Vísir - 10.06.1961, Page 10
)
VÍSIR Laugardaginn 10. júní 1961
96 brautskráðir.
Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar var slitið 31. maí.
Skólastjóri, Sveinbjörn Sig-
urjónsson skýrði frá skóla-
starfinu og lýsti úrslitum
prófa.
Innritaðir nemendur voru
alls 672, fastir kennarar auk
skólastjóra 27 og 7 stunda-
kexmarar.
Úr 4. bekk brautskráðust
96 gagnfræðingar, 84 úr
bóknámsdeild, en 12 úr hús-
stjómardeild. Auk þess Iuku
3 utanskólanemendur gagn-
fræðaprófi.
Hæsta einkunn á gagn-
fræðaprófi hlutu þær Guðrún
Gunnarsdóttir, 8,31 og Hrönn
Þórðardóttir, 8,28.
1 landsprófsdeild 3. bekkj-
ar þreyttu 58 nemendur próf,
en úrslit þess eru enn ókunn,
þar sem landsprófi er nýlok-
ið.
löðrum 3. bekkjar deild-
um gengu alls 157 nemendur
undir próf, þar af 20 stúlk-
ur í hússtjómardeild, en auk
þess 1 nemandi utan skóla.
Af þeim luku 127 prófi og
stóðust.
Hæsta einkunn í bóknáms-
deildum 3. bekkjar hlaut Æg-
ir B. Sigurgeirsson, 8,25, en
í hússtjórnardeild Guðrún E.
Kjartansdóttir, 8.50.
Unglingapróf þreyttu 153
nemendur, 138 luku prófi og
stóðust.
Hæsta einkunn hlutu þau
Ásmundur Jakobsson, 9.31,
og Kristín Lárasdóttir, 9.06,
hvort tveggja 1. ágætiseink.
Úr 1. bekk luku 175 nem-
endur prófi. Tveir þeirra
hlutu 1. ágætiseinkunn, þeir
Karl Tryggvason, 9,23 og
Þórarinn Hjaltason, 9,13.
Tíu nemendur, sem mest
skömðu fram úr í sínum bekk
eða aldursflokki fengu verð-
launabækur frá skólanum
fyrir góðan námsárangur.
Þá ávarpaði skólastjóri
hina ungu gagnfræðinga
nokkrum ámaðar- og hvatn-
ingarorðum, þakkaði kenn-
urum og öðrum starfsmönn-
um skólans farsæl störf og
góða samvinnu og sagði að
því búnu 33. starfsári skól-
ans lokið.
UR YMSUM ATTUM
• Það kostar sem svarar 60.000
ísl. krónum að láta smíða handa
sér gondól í Feneyjum.
A
• Rússlandi hefur verið skipt í
17 efnahagsumdæmi til að draga
úr allskonar kostnaði við stjórn
landsins.
A
• Bretar hafa gefizt upp við að
klífa Makalutind í Himalaj^, en
hann er 27.79fyjefoý. ^
A
• Stjórn S-Kóreu hefur látið
handtaka tugi embættismanna og
kaupsýslumanna, sem auðgazt
hafa með ólöglijgu móti undan-
farin ár.
A
• Bandaríkjastjórn hefur til-
kynnt, að frá 1. júlí muni , hún
lækka verð á uranium til útflutn-
ings.
A
• Dionne-systurnar urðu 27 ára
þann 28. maí. — Nú eru fjórar
á lífi af fimm.
A
• Sosvétríkin hafa gefið út fri-
merki með mynd af Lumumba,
forsætisráðherra í Kongó, sem
myrtur var á dögunum.
A
• Nýlega andaðist kvikmynda-
stjaman Joan Davis í Hollywood.
Hún lét eftir sig milljón dollara.
A
Fáir eiturlyfjaneyt-
endur i Bretlandi.
LONDON (UPI). — Bretar
þurfa ekki að hafa verulegar
áhyggjur af eiturlyf janautn,
að því er segir í opinberri
skýrslu.
í Bretlandi eru fáir eitur-
lyfjaneytendur, segir í
skýrslu þessari, og engin á-
stæða til að óttast, að þeim
muni fjölga skyndilega. Þar
í landi álíta menn eiturneyzl-
una líka frekar geðveilu en
glæp. Nefndin lagðist gegn
skráningu eiturneytenda og
þvingunarlækningu.
Raforka
ur kjarnorku.
LONDON (UPI). — Verk-
fræðingar vinna kappsam-
lega við að finna aðferð til
að framleiða ódýrari raforku
úr kjarnorku.
