Vísir - 14.10.1961, Page 8
8
Laugardagur 14. oktober 130.1
UTGEFANDI: BLAÐAUTGAFAN VISIR
Ritstiórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstióri: Axel fhorsteinsson. Fréttastjór-
ar: Sverrir Þórðarson. Þorsteinn Ó Thorarensen.
Ritstiórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar
og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er
krónur 45.00 á mónuði — í lausasölu krónur
3.00 eintakio. Sími 1 1660 (5 línur) — Félags-
prentsmiðjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f.
Gjöf úr rangri átt.
Eitt helzta viðundur kommúnista hér á landi,
Þorvaldur Þórarinsson lögfræðingur, hefir skrifað grein
í Þjóðviljann, þar sem hann fer hamförum yfir þeirri
ósvinnu Bandaríkjastjórnar að gefa Háskóla Islands 5
milljónir króna til raunvísindastofnunar. Telur Þor-
valdur óheimilt að taka við gjöfinni og eigi forseti
Bandaríkjanna að biSja afsökunar á því að gjöfin
skyldi hafa verið gefin.
Enginn vafi leikur á því, að Þorvaldur Þórarinsson
og aðrir slíkir hefðu sleikt út um, ef einhver smágjöf
hefði borizt aS austan og ekki heimtað neina afsökunar-
beiSni. Annars virðist Þorvaldur búinn aS gleyma því,
þegar hann sleikti út um vegna Rockefellerstyrks, sem
hann fékk fyrir all-löngu. Þá þóttu dollararnir harla
góðir — jafnvel handa kommúnistum.
En það var í þann tíð, þegar kommúnistafor-
ingjarnir í Kreml hötuðu ekki Bandaríkin. ÞaS var í
þann tíð, þegar sjálfur Einar Olgeirsson gerði um það
tillögu — vafalaust með heimild húsbænda sinna í
Kreml — að við bæðum Bandaríkin um að veita okkur
vernd gegn vaxandi veldi nazista.
Nú er stefnan önnur í Kreml — og eftir höfðinu
dansa limirnir. Kremlverjar telja enga þjóð kommún-
ismanum erfiðari í skauti en Bandaríkin — og sam-
kvæmt því skrifa sprellikarlar eins og Þorvaldur Þór-
arinsson.
Gegn leynivínsölum.
Eins og Vísir greindi frá um miðja vikuna, hafa
hér í bæ verið stofnuð samtök gegn leynivínsölu, og
er vitanlega allt gott um slíka starfsemi að segja.
Leynivínsala er smánarblettur á þjóðinni en fyrst og
fremst Reykjavík, þar sem hún er áreiðanlega meiri
en nokkurn grunar.
Talsvert hefir áunnizt í baráttunni gegn þessum
ófögnuði síðustu ár og mánuði, en betur má ef duga
skal, og þótt mönnum sé almennt ekki gefið um leyni-
félög, mun óhætt um það, að ekki verður hægt að
uppræta leynivínsöluna með öðru móti en þeim að-
gerðum, sem þessi félagsskapur ætlar að beita.
En í tilkynningu þeirri, sem birt hefir verið í blöð-
um um stofnun og starfsemi félagsskapar þessa er
atriði, sem krefst nánari athugunar. Þar segir m.a., að
félagið hafa í höndum sannar upplýsingar um afbrot
gegn 14 ára telpu — afbrot leynivínsala gegn henni.
Hefir félagið látið yfirvöldunum þær upplýsingar í té?
Af tilkynriingu þess verður ekki séð, að svo hafi verið
gert, en ætti vitanlega að vera fyrsta skylda þeirra,
sem komast að slíku. Hafi félagiÖ ekki gert það, hefir
það brugðizt skyldu sinni á sinni fyrstu göngu.
Raoul Salan hershöfðingi hefur dauðann vofandi yfir höfði sér. Hér sést hann ásamt
dóttur sinni sem fylgdi honum í útlegð.
!
I Stóri fiskurinn slapp.
Spænska stjórnin hef-
J ur gripið til aðgerða til
aS gera foringja franskra
öfgamanna óvirka. Hún
hefur látiS handtaka 20
—30 franska öfgaseggi
sem dvalizt hafa í
Madrid og skipulagt
þaðan kerfi óaldarflokks
ins OAS. MeSal hinna
handteknu eru Pierre
Lagaillarde og Joseph
Ortiz. Þeim verður ekki
varpað í fangelsi, en síð-
ustu fregnir herma, að
þeir verði fluttir til
Balear-eyjanna og hafðir
þar undir ströngu eftir-
liti spænsku lögregl-
unnar.
