Vísir - 14.10.1961, Side 2

Vísir - 14.10.1961, Side 2
4 V í S I B Laugardagur 14. október 196.1 y///4M&"//áWn?7////A r=n u—I i J TT /////////áWk////////mZ////A Bréf frá Ríkharði, er hann fer utan árdegis í dag. Reykjavík, 12. 10. 1961. Áður en ég held utan langar mig að láta þessi fáu orð frá mér fara. Af öllum þeim fjölda sem tók þátt í að létta mér ferðina, get eg aðeins fáa nefnt. Upphafsmaður þessarar ferðar var Sveinn Sæmundsson blaða- fulltrúi hjá Flugfélagi íslands, hann ásamt Flugfélaginu og Gísla Sigurbj örnssyni opnuðu leiðina, en þær undirtektir sem hann fékk hjá íþróttafréttarit- urum blaðanna, ásamt öllum þeim fjölda fólks, frá ótrúleg- ustu stöðum^ eru mér meira virði en allt annað er ég hef áður reynt. Fyrir öll þau bréf, óskir og þakkir mér til handa, þakka ég af alhug, og vona ég að geta þakkað betur með aftur komu á völlinn, sjálfum mér til ánægju. Ég finn að ég nýt uppgangsanda Akranes liðsins, þó að ég eigi aðeins minn ell- efta part, og er það líkt, og er skipstjóranum er þökkuð björg un þó hvorugur okkar væru nokkurs megnugur án sam- herja. Ég skoða þennan stuðning við mig sem drengskaparbragð en ekki ölmusu og þakka það tækifæri sem þið gefið mér nú á þennan hátt hjartanlega og fer því bjartsýnn. Ríkharður Jónsson. Gerast Tristanbúar Hjaltlendingar? Þeim er boðin landvist á Hjaltlandseyjum. Uppástunga er komin fram um það á Hjaltlandi, að bjóða íbúum eyjarinnar Tristan de Cunha að setjast að þar, öllum með tölu, og kom uppástungan fram eftir að kunnugt varð, að ákveðið hafði verið að flytja íbúana til Bretlands og annast um þá, þar til fundinn væri staður þar sem þeir gætu vcrið til frambúðar. Tekið er fram af ráðamönn- um á Hjaltlandi, sem hafa tekið málið upp við brezku stjórnina, að á Hjaltlandi myndu eyjar- skeggjar búa við skilyrði, sem í ýmsu væru lík þeim, sem þeir hafa búið við: Eyjalíf við erfið náttúruskilyrði og harða lífsbar- áttu, þar sem viðurværið er í greipar Ægis að sækja. Verði þetta að ráði er ekki minnst um það vert, að á Hjalt- landi eru eyjarskeggjar vel- komnir, að sögn ráðamanna þar. Færi vel á því, ef svo greiðlega gengi að leysa vandamál þeirra flóttamanna \fegna náttúruham- fara, sem hér er um að ræða. Það var eldfjall, sem ekki hafði gosið í 1000 ár, sem lagði ey þeirra í auðn — en hún er nú að hálfu sokkln í sæ, og þar var þorp eða bær, þar sem þeir bjuggu nær allir — og nefndist Eldinborg. Þegar flytja varð þá alla í skyndi til Næturgalaeyj- ar kom framtíð þeirra þegar á dagskrá. Og það er engin furða Söfnunin. Undanfarna daga hafa eftirtaldir einstaklingar og ! i starfsmannahópar afhent Sveini Sæmundssyni blaða fulltrúa, fjárupphæðir til ! styrktar Ríkharði Jónssyni' | knattspyrnumanni. Björgvin Schram kr. ! 5000.00, H. Guðmundsson ' kr. 200.00, L-4 kr. 100.00, | Starfsm. Slökkvistöðvarinn- ) ar í R.V.K. kr. .1275.00, Breiðfirðingabúð, Sigmar Pétursson, ágóði af dansleik kr. 2478.00, Frá starfsfólki Flugfél. íslands kr. 2280.00, ( Bílstjórar og starfsmenn | Bifreiðastöðvar Reykjavíkur | kr. 1785.00. að strax kom fram beygur hana varðanJi. Ekki þótti álitlegt að láta Suður-Afríkustjórn taka við þeim, sökum þess hver stefna hennar er í kynþáttamál- um, en íbúarnir eru kynblend- ingar. Eitt blaðanna á Norður- löndum segir: íbúarnir, 280 talsins, búa í steinkofum, sjúkdómar eru nær óþekktir hjá þeim og afbrot eru engin framin. Þetta fólk bjó á afskekktustu ey heims. Það þekkir óblíðu og duttlunga nátt- úrunnar — nú blasir brátt við þeim óblíða og duttlungar mannanna. Hvernig fer þá. — Kannske betur en horfði, ef lausnin verður sú, að þeim verð ur búinn samastaður við skil- yrði lík þeim, sem þeir þekkja — eru velkomnir — og búa við brezka yfirstjórn áfram, eins og þeir raunverulega gerðu á Tristan da Cunha. Mikil síld á Akureyrarpoll Mikið síldarmagn er komið Hannes Hafstein að veiðum og inn á Akureyrarpoll og voru lætur nærri að samanlagður bátar og áhafnir þeirra önnum kafnar við að háfa síldina í allan fyrrad. Talið er að 2500 