Ætlunin er að veita gufu-
orku úr kjamaofni til að
mynda rafmagn „milliliða-
laust“, þar er að segja án
vélahluta, sem snúast eins og
í gufuhverflum. Ef engir
hlutir, sem snúast, eru í raf-
al, nýtist orkan miklu betur
og einnig er hægt að fram-
leiða rafmagnið við meiri hita
en ella.
Sjálfsmorð barna.
CHICAGO (UPI). — Sjálfs-
morð bama eru algengari en
almenningur gerir sér yfir-
leitt grein fyrir.
Þetta eru niðurstöður rann-
sókna vestan hafs, og var frá
þeim skýrt á þingi sálsýkis-
lækna þar í landi. Það er
einkum reiði og særð réttlæt-
iskennd, sem leiðir til þess,
að böm reyna að fyrirfara
sér.
Hjarðmenn
gerast bændur.
HAIFA (UPI). — Israels-
stjóm vill fyrir alla muni, að
hjarðmeim í landinu hætti
flakki sínu og gerist bændur.
Um 22.000 manns af Bedú-
ínaættum lifa flökkulífi á
Negev-auðn og hirða þar um
skepnur sínar, einkum úlf-
alda. Stjómin vill nú, að þeir
gerist bændur og býður
þeim jarðnæði eða vist á
samyrkjubúum.
20. hvert barn óskil-
getið vestan hafs.
Tuttugasta hvert bam í
Bandaríkjunum er óskilgetið,
segir heilbrigðismálaráðu-
neytið í Washmgton.
Öskilgetin böm em flest í
Suðurríkjunum — meðal
svertingjanna — en fæst eru
þau í fylkjunum í KlettafjðR-
um. Um 208,700 óskilgetin
böm fæddust í Bandaríkjun-
um 1958, en nýrri tölur em
ekki fyrir hendi.
Vorleiðangur Ægis
Hhm árlegi vorleiðangur Æg-
is hófst hinn 6. júní. Tilgang-
ur leiðangursins er að gera
athuganir á sjávarhita og
seltu, plöntu- og dýrasvifi og
síldarmagni á hafsvæðunum
fyrir vestan, norðan og aust-
an fsland.
Rannsóknir þessar em
þáttur í sameiginlegum rann-
sóknum Norðmanna, Rússa
og íslendinga, sem fram-
kvæmdar em með sérstöku
tilliti til ætisgangna síldar-
innar á fyrrnefndum haf-
svæðum. Fiskideild Atvinnu-
deildar Háskóláns sér um
framkvæmd íslenzka leiðang-
ursins, sem farinn er á veg-
um Sjávarútvegsmálaráðu-
neytisins. Leiðangursstjóri
er Jakob Jakobsson fiski-
fræðingur, en auk hans
starfa 4 starfsmenn fiski-
deildar að rannsóknunum.
Skipstjóri á Ægi er Harald-
ur Bjömsson.
(Frá Fiskideild).
Bezt
og
ódýrast
að
auglýsa
■
VÍSI
Skrifstofustúlka
Óskum eftir að ráða stúlku til starfa við far-
þegabókanir o. fl. í afgreiðslu vorri, Lækjargötu
4. Hér er um framtíðarstarf að ræða.
Skriflegar umsóknir, er greini aldur, mennt-
un og fyrri störf, skulu sendar afgreiðslu vorri,
Lækjargötu 4, eigi síðar en 14. þ. m.
Trjáplöntur
KJARAKAUP
Birki frá kr. 3, greni frá kr. 3, ösp frá kr. 5,
víðir í skjólbelti frá kr. 2. Urval annarra trjá-
tegunda.
Stjúpur og bellis frá kr. 2, sumarblóm frá kr.
1,50. Af^láttur ef keypt er í heilum kössum.
GRÓÐRARSTÖÐIN VIÐ MIKLATORG
Símar 22282 — 19775
K.S.Í.
Í.S.Í.
Í.B.B.
IÞROTTAVÖLLURINN
1911 — 11. JÚNÍ — 1961
Á MORGUN KL. 2 á Melavellinum.
REVKJAVÍK - LAftlDIÐ
i
Dómari: GUÐJÓN EINARSSON
Fyrir leikinn minnist forseti I.S.Í., Benedikt Waage
afmælisins. /
1 leikhléi verður keppt í 4x200 m hl. og 800 m hl.
Aðgangur: Böm 5kr. — Stæði 20 kr. — Sæti 25 kr.
Stúka 35 kr. Stjóm íþróttavallanna í Reykjavík.