Vísir - 09.10.1961, Blaðsíða 2

Vísir - 09.10.1961, Blaðsíða 2
2 V í S I R Mánudagur 9. október 1961 Nýstúdentar ganga upp á sviðið í samkomuhúsi Háskólans á laugardag, þar sem rektor bauð þá velkomna með handabandi. Hátíðleg athöfn við kjör heiðursdoktora. Það var mjög hátíðleg stund í Samkomuhúsi Há- skólans á laugardaginn, þegar Háskólarektor, próf. Ármann Snævarr útnefndi 24 menn innlenda og er- lénda heiðursdoktora við Háskólann. Fór athöfnin að öllu levti fram með þeim virðuleikablæ sem var stofnuninni til sóma. Hinir nýskipuðu heiðurs- doktorar gengu upp á sviðið, þar sem deildarforsetar lýstu kjöri þcirra og rektor afhcnti þeim doktorsskjölin. Síðan stigu heiðursdoktorar augna- blik í ræðustól, sem tákn þess að þeir hafa rétt, livenær sem þeir óska að flytja fyrirlestra við Háskólann. Forseti íslands og forsetafrú voru viðstödd athöfnina, svo og ráðherrar, fulltrúar erlendra háskóla og prófessorar Há- skólans og fjöldi annars fólks. í lok samkomunar voru ný- stúdentar nærri 200 talsins boðnir velkomnir til Háskól- ans. Ræða Sigurðar Nordal. Háskólahátíðin hófst með ræðu .Sigurðar Nordal, sem fjallaði um sérkenni íslenzku þjóðarinnar. Hann minntist þeirrar hugsjónamannanna Tóm asar Sæmundssonar og Jóns Sigurðssonar og hugmynda: þeirra um framtíð Reykjavík- ! ur og stofnun háskóla. Fæstir hefðu þá látið sér koma til hugar að þær hugmyndir ættu eftir að rætast. Hann vék að þeim mun sem erlendir ferðamenn á s.l. öld hefðu séð á íslenzkri alþýðu og alþýðu í öðrum löndum, svo sem frásögn Bryce lávarðar, þar sem hann lýsir því hvernig íslenzk al- þýða hélt höfðinu hátt þrátt fyrir fátæktina. Sigurður Nordal kom nú inn á sögu Jóns Trausta: „Þegar ég var á freigátunni" og taldi þá sögu táknræna um vöku- drauma íslenzku þjóðarinnar. Það væru einmitt þessir vöku- draumar sem hefðu gert ís- lendinga að óvenjulegri og mikilli þjóð. Á hátíðinni sungu einsöng þeir Guðmundur Jónsson og Kristinn Hallsson. Útnefning heiðursdoktora fór fram og loks voru nýstúdentar boðnir velkomnir. Skrá yfir hærri vinningana í Vöruhappdrætti S.Í.B.S. í 10. flokki 1961. 200.000 kr: 3001. ! 00.000 kr: 43161. 50.000 kr. 30445 — 44160. Stúdentar boðnir velkomnir. ' Háskólarektor -■ Ármann Snævarr flutti ávarp til ný- stúdenta. Hann lagði áherzlu á að þeir þyrftu að öðlast and- UM þessa helgi barst afgreiðslu Vísis fyrsta fjárframlagið til fjársöfnunarinnar til styrktar Ríkharði Jónssyni knattspyrnu manni, er í lok þessarar viku fer utan sér til lækninga. Þessi gjöf er frá Bílasmiðjunni og starfsfólki fyrirtækisins, alls kr. 2375. Aðrar peningagjafir 10.000 kr.: 12703 15830 34041 49124 41791 45864 46322 50884 51749 54890 55229 56187 56292 57932 63504 5.000 kr. 10160 14372 20055 23854 26316 28746 30722 32629 33963 37974 40173 43409 54226 46675 47148 legt sjálfstæði og læra að íhuga sjálfir hvert mál áður en þeir tækju það sem góðar og gildar