Vísir - 14.10.1961, Page 3
Laugardagur 14. október 1961
r
Eg labbaðí
inn á
Laugaveg...
Laugavegurinn er hin
mikla verzlunargata Reykja-
víkur. Hann hcfir stöðugt
verið að lengjast og teygist
nú nærri tvo kílómetra og
búð við búð alla leiðina. Eft-
ir því sem verzlunin hefir
aukizt hefir einnig farið að
bera á því á síðustu árum,
að hliðargötur hans, svo sem
Skólavörðustígurinn og
Klapparstígurinn vaxi
einnig í áliti og svo kann
jafnvel að fara, að Hverfis-
gatan, sem liggur samhliða
honum, taki að fylgja hon-
um eftir.
★
Myndsjá Vísis birtir í dag
nokkrar myndir af nýjum
verzlunum við Laugaveginn
og í nágrenni hans á Klapp-
arstíg og Hverfisgötu. En
margar glæsilegustu verzl-
anir eru nú að rísa upp við
þessa sögufrægu götu.
Efst er mynd af Húsbún-
aði h.f. sem er beint á móti
ritsstjórnarskrifstofum Vísis
og er stærsta einstaka búðin
í Reykjavík. Grunnflötur
hennar er 450 fermetrar. Á
myndinni sést verzlunar-
stjórinn Páll Guðmundsson
ásamt viðskiptavinum. Páll
er húsgagnaarkitekt að
menntun.
★
Þá kcmur mynd af verzl-
uninni Sif, sem er á horni
Frakkastígs og Laugavegs.
Hún var áður í sama húsi,
en mjög lítil. Hefir hún nú
stækkað og tckið undir sig
allt plássið sem Hamborg
hafði áður og um leið hefir
húsnæðinu verið gerbreytt.
Sif verzlar með undirföt,
peysur, barnaföt og leikföng.
Á myndinni sést verzlunar-
stjórinn Elsa Breiðfjörð, sem
áður hefir unnið m. a. í
Markaðnum og hjá Báru.
★
Næsta mynd er í Gjafa-
og snyrtivörubúðinni sem er
í húsi Kristins Guðnasonar
á Klapparstígnum. Á mynd-
inni sést verlunarstjórinn
Kristín Þórarinsdqttir, sem
hefir áður verið í Hygia, en
þær systurnar Sigríður og
Lára Biering í Reykjavíkur
Apóteki.
Þar fyrir neðan er mynd
af Guðrúnu Stefánsdóttur,
sem hefir opnað Guðrúnar-
búð í sömu húsakynnum og
Framh. á 5.