Vísir - 09.12.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 09.12.1961, Blaðsíða 1
,#?♦ 1 Skipstjórinn gerist hvítþveginn engill. Jdnforseti hæsta verð. Allmikið hefur verið um fisksölur togara erlendis í þessari viku sem nú er að Ijúka, aðallega í Þýzkalandi. Þar seldu 10 togarar, en tveir í Englandi. Togararnir hafa verið með lítinn afla, en fengið gott verð fyrir hann. Má sérstaklega nefna það, að Jón forseti seldi 98 tonn af ísfiski og fékk fyrir það 96 þús- und mörk, en það er hæsta meðalverð, sem íslenzkur togari hefur fengið í Þýzkalandi svo vitað sé. — Um tíma reyndist allgóður afli við Grænland, en síðan versnaði veðrið og dró þá úr aflanum. Brezki togaraskipstjórinn Donald Lister á togaranum Grimsby Town; sem var dæmdur í 200 þús. króna sekt fyrir landhelgisbrot og 2ja mánaða varðhald skilorðs- bundið fyrir að reyna að sigla niður varðskipið Albert, er nú kominn heim til Bretlands á skipi sínu. Hafa birzt við hann stutt samtöl í brezkum blöðum, þar sem hann er nú allkok- hraustur og fer háðulegum orð- um um hinn íslenzka dómstól. Segist saklaus. Dómstóllinn á ísafirði taldi sannað, að hann hefði verið að fiskveiðum eða við undirbún- ing fiskveiða innan íslenzkrar landhelgi. Var hann tekinn nærri uppi við landssteina. En þegar út til Englands kemur, staðhæfir skipstjórinn, að hann sé saklaus. Hann hafi alls ekki verið að veiðum, heldur hafi hann verið á siglingu til ísafjarðar. Hafi hann ætlað að Æskulýðsmessa í Dómkirkjunni. Á MORGUN, sunnudaginn 10. desember verður æskulýðs- messa í Dómkirkjunni. Munu nemendur Gagnfræðaskólans við Lindargötu og Kennara- skólans aðstoða við messu- flutninginn, en síra Bragi Friðriksson mun prédika. Verður þessi messa með líku sniði og æskulýðsguðsþjónust- an s.l. sunnudag, sem var mjög fjölsótt. Fær hver kirkjugestur messuskrá með öllum safnað- arsvörum, sem eru lesin en ekki sungin. Eykur þetta hina almennu safnaðarþátttöku að mun. Hlé mun nú verða á æsku- lýðsguðsþjónustunum fram yf- ir áramót, en þá hefjast þær að nýju, og verða þær haldnar í fleiri kirkjum. Keilir í slipp. NOKKRU eftir hádegi í gær sigldi Ólafur Ófeigsson togaranum Keili hingað inn á Reykjavíkurhöfn, en tog- arann keypti stórútgerð Tryggva Ófeigssonar í sum- ar er leið. Var Keilir tek- inn beint í slipp, til við- gerðar og viðhalds. leggja stýrimanninn á land til læknisaðgerðar og fá gert við radar-tækið. Segist hafa orðið hissa. Hvar sem litið er á málið þykist skipstjórinn vera sak- laus. Það er að vísu ekkert nýtt að þegar talað er við afbrota- menn, þá eru þeir oftast hrein- Framh. á 4. síðu. Ráðið skal skipað jafnmörg- um fulltrúum fiskkaupenda og fiskseljenda, 7 frá hvorum. Fulltrúar fiskkaupenda verða þrír frá Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna, 2 frá Sölusam- bandi íslenzkra fiskframleið- enda, einn frá fiskvinnslu- stöðvum á vegum S.f.S. og einn frá Samlagi skreiðarframleið- enda, þegar ákveða skal verð á fiski rækjum, humar og öðrum sjávarafla, öðrum en síldarafla. Reykjavíkurprestar á fundi. EINU sinni á ári hverju koma allir prestar Reykjavik- urprófastsdæmis saman til fundar, ásamt einum safnaðar- fulltrúa frá hverjum safnað- anna. Heita þessir fundir hér- aðsfundir. Eru þar rædd ýmis mál