Tölvumál - 01.02.1982, Blaðsíða 4
4
tölvumAl
Á þessum tíma (1977) var útlit fyrir að mjög víótæk alþjóð-
leg samstaóa næðist um ISO staðal númer 3243.
Róttækasta frávikið frá íslenska ritvélaborðinu var þaó að
stafirnir ö og þ voru færðir til. Ö var flutt um eitt
sæti til hægri, en þ var fært upp í 2. röð aó ofan, hægra
megin viö stafinn ó og lenti þar með utan við hið venjulega
44 lykla ritvélaborð.
En hér væri kannski rétt að rifja upp nokkur atriði um
þróun lyklaborða fyrir 1978.
Þróun lyklaborða á ritvélum.
Þegar tekió var að flytja ritvélar til íslands réóist þaó
aó nokkru af tilviljun eöa þá af þvi hvað var hægast, hvar
menn völdu aó setja islensku stafina. Upphaflega voru al-
gengust borð með 42 lyklum, og voru þá auðvitaó færri val-
kostir. En þróunin varð sú aó nánast hver innflytjandi
hafði sina útgáfu af lyklaborði.
Þetta var náttúrlega til óþæginda fyrir notendur og loks
var svo komið, aö flutt var á alþingi tillaga til þings-
ályktunar um aö samærma geró ritvélaborða. Jónas Árnason
alþm. flutti þessa tillögu af þolinmæói á þremur þingum sam-
fleytt, og var hún samþykkt árið 1953. í framhaldi af þvi
gaf svo menntamálaráðherra út bréf meó leiðbeiningum um
skipan ritvélaboröa fyrir islensku. Hafói Elis Ó. Guómundsson
unnið að gerð borósins í samvinnu við Ottó A. Michelsen og
Einar J. Skúlason.
Notkun hins nýja samræmda borðs varð almenn fljótlega eftir
þetta, en það miðaðist við 44 lykla.
Rétt er aö geta þess þó, að aldrei hefur komist á fullt
samræmi um notkun sértákna, einkum hástöðutákna i efstu
röð borðsins. Ekki eru allir á einu máli um hvaóa tákn
sé æskilegast að hafa, enda er þetta misræmi ekki talið
alvarlegt.
Lyklaborð til gagnavinnslu.
Upphaflega voru lyklaboró til gagnavinnslu mjög frá-
brugðin ritvélaboróum. Skipan lykla og val tákna réóist
af þörfum tiltekins kerfis eða notkunarsviós. Ég hef áóur
á þessum vettvangi rifjaó upp þróun gagnavinnsluborða og
mun ekki endurtaka það. (Tölvumál 7. tbl. 2. árg. okt.
1977) .
1 seinni tið hefur minnkað munurinn á milli tölva og rit-
véla, hvað snertir notkun lyklaboróa og val tákna.
Og hann á enn eftir aó þrengjast, til dæmis meó tilkomu
hinnar vélvæddu skrifstofu framtiðarinnar, sem félag
okkar hefur einmitt nýlega brugðið upp mynd af.
Á þeim vettvangi munu þessi tvö notkunarsvið renna
saman i eitt.