Vísir - 14.10.1961, Síða 7

Vísir - 14.10.1961, Síða 7
Laugardagur 14. október 196.1 V í S I R 7 MYNDLISTjp FðLSUÐ LISTAVERK. Kunn er sagan um það, að af þeim 2000 myndum, sem Corot málaði, hafi 4000 ver- ið seldar til Ameríku. Þess- ar tölur eru ekki alltaf þær sömu, því sagan er ekki byggð á öruggum heimild- um, heldur sögð til að vekja eftirtekt á þeim mikla f jölda málverka, er gerð háfa verið af svo snjallri hermilist, að ekki er auðvelt að greina uppruna þeirra. Vafalaust hefur verið tiltölulega auð- velt að falsa málverk eftir þennan 19. aldar meistara, en því eldri sem fyrirmynd- in er, því erfiðara hlýtur þetta að vera og kemur þar margt til, svo sem fjarlæg- ari stíll, ólíkur hugsunar- háttur, öðruvísi efni og vinnutækni, persónuleg sér- kenni svo og það, sem tím- ans tönn áorkar og líkja þarf eftir, svo allt verði trúlegast. Mörgum hefur þó tekizt að yfirstíga þessa örðugleika svo vel, að lærðustu sér- fræðingar hafa látið blekkj- ast, eða átt erfitt með að kveða upp dóm um það, hvað falsað sé eða ekki. Þegar verk einhvers lista- manns hafa hækkað mjög í verði og eru orðin eftir- sótt, þá er hætt við, að ein- hverjum komi til hugar að gera stælingar og selja þser sem ósvikna vöru, því hér er fljóttekin og mikill gróði driffjöðrin. Alkunnugt er, að málverk eftir Van Gogh voru lengi vel óseljanleg, nema þá fyrir lítinn pening, en þegar þau hækkuðu skyndilega í verði og fjár- sterkir aðilar vildu greiða offjár fyrir þau, þá stóð ekki á eftirlíkingum. Er þar einkum kunnur maður að nafni Wacker, er seldi mörg fölsuð málverk dýrum dóm- um, en sérfræðingur í list van Goghs taldi mörg þeirra vera ekta. Að vísu er aldrei útilokað að listaverk komi í leitirnar eftir þá, sem hafa verið lítils metnir meðan þeir lifðu eða fallið í gleymsku en verið uppgötv- aðir og orðið frægir löngu eftir dauða sinn. eins oa t.d. hollenzki málarinn Ver- meer. Það er ekki svo ýkjalangt síðan að ein ótrúlegasta sagan um fölsun málverka varð kunn. Það var hol- lenzki málarinn Jan van Meegeren sem málaði mynd- ir „eftir Vermeer” og gat selt þær fyrir ógrynni fjár, en allir undruðust að enn skyldu finnast verk eftir þennan gamla og ágæta meistara. Hér var í mikið ráðizt, því fáir munu erfið- ari viðfangs í þessu tilliti en Vermeer. Jan van der Meer hét hann, en er venjulega nefndur Verméer van Delft, til aðgreiningar frá lista- mönnum með sama nafni í öðrum borgum, en í Delft átti hann heima1 alla æfi, 1632-1675. Sama sem ekkert er vitað um hann og eru ýmsar ágizkanir byggðar á myndum hans sjálfs. Þó er það kunnugt, að hann hefur vex-ið vel virtur borgari og mikils metinn af listbræðr- um sínum í myndlistarfélagi heilags Lúkasar í borginni, en í því gegndi hann trún- aðarstörfum og var síðast formaður þess. Svo féll nafn hans og list í gleymsku þar til seint á 19. öld, að hann var uppgötvaður og snilld hans var öllum Ijós. en þá voi'u sum máiverk hans eignuð öðrum. Síðan hafa verið skrifaðar fjöldi rit- gerða og bóka um list hans en af málverkum hans eru nú aðeins um 40 kunn' og talin áreiðanle.ea eftir hann. Þau eru nú miklir dýrgripir á söfnum. jpiest málverka hans eru innimyndir og á mörgum er ein kona og sýslar við eitt eða annað, les bréf eða hellir rnjólk úr könnu, en á öðrum eru fleii'i persónur. Litirnir eru fremur kaldir en lýs- andi, nákvæmni víða mikil en truflar ekki heildina, útlínur allar með sérstakri mýkt og yfir öllu einhverjir töfrar, sem fræðimenn hafa átt erfitt með að skilgreina, sem ekki er að undra. Tján- ing hans hefur verið mjög persónuleg og honum hefur K"I1? frændi tekizt að losa sig við ríkj- andi hefð síns tíma og^fara eigin leiðir. Hvað viðfangs- efni snertir hefur hann verið nokkuð einhliða og líklega talið þau skipta minna máli en meðferðin. Proust sagði um myndir hans, að „þar er alltaf sama borðið, sami dúkurinn, sama konan og sama sérstæða fegurðin”. Aðeins eitt málvei'k hans er trúarlegs efnis og hefði það átt að geta vakið toi’tryggni gagnvart fölsunum Meeger- ens, sem allar voru af þeim toga spunnar. Skömu fyi'ir síðai’i heims- styrjöldina var listasafni í Rotterdam boðið áður óþekkt málverk eftir Ver- meer. Kristur í Emmaus. Allar þekktar aðferðir voru notaðar til þess að komast að raun um, hvort það væri ósvikið og ekkert kom í Ijós. er bent gætj tii annars. Þekktur listasali sem talinn var öruggur. bauð málverk- ið.. en það var talið hafa verið í ítölsku safni. Svo var það keypt fvrir 600.000 gyllini og vaktí mikla at- hygli og.var mikið skrifað um þetta nýfundna lista- verk. Svo hófst stríðið og