málum liafi verið landað á Ak- preyri í fyrrad. og fer það senni lega allt í bræðslu. Vísir átti í gærmorgun tal við Kristján Jónsson forstjóra á Akureyri og sagði hann að fyr- ir um það bil mánuði hafi nokkurt síldarmagn veiðzt inni á Akureyrarpolli. Veiddi bátur frá Nótabrúki Kristjáns Jóns- sonar þá nokkur hundruð tunn- ur, sem fóru til niðursuðu. Nokkru seinna hvarf síldin og hennar varð ekki vart aftur að nokkru ráði fyrr en nú um helgina. Á þriðjudaginn sendi Kristján bát sinn, Vörð, út á Akureyrarpoll og lét kasta eft- ir síld. Fékk hann þá -rúmlega 600 mál, á miðvikudaginn fékk hann yúmlega 700 mál og aftur 700 mál á fimmtud. Hann hefir veitt um eða yfir 2 þúsund mál á þrem dögum. Síðan hafa fleiri bátar bætzt við. í fyrrad voru auk Varð- ar, Garðar, Súlan, Björgvin og afli þeirra hafi numið um 2500 málum. í gær bættist sjötti báturinn í hópinn, en það er Pétur Jónsson. Bátarnir voru allir búnir að kasta fyrir klukk- an 10 í gærm., en ekki var vit- að þá hve stór köst þeir fengu. Þarna er um millisild að ræða frá 20 og upp í 22 senti- metra að stærð. Búizt er við að aðalmagnið fari til bræðslu, en þó hefur verið talað um að frysta eitthvað af henni, og jafnvel að sjóða niður. Þó kvaðst Kristján hafa öðrum hnöppum að hneppa í niðursuðu verksmiðju sinni eins og sakir stæðu, því þar hefur undan- farið verið unnið af kappi við að leggja niður (í dósir) mikið magn af kryddsíld — gaffal- bita — sem fer á Þýzkalands- markað, og er þegar búið að ^emja um sölu á því. Hitabylgja - Myndin er frá Tristan da Cunha eyjaklasanum, þar sem „eldfjall, er svaf í þúsund ár“ vakn- aði skyndilega, en gos úr þvi hafa nú lagt eyjuna í auðn. Þar bjuggu 280 manns sem nú er rætt um að setja niður á Hjaltlandi. Sýningar — Framh. af 1. síðu. haft gott af því, samt tel eg þetta eiga betur við mig nú. og abstrakt stefnur eru reynd- ar orðnar svo margar, að það þarf sérfræðinga til að kunna skil á öllu því. Það er annars svo margt, sem maður lærir af. Auðvitað lítur það út eins og karlagrobb, að segja frá því, en eg fekk óvænta heimsókn í sumar. Það var listfræðingur- inn Dorothy Millér, aðstoðar- safnstjóri við hið fræga safn í New York, Museum of Modern Art, hún keyþti af mér mynd og sagði sitt af hverju fallegt. Þetta er allt breytingum háð, Auðvitað varð eg upp með mér, en eg tel mig líka hafa lært mik ið af að tala við frúna. Eg tel, að frúin viti hvað hún segir, og þetta var í rauninni .um tals- verða upplifun að ræða að tala við frúna. Á morgun verða hengdar upp til sýnis í Mokkakaffi myndir oftir þyzka listamanninn og fornfræðinginn dr. Tlay W. Ilansen, Myndir þessar eru bæði mál- verk og teikningar af ýmsum stöðum á íslandi, íriandi, Ítalíu, Sviss, Noregi,, Svíþjóð og Fær- eyjum. Ennfremur teikningar af nokkrum þjóðkunnum ís- lendingum, svo sem forseta ís- lands og nokkrum listamönn- um. Frh. af 16. s. til kl. 6 í gærkvöldi mældist úrkoman alls 64 millimetrar, eða .6.4 sentim. Hefir þá úr- koman verið 60.4 lítrar á hvern fermetra lands á sólarhring. Þar eystra hefir úrkoman stundum mælzt á annað hundr- að millim. á hvern fermetra lands á fyrrnefndum 24 klst. Að því er veðurstofan tjáði blaðinu í gærkvöldi eru horfur á framhaldandi hlýju veðri, vætusamrj og breytilegri vind- átt. Rafmagnið — Framh at 1 síðu Var rafmagnslaust í næstum hálfa þriðju klukkustund. Að vísu var rafmagnið að smákoma aftur allan tímann, og var kom- ið inn á síðustu spennistöðina um kl. 22.00. „Það hefur alltaf verið viss hætta á þessu,“ sagði Valgarð Thoroddsen yfirverkfræðingur við Vísi í gærkveldi. „Það er of mikið álag á stöðinni í Vall- arstræti. Við höfum ætlað að bæta úr því. Við vorum búnir að semja um að fá að reisa nýja spennistöð við Lækjargötu 4, Svo urðu eigendaskipti þar fyrir nokkru og á nú að reisa stórhýsi þarna. Við urðum því að fresta byggingunni, en höf- um fengið stað fyrir stöðina á lóðinni Lækjargötu 8. Stöðinni verður komið upp hið allra fyrsta.“

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.