Tölvumál - 01.03.1982, Blaðsíða 7
TÖLVUMÁL
7
Á mynd 4 má sjá tengingu á smátölvuskjá viö tölvu SKÝRR.
Breytirinn er staðsettur hjá notanda.
Mynd 4. Breytir er staösettur hjá notanda.
Ef um mikla notkun er að ræöa er líklegt að viöskiptamenn
kjósi frekar að fá sér venjulega IBM stórtölvuskjái eöa
sambærilega skjái. Hins vegar er enginn vafi á þvi að ódýr
smátölvuskjár nægir ef um litla notkun er aö ræða, t.d.
viö minniháttar forritunarvinnu eða til aö fletta upp í skrám.
Notkun breytis á þann hátt, sem lýst hefur veriö hér að
oian, er þó ekki annað en spor i þá átt aö tengja tölvurnar
sjálfar saman í eitt net. Sem dæmi um slík net má nefna
SNA frá IBM, DECNET frá Digital Equipment Corporation og
ETHERNET frá XEROX. Einhverjar tilraunir í þessa átt munu
hafa verið geröar hjá Reiknistofnun háskólans og reiknistofu
raunvisindastofnunar háskólans, en ekkert slikt net er í
almennri notkun hér á landi enn sem komiö er. Áhugi á slíku
neti er vissulega fyrir hendi og fer vaxandi. Tölvudeild
Flugleióa, Reiknistofa bankanna, Skýrsluvéladeild Sambands-
ins og SKÝRR eru nú aö láta kanna hvort mögulegt sé að koma
upp einu neti umhverfis landið. í þessu neti yröu tölvur
viðkomandi fyrirtækja og skjáir og annar búnaður hjá úti-
búum, umboðsmönnum og embættum úti á landi, sem fyrirtæki
þessi veita þjónustu. Er nú verið aó vinna að þvi aö gera
spá um þá umferð, sem veróur um netið. Þegar sú spá liggur
fyrir veróa teknar upp viðræður við Póst- og símamálastofn-
unina um hvernig þessu neti verói sem best komið á umhverfis
landió.
(Áður birt í "RAFLOSTI", blaði rafmagnsverkfræðinema,
4. árg. desember 1981.)