safnaðanna. f dag fara fram messur af þessu tilefni í þjóðkirkjum bæjarins. Fund- urinn verður svo annað kvöld á heimili dómprófasts séra I .Tón Auðuns Togararnir sem seldu í Þýzkalandi í vikunni eru þess- ir: — Marz seldi 4. des., 120 tonn fyrir 93,000 DM. Egill Skalla- grímsson seldi 5. des., 101 tonn af isuðum fiski fyrir 91,637 mörk og 23 tonn áf síld fyrir Þegar ákveða skal verð á síld, sem veidd er við Norður- og Austurland skal verðlagsráð skipað einum fullltrúa frá S. H., einum frá fiskvinnslu- stöðvum á vegum S.Í.S., þrem frá Félagi síldarsaltenda á Norður- og Austurlandi, einum | frá stjórn Síldarverksm. Ríkis-! ins og einum frá Samtökum síldarverksmiðja á Austur- og og Norðurlandi, auk 7 fulltrúa | fiskseljenda. Þegar verð á síld, sem veidd | er fyrir Suður- og Suðvestur-' landi er ákveðið verði 2 frá S. H., einn frá S.Í.S., tveir frá fé- lagi síldarsaltenda á SV-landi og 2 frá eigendum síldarverk- j smiðja á SV-landi. Ef verðlagsráðið nær ekki j samkomulagi skal ákvörðun vísað til yfirnefndar, sem skip- uð verði 5 mönnum, tveim frá fiskkaupendum, einum frá L. f. Ú., og einum frá sjómönnum, auk oddamanns, sem aðilar koma sér saman um ella verði hann tilnefndur af Hæstarétti. Þannig skipuð fellir nefndin endanlega úrskurð og ræður <vr>caldnr me’riblut.i 'irslit.um. 9,333 mörk eða samtals 124 tonn fyrir 100,970 mörk. Sama dag seldi Neptúnus 195 tonn af síld fyrir 83,787 mörk. Þann 6. des seldi Jón forseti 98 tonn fyrir 96 þús. mörk og Freyr síldarfarm 264 tonn fyrir 129,400 mörk. Þann 7. des. seldi Norðlend- ingur 79 tonn fyrir 73,900 mörk og þann 8. desember seldi Karlsefni 76 tonn fyrir 63.100 mörk og Elliði 70 tonn fyrir 55 þús. mörk. í Bretlandi seldu tveir tog- arar í vikunni. Surprise þann 6. des 93 tonn fyrir 7114 stpd. og þann 7. des. seldi Þormóður goði 158 tonn fyrir 12,709 stpd. og var sá fiskur af Grænlands- miðum. Batnantfi veðvr á miðunum. AKRANES-radio sagði blaðinu í símtali í gær- kvöldi, að komið væriflogn á veiðisvæði síldarbátanna vestur við Jökul. Nókkur suðvestan alda var. Sklpin höfðu orðið síldar vör, en hún var mjög dreyfð og stygg. Bátar voru byrjaðir að kasta um klukkan 8f30 í gærkvöldi, og var þá vitað um einn bát sem kominn var með 350 tunnur sfldar, Anna frá Siglufirði, sem rær frá Akranesi. Duttu á háikunni Tvær manneskjur slösuð- ust á götum Reykjavíkur í vikunni við að detta. Kona að nafni Jódís Jó- hannsdóttir, Laugavegi 72, datt á Laugaveginum og fót- brotnaði Sama dag að kveldi datt maður Kristján Jóns- son að nafni í Veltu- sundi. Hann meiddist á hægra fæti og var fluttur í Slysavarðsofuna. Flugmálafélag íslands heiðraði á flughátíðinni um fyrri helgi einn af frumherjum flugsins, Halldór Jónasson frá Eiðum, er var á meðal þeirra ei- alltaf hafði trú á framtíð flugsins hér á landi. Baldur Jónsson lögmaður formaður félagsins, heiðraði Halldór með því að sæma hann merki Flugmálafélagsins úr gulli. — Var mynd þessi tekin af þeim Halldóri og Baldri á flughátíðinni af ljósmyndara blaðsins I.M. Verðlagsráö sjávanltvegs. Stjórnarfrumvarp um Verðlagsráð sjávarútvegsins var lagt fram og tekið til fyrstu umræðu á fundi neðri deildar Alþingis í gær. Emil Jónsson sjávarútvegsmálaráðherra fylgdi frum- varpinu úr hlaði. