Tölvumál - 01.03.1982, Qupperneq 6
6
TÖLVUMÁL
staösettir annars staöar, og breyta sendingarmátanum
úr asynchron yfir i synchron og koma sendingunum áfram
til stóru tölvanna og öfugt, eins og lýst var hér aö
of an.
2. Einnig má staósetja breyta hjá notanda og tengja viö
breytana, smátölvuskjái og ef til vill prentara.
Þessi tæki eru tengd beint viö breytana en ekki um
simalinur. Breytarnir safna saman sendingum frá
skjánum og breyta þeim á staönum úr asynchron yfir
i synchron og koma þeim áfram um simalinu til stóru
tölvanna og öfugt. Með þessu móti er hægt að hafa
marga smátölvuskjái og prentara á staðnum. 1 stað
þess aö hafa eina linu fyrir hvert af þessum tækjum
til stórrar tölvu, þá er notuð aöeins ein lina milli
breytis og stóru tölvunnar og sendingar eru synchron-
sendingar. Með þessari aöferð sparast ekki aðeins
linur og linukostnaður, heldur er lika mun minni hætta
á villum en þegar sent er um linur með asynchronmáta.
í þessu tilfelli kemur breytirinn i stað stjórntækis
(cluster controller).
Einn slikur breytir er i notkun hér á landi hjá Skýrsluvélum
rikisins og Reykjavikurborgar (SKÝRR). Breytirinn er frá
breska fyrirtækinu Brown's Operating Systems Services i
London en notuð er örtölva frá bandariska fyrirtækinu Mostek.
Breytirinn er tengdur annarri af tveimur tölvxam SKÝRR af
gerðinni IBM 4341, en þessar tvær tölvur eru hvor um sig
þær stærstu hér á landi. Þessi breytir býður upp á þrjú
algengustu afbrigðin af asynchron-sendingarmátamxm, þ.e.a.s.
ADM3A, VT52 og VT100. Þannig geta viðskiptamenn SKÝRR, sem
eiga smátölvur og smátölvuskjái, notað skjái sina til þess
að hafa samband við SKÝRR um simalinu eða ef slikir skjáir
eru ekki fyrir hendi, þá má afla sér þeirra fyrir frekar
.yt veró og nota þá i stað stórtölvuskjáa. Mynd 3 sýnir
tenging. smátölvu meö smátölvuskjá við tölvu SKÝRR. Breyt-
irinn er staðsettur hjá SKÝRR.