staðreyndir. — Hann minnti á ummæli fyrsta rektors Háskólans, Björn M. Olsen um ‘sjálfstæða rannsókn, en bað stúdenta jafnframt að gæta þess að námið væri mikil vinna. Ýmsar fleiri ábendingar gaf hann nýstúdentum m.a. að æfa sig í erlendum tungumál- um vegna sívaxandi samskipta við aðrar þjóðir. frá nokkrum einstaklingum eru nú hjá gjaldkera^ en alls hafa blaðinu borist 2450 kr. Samkvæmt manntali, sem fram hcfir farið í sumar í Israel, eru landsmenn nú sem næst 2,170,100. Þcir voru 840 þúsimd 1948, er Israelsríkið var stofnað. 47546 47549 47561 49816 52322 53746 55747 57780 60136 64166 1.000 kr.: 1357 2549 2670 3301 5296 6701 7010 7618 9121 9424 10286 11171 11260 12490 13817 14718 15242 17115 19522 19769 20352 121134 21734 23155 23486 24814 24943 26885 27092 27884 29565 39973 30552 31252 31739 31992 32735 33439 34152 35631 36158 36556 37519 38370 40688 40713 41874 42171 43309 44197 44262 47845 48674 48722 48991 49659 53702 54426 54832 56928 60272 62077 62850 63031 64173. (Birt án ábyrgðar.) Þrír vara- þingmenn ALÞINGI kemur saman á morg un. Vitað er um 3 þingmenn, sem verða fjarverandi og munu varamenn þeirra taka sæti í staðinn. Fyrst er að telja Ólaf Thors, form. Sjálfstæðisflokksins, sem er farinn utan til Bandaríkj- anna sér til heilsubótar. Sveinn S. Einarsson, verkfræðingur, mun taka sæti hans. Þá hefur sr. Gunnar Gíslason (Sj.fl.) boðað forföll og kemur Jón Pálmason í hans stað. Loks er Birgir Finnsson (Alþ.fl.) fjar- verandi á þingi SÞ. Varamaður hans er Halldór Hjálmarsson, skólastjóri. Ökumaður - Framh. af 1. síðu. Borgarlæknir sagði að yfir- leitt ættu þær sögusagnir sem gengju meðal fólks um notkun eiturs rót sína að rekja til meinlausari lyfja svo sem svefnlyfja, taugameðala og þess háttar, a. m. k. í þeim tilfell- um sem komizt hefur upp um. t' Franco kyrr- sotur Frakka Spanska stjórnin hefur kyrr- sett 15—20 franska útlaga að beiðni frönsku stjórnarinnar. Meðal þeirra eru Josef Ortiz, sem dæmdur var til lífláts fyrir þátttöku í byltingartilrauninni í jan. í fyrra, og Pierre Laga- illarde, sem dæmdur var í 10 ára fangavinnu fyrir sömu sak- ir. Ennfremur 2 ofurstar sem dæmdir voru til lífláts fyrir þátttöku í byltingartilrauninni í apríl s.l. Allir voru menn þessir dæmd ir að þeim sjálfum fjarstöddum. 34 farast í flugslysi. Laugardag s.l. fórst brezk flugvél af Dakotagerð í Suð- vestur-Frakklandi. Ajlir, sem í henni voru, fórust. Voru 31 farþegi og 3ja manna áhöfn. Flugvélin var að flytja hóp skemmtiferðamanna fra Lond- on, er hún hrapaði til jarðar í skógivaxna hlíð í Pyreneafjöll- um. Leitarflokkur, sem komst á vettvang staðfesti, að allir hefðu farizt. Lík sumra höfðu henzt allt að því 100 metra frá flakinu. KR. — Innanfélagsmót í köst- um á miðvikudag og föstudag kl. 6. Vinninqar í 10. flokki vöruhaji|i&ættis S. S. B. S. Gjöf til Ríkharðs- söfnunarinnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.