Salan slapp.
Það hefir hinsvegar vakið
nokkra athygli, ,að höfuð-
paur andspyrnunnar gegn
de Gaulle, hersöfðinginn
Raoul Salan var ekki meðal
hinna handteknu. Á sama
degi og spænska lögreglan
lét til skarar skríða heyrðist
rödd, hans gegnum leynistöð
OAS hreyfingarinnar í Alsír,
þar sem hann hvatti ev-
rópska landnema til að rísa
upp gegn de Gaulle og taka
stjórn Alsír í eigin hendur.
Var Salan þá staddur í
Alsír? Talaði hann sjálfur
í beint í hina leynilegu út-
í varpsstöð? — Nei, slíkt er
^ álitið ótrúlegt, heldur mun
í hann hafa ^alað inn á segul-
■» band sem hefur verið flutt
;! til Alsír.
í Það hefur lengi verið mik-
il gáta, hvar Raoul Salan sé
niður kominn. Hann er vafa-
laust sá maður sem getur
reynzt de Gaulle skeinuhætt-
astur. Hann nýtur enn mik-
illar virðingar innan
franska hersins og ef herinn
gerði á endanum byltingu
gegn de Gaulle er varla vafi
því, að Salan yrði kallaður
til að taka að sér hernaðar-
einræði.
í Alsír eða á Spáni?
Ýmsar fréttir og ósam-
kvæmar hafa verið á flugi
um verustað Salans. Stund-
um er því haldið fram að
hann leynist í hálendi Alsír,
en þess á milli berast flugu-
fregnir af því, að hann hafi
sézt suður á Spáni, í Madrid
eða Barcelona. Svo virðist
sem frönsk yfirvöld hafi
reiknað með því að hann sé
á Spáni. Styrktist sú skoðun
nokkuð við það, að franska
blaðið Paris Match birti ný-
lega myndir af honum, sem
það sagði að Ijósmyndari þess
hefði tekið fyrir skömmu i
felustað hans á Spáni.
Á myndum þessum sézt
hann ásamt 17 ára dóttur
sinni Dominique, sem hefur
fylgt föður sínum í útlegð-
ina. í frásögn með þessum
myndum var sagt, að Salan
lifði heldur ömurlegu lífi.
Hann hefði verið dæmdur til
dauða og ætti aftöku yfir
VWWWWW -----
höfði sér hvenær, sem
franska lögreglan næði í
hann.
Mótleikur Frakka.
Það er enginn vafi á því,
að hermdarverkamenn OAS
hafa haft aðalbækistöðvar á
Spáni. Þaðan hafa streymt
hinar hættulegu ' plast-
sprengjur, sem hafa valdið
dauða og slysi á fjölda
manns. Franska stjórnin bar
margsinnis fram mótmæli
við Franco vegna þessa.
Lengi vel bar það engan ár-
angur, þangað til de Gaulle
greip til kænskubragða. Svo
einkennilegavildi til aðfjöldi
spænskra flóttamanna dve'lj-
ast í Frakklandi, þó þeir hafi
haft hægt um sig.
í síðastliðnum mánuði
gerðist það að hópur
spænskra flóttamanna gerði
árás á landamærastöð á
landamærum Frakklands og
Spánar Hópurinn var undir
forustu hins fræga spænska
bardagamanns E1 Campesino.
Unnu þeir á landamæravörð-
unum og hurfu síðan á brott..
Sagt er að Franco einræð-
isherra hafi brneðið i brún
við þetta. Herferð Campesin-
os gat orðið . til þess að
kveikja að nýju ófriðarbál
um gervallan Spán. Auðvitað
mótmæltu Snánverjar árás-
inni, en frönsku embættis-
merínirnir svöruðu ibyggnir:
— Því miður, við getum
ekki ráðið við hópa flótta-
manna, sem dveljast í land-
inu.
Ekki stóð á árangrinum.
Einn góðan veðurdag sá-
ust hópar löereglumanna
gera útrás í Madrid. Á
Framh ð bls. 5.