Tölvumál - 01.04.1981, Qupperneq 1

Tölvumál - 01.04.1981, Qupperneq 1
Útgefandi: Skýrslutæknifélag islands Pósthólf 681,121 Reykjavík Höfundum efnis áskilin öll réttindi Ritnefnd. Qttar Kjartansson, ábm. Grétar Snær Hjartarson Sigurjón Pétursson 4. tölublað, 6. árgangur April 1981 FÉLAGSFUNDUR UM JACKSON-AÐFERÐINA (JSP) Skýrslutæknifélagió boðar til félagsfundar að Hótel Loft- leióum, Kristalssal, mánudaginn 13. april, kl. 14.30. A fundinum mun Michael Jackson, höfundur hönnunaraóferðar- innar "The Jackson Method (JSP) for program and system design" lýsa aóferð sinni í yfirlitserindi. Michael Jackson hefur tengst tölvum í störfum sínum sióan 1961 og þá einkum gerð hugbúnaðar fyrir vinnslu- og stjórnkerfi. Hann hefur borió ábyrgó á hönnun og aólögun ýmissa hugbúnaóarkerfa, svo sem "program generators", "testing systems", "decision table processors" og "special purpose operating systems". Árió 1971 stofnsetti hann eigið fyrirtæki, Michael Jackson Systems Limited, sem ætlaó var aö leggja megin áherslu á þróun, notkun og kennslu hönnunaraðferða fyrir kerfi og forrit og einnig til aó þróa hönnunar- aóferöir, byggóar á tölvutækni. Michael Jackson hefur flutt fyrirlestra fyrir fjölda áheyrenda - og þá ýmist háskólafólk eöa fólk úr viö- skiptalífinu - i Evrópu, Bandaríkjunum og Japan. Þá hefur hann lýst undirstööu- og meginatrióum aóferóar sinnar i bók, sem gefin var út hjá Academic Press árið 1975, og nefnist "Principles of Program Design". Hann hefur aðra bók i undirbúningi og mun i henni lýsa frekari útfærslu aóferóar sinnar á sviði kerfisgrein- ingar og kerfishönnunar. Úrdráttur úr kynningu Michael Jaksons er birtur hér á næstu blaðsiðu. Boóió verður upp á kaffisopa i fundarhléi. Stjórnin.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.