst. Þegar fallhlífaliðið lagði á flótta lét Diem ganga milli bols og höfuðs á andstæð- ingum sínum. Leiðtogar Frelsis og framfaranefndar- innar voru handteknir, þrátt fyrir það, að þeir sóru og sárt við lögðu, að þeir hefðu engin afskipti haft af bylt- ingaráforminu. Um sama leyti var vel kunnur and- stæðingur stjórnarinnar tek- -inn fastur, dr. Phan Quang Dan. Hann og fyrrnefndir frels- isfrömuðir eru enn í haldi og munu innan tíðar verða leiddir fyrir hernaðarlegan dómstól. Öðrum forsprökkum með- ar stjórnarandstæðinga, sem handteknir voru, hefir verið sleppt úr haldi, en þeir hafa hætt öllum árásum á stjórn- ina. Segja má, að fylking stjórnarandstæðinga, sem ekki eru kommúnistar, hafi gersamlega riðlast eftir bylt- ingartilraunna í nóvember. Stirling segir, að leiðtogar hinna nýju hreyfingar séu greinilega hugrakkir menn, að stofna til stjórnarand- stöðu nú, eftir allt, sem á undan er gengið, en höfuð- leiðtogunum tveimur sé að sjálfsögðu mikill styrkur í því, að síðan í kosningun- um eru þeir kunnir meðal þjóðarinnar. Myndir voru birtar af þeim í kosninga- baráttunni, ræðum þeirra útvarpað og blöð birtu ræð- ur þeirra í heild eða sögðu frá efni þeirra í meginat- riðum, og slík tækifæri hafa stjórnarandstæðingar í Frh. á 11. s. Þrír piltar tekntr fyrir spellvirki. í vikunni sem leiS voru þrít unglingspiltar á aldrinum 15 —17 ára, teknir fastir á Akur- eyri fyrir skemmdarverk. Spjöll þessi höfðu piltarnir fyrst og fremst unnið á neta- gerðarstöðinni Odda og brotið fjölmargar rúður í húsinu. Enn fremur höfðu þeir brotið upp læstan bíl sem stóð fyrir utan húsið og reynt að koma honum í gang, en án árangurs. Að því búnu héldu þremenn- ingarnir að Slippstöðinni. Þar stóð bifreið fyrir utan og var strax ráðist á hana og reynt að koma henni í gang. En það bar heldur ekki árangur. Lokatil- raunina gerðu þeir með því að ýta bílnum langan spöl, en allt kom fyrir ekki. Bíllinn þver- skallaðist. Grunur féll strar á þrjá pilta, sem vitað var að höfðu verið að skemmta sér umrædda nótt. Tók lögreglan þá fasta og hafa þeir nú játað á sig verknaðinn. MAV plIMAC.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.