Vísir - 14.10.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 14.10.1961, Blaðsíða 1
 VISIR 51. árg. Laugardagur 14. október 1961. — 236. tbl. Rússar guggna Sovétstjórnin hefur fall- ið frá tillögu sinni um þriggja manna fram- kvæmdastjórn SameinuSu þjóðanna, sem hún ætlaði sér í lengstu lög að knýja fram, en að undan- förnu hefur hver. þjóða- fulltrúinn af öðrum við hina almennu umræðu á Allsherjarþinginu lýst sig andvíga slíkri breytingu. Nú hefur sovétstjórnin séð, að ekki þýddi lengur að berja höfðinu við steininn og til- kynnti Valerin Zorin aðalfull- trúi þeirra á vettvangi þeirra í gær ,að hún afturkallaði tillöguna, og féllist á, að ekki væri nema einn aðalfrámkvæmd- arstjóri, en hann skyldi hafa hvorki fleiri né færri að- stoðarframkvæmdarstjóra sér við hlið en sjö — og yrði einn þeirra frá Sovétríkjun- um. í fyrstu fréttum um þetta var ekki sagt, hvort aðstoðar- framkvæmdastjórarnir ættu, meirihluti þeirra eða hver ein- stakur, að geta beitt neitunar- valdi, en það er sovétstjórninni mjög kært, og hefur það álit mjög komdð fram við umræður um. einn framkvæmdastjóra og 3 til aðstoðar, að með neitun- arvaldi þeirra væri hægt að lama allar mikilvægar fram- kvæmdir stofnunarinnar. — Fullvíst er, að ef sovétstjórnin er hér enn að ota neitunar- valds-tota, mun það sæta mjög harðri mótspyrnu. Góðan daginn, — þetta er í sláturhúsi Guðmundar Magnússonar í Hafnarfirði, sagði karlmannsrödd í sím- ann, og hélt áfram: Hér hjá okkur hefur tekizt að finna í dilkskrokk það stærsta nýra sem við höfum heyrt um. Það vegur 3,8 kg. — Ljósmyndari blaðsins var sendur á vettvang til þess að taka mynd af þessu náttúru- undri. Guðmundur slátur- hússtjóri sagði lionum, að dilkurinn hafi verið ofan af Kjalarnesi, frá Arnarholts- búinu. Dilkurinn hafði verið áberandi magur. Hitt nýrað vóg 400 grömm, en eðlilegt nýra er um 50 grömm á þyngd. A myndinni eru nýr- un öll hlið við hlið og á endanum eldspýtustokkur. Nóg brauð Rúgbrauðsskorturinn, hið óvenjulega fyrirbrigði á seinni hluta 20. aldarinnar, er nú hjá liðinn. — Mjölið er komið austan frá Rússlandi, og í gær gátu bakararnir haf- ið rúgbrauðsgerð á ný. Það verður nægilegt af brauðum fyrirliggjandi í dag, sagði Sigurður Bergsson, bakara- meistari, í gærkvöldi. --------------------/— Tvö slys í gær - maður þungt haldinn. Verka- Enn urðu tvö slys hér í bænum síðdegis í gær. Ungur verkamaður slasað- ist alvarlega á Miklubraut- inni, klukkan að ganga sex, en rúmum klukku- tíma síðar varð kona fyrir bíl á Reykjahlíð. Voru bæði flutt í Landspítalann í gærkvöldi. Umferðar- slysin eru orðin óhugnan- lega mörg nú upp á síð- Myndsýningar opnaðar í dag og á morgun. kastið, sagði rannsóknar- lögreglan blaðinu í gær- kvöldi, og eru skráðir á- rekstrar nú komnir á 16. hundraðið. Friðrik Welding, Bústaða- hverfi 5, heitir ungi maðurinn, sem slasaðist á Miklubrautinni. Hann var að vmna í námunda við stóran kranabíl, er var að safna saman kantjárnum, sem . brautanna, sem þar er verið að gera. Hafði stjórnandi krana bílsins þá rétt áður farið úr stjómklefa kranans og yfir í stýrishúsið. — Hann þurfti að flytja kranabílinn til. T*aldi hann sig ekki hafa séð neinn mann í námunda við bílinn þá. Hann hafði svo ekið bílnum'Iít- ið eitt aftur á bak. Fyrir aftan bílinn var stór jarðýta, Krana- húsið. en aftan á því og undir notuð eru á brúnir steinsteypu- í dag opnar Eiríkur Smith málverkasýningu í Listamamia- skálanum kl. 4 síð’degis og sýn- Drengurinn þungt haldinn. Litli drengurinn sem slasað- ist inn við Alfheima á miðviku- daginn, og talið var að sloppið hefði furðanlega vel, var flutt- ur licim til sín að lokinni rann- sókn á slysavarðstofunni, ligg- ur nú þungt haldinn í sjúkra- húsi. Drengurinn sem heitir