Tölvumál - 01.03.1982, Blaðsíða 10
10
TÖLVUMÁL
TILKYNNING FRA FÉLAGI TÖLVUNARFRÆÐINEMA
Félag tölvunarfræðineraa við Háskðla Tslands hefur sett á
stofn atvinnumiðlun í þeim tilgangi að nemendur geti átt
þess kost að fá sumarvinnu er tengist náminu. Um er að ræða
forritun og skyld störf.
Nemendur eru komnir mislangt í námi en strax á fyrsta ári
læra þeir undirstöðu atriði í nokkrum forritunarmálum og
seinna eru kennd kerfisgreining, kerfishönnun og
gagnameðhöndlun.
Ef einhver hefur áhuga á að ráða nemendur úr tölvunarfræði
til vinnu í sumar, vinsamlegast sendið okkur línu og
tilgreinið hvað er í boði.
hað er fjárfesting í framtíðinni að ráða starfsfðlk sem
hefur talsverða þekkingu á þessu sviði.
Félag Tölvunarfræðinema Hl
Verkfræði og Raunvísindadeild
Hjarðarhaga 6
107 Reykjavík
OTTAR KJARTANSSON
SKYRR
HAALEITISBRAUT 9
105 REYKJAVIK
Pósthólf 681
121 Reykjavík