Holland var hernumið en bá kom annað má'verk fram í dagsins ljós og var það merkt, sem þótti taka af öll tvímæli um uppruna þess, þótt ekki væi’i það nsin sönnun. Ekki þótti samt allt með felldu. Myndbyggingin þótti nokkuð gölluð og tján- ing efnisins ekki í góðu sam- ræmi við hugsunarhátt 17. aldar. Samt var þetta mál- verk einnig keypt dýru verði og sett í minni háttar safn. í Meegeren seldi 4 málverk í viðbót „eftir Vermeer” og sennilega hefur hann fals- að einhver eftir aðra gamla meistara Varð hann auðug- ur maður á skömmum tíma. jjvo lauk styrrjoldinni með fá'li Hriðja ríkisins og brugðu þá Aineríkumenn skjótt við að kanna listasafn Görings. Kom þá í ljós, að þar var eitt málvei'k eftir Vermeer. Vildu Hollending- ar að sjálfsögðu fá upplýs- ingar um, hvaðan það væri þangað komið og var slóð þess þá rakin, en upphaf hennar reyndist vera hjá Meegeren. Göring hafði ekki „tekið” þetta listaverk, held- ur keypt það fyrir hálfa aðra milljón gyllina. Slík við- skipti við erkióvininn var talið stórvægilegt afbrot, og til þess að bjarga lífi sínu varð Meegeren að segja hið sanna. En sögu hans var ekki trúað fyrr en hann mál- Sannarlega hefir íslenzk blaðamennska oft lotið lágt, og Kiljan segir á einum stað, að því vei’ði ekki á móti mælt að íslenzk dagblöð séu yfirleitt rituð fyrir frumstæðari lesend- ur en almennt gerist, a.m.k. á Norðurlöndum og meðal engil- saxneskra þjóða. Máske er það rétt. Að minsta kosti held ég að sjaldan hafi lægra lotið verið í skrílblaðamennsku en í mánu dagápistli Jóns Reykvíkings þ. 25. sept. 1961. Pistillinn fjallar um skáld- ið og manninn Kristmann Guð mundsson, og skal það sti’ax tekið fi'am, að hvorki er ég ná- kunnugur skáldinu né mann- inum og má það einu gilda í þessu efni, pistillinn gæti eins verið um þig eða mig og er það kjarni málsins. Fi’elsi er fagurt hugtak og prentfrelsi er sjálfsögð mann- réttindi en allt frelsi leggur þeim skyldur á herðar er þess nýtur. Jón Reykvíkingur nýtur prentfreJsis. en skilur ekki þær skyidur sem því fylgja. Hver er Jón Reykvíkingur? Hvað vakir fyrir menntuðum manni sem þykist þafa fullt vit. að vega að meðbróður sin- um úr launsátri og ata hann þvílíkum óþvei'ra, að slíks munu engin dæmi á opinber- um vettvangi. Samband við tunglið. Stærsti radíó-sjónauki í Bandaríkjunum verður senn tekinn í notkun við Stanford- hóskóla í Kaliforníu. Tæki þetta á að senda og taka við merkjum frá tungli og öðr- um hnöttum. Það kostar um 15 milljónir króna og er 45 metrar i þvermál. aði — sjöundu og síðustu — myndina eftir Vermeer og undruðust þá allir stórlega færni mannsins og dirfsku. Meegeren dó í fangelsi árið 1947, en mörgum árum síðar var haldin sýning á hans eigin málverkum er þá fengu sama dóm og áður, að þau væru afar léleg lista- verk. Tækni hans og hag- leikur var svo undrum sætti, en skapandi kraft vantaði. Hann gat ekki mál- að sín „eigin” verk, en „annara” vei'k með þeim ágætum, að sérþekkingin varð fyrir alvarlegu áfalli. F. Ekki getur það verið fjár- hagslegur ábati, því vart verð ur hann loðinn um lófana vegna í'itlaupanna. Og jafnvel þó Gróa á Leiti gægjist fram í greininni, trúi ég þó ekki að slúðureðli mannsins hafi knúið hann til þess að skrifa pistil- inn. Hitt held ég' að hverjum þeim sem les þennan viðbjóð með athygli verði strax ljóst. Maðurinn er hræddur við ævi- sögu Kristmanns, eða hví er honum svo í mun að telja les- endum trú um að skáldið sé ó- tíndur lygari, að honum nægir ekki að segja það einu sinni i greininni heldur fjórum sinn- um. En allir vita að hræddur maður er ekki „normal“, og máske skiptir það minnstu máli hvaða sálfræðileg rök knúðu þennan sjúkling til blaðaski-ifa, en hitt verður ki-afa lesenda íslenzkra blaða, að ritstjórar veiti ekki viðtöku slíkum geðbilunarskrifum. Jóni Reykvíking verður tíðrætt um menntunar- og menningar- leysi Kristmanns Guðmunds- sonar, og ef til vill er hann sjálfur langskólagenginn, en hvað er ljósari vottur menn- ingarleysis en pistill hans í Mánudagsblaðinu og menntun Jóns Reykvíkings liefir borið sorglega lítinn ávöxt. Megum við biðja um færri menntaða rudda og fleiri menn ingarlega sannmenntaða menn. Gunnar Árnason, frá Hóluni. ★ Dr. Carlos Morales Guillen aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðununi sagði í ræðu í gær undir hinum plmennu umræðum. að smáþjóðirnar í samtök- . unum hefðu aldrei skilið betur en nú mikilvægi gildh samtakanna fyrir þær. Hann Iýsti sig mótfallinn þriggja manna framkvæmdastjórn. Þetta er ekki hægt.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.