Einar Erlingsson, Álfheimum 72, tveggja ára, hafði þyngt mjög um kvöldið og var þá kallað í lækni, sem þegar Iét flytja hann í Landakotsspítal- ann. Þar var samstundis gerð- ur uppskurður á barninu og í ljós kom að um alvarleg inn- vortismeiðsl er að ræða. ir þar alls 70 myndir, en sýn- ingin verður opin daglega kl. 2—10 síðdegis næstu 10 dag- anna. Myndirnar skiptast í 36 olíumyndir, 22 Vatnslitamynd- ir, 9 tússmyndir unnar á gljá- pappír og 3 málmristur (rader- ingar). Flestar eru myndirnar nýj- ar af nálinni, eða unnar síðan Eiríkur hélt síðustu sjálfstæða sýningu 1958, en 19 ár eru liðin frá fyrstu sýningu hans, sem hann hélt í Hafnarfirði, þar sem Eiríkur er upp alinn. Eirík- ur hefir tekið þátt í tveim sam- sýningum erlendis, Rómarsýn- ingunni og einnig Moskvu. Eiríkur sýndi fréttamönnum sýninguna í gær og svaraði nokkrum spurningum. Hann sagði m. a. — Eg neita því ekki, að upp á síðkastið hefi eg sótt fyrir- myndir í náttúruna, og eg geri það með vilja að gefa myndun- um á þessari sýningu nöfn. Það hjálpar mörgum til að átta sig á myndunum. Myndir mínar hafa breytzt, eg vona til hins betra. í þeim blandast líklega saman expressionismi og ab- strakt. Eg hefi áður verið í geo- metiskri list og tel mig hafa Framh. á 2. síðv- I I Minningarathöfn um Gústav Jónasson. í gœr fór fravi mmningarat- höfn í Dómkirkjunni um Gúst- av Jónasson ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðuneytinu. Athöfnin fór fram í kyrrþey og voru aðeins viðstaddir ætt- ingjar Gústavs, samstarfsmenn og vinir, Sr. Jón Auðuns þjón- aði fyrir altari en dr. Páll ís- ólfsson lék á orgelið. Fánar voru í hálfa stöng í stj órnarráðsbyggingum. Rafmagnið fór. Um kl. 18.25 varð skyndi- lega rafmagnsláust þar sem verið var að halda bókaupp- boð í Sjálfstæðishúsinu og um leið varð og rafmagns- laust í nærliggjandi húsum. Nokkrum mínútum síðar hverfur svo rafmagnið úr hverjum bæjarhlutanum af öðrum þar til næstum allur miðbærinn varð án raf- magns svo og hluti af Vest- urbænum. Það sem olli var yfir- lestun á spennistöð í Vallar- stræti, hjá Sjálfstæðishús- inu. Þetta hafði keðjuverk- anir á aðrar spennistöðvar í nærliggjandi bæjarhlutum. Þær tóku við rafmagninu, sem ekki gat farið í stöðina við Vallarstræti og þær þoldu ekki álagið og „hrukku út“, hver af annari. Frh. á 2. síðu Fluttir austur. STROKUFAN GARNIR tveir voru í fyrradag fluttir úr Steininum í tryggari fangagæzlu, og var farið með þá austur að Litla Hrauni. , eru þung járnstykki, ballest fyr. ir kranann. Hefur Friðrik Weld- ing orðið á milli ballestarjárns- ins og jarðýtunnar. Sá, sem krananum stjórnaði, vissi ekk- ert um slysið fyrr en hann sté niður á götuna, eftir að hafa flutt kranabílinn til. Sá hann þá hvar Friðrik lá. Hann var með meðvitund, en hafði lit- illi stundu síðar misst hana. Sjúkrabill kom fljótt á vett- vang. Friðrik var fluttur fyrst í slysavarðstofuna, en var aldr- ei tekinn úr sjúkrakörfunni og var ekið með hann beint í Landspítalann. — Var Friðrik þungt haldinn í gærkvöldi. Engir sjónarvottar urðu að því, er hann varð fyrir þessu slysi, er varð skammt frá gatnamót- um Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar. Slysið á Reykjahlíðinni varð klukkan tæplega hálf átta í gærkvöldi. Hin slasaða heitir Hreindís Guðmundsdóttir og er hjúkrunarnemi. Er slysið varð, var mikil- rigning og skyggni slæmt, Litlum bíl var þá ekið eftir götunni. — Ökumaðurinn kvaðst allt í einu hafa séð í Ijósgeislunum frá bílnum, hvar kona stefndi yfir götuna rétt framan við bílinn. Hafi hann hemlað svo sem hann mátti, en bíllinn rann í forinni á göt- unni og lenti á konunni, sem kastaðist upp á bílinn og féll í götuna. Hún handleggsbrotn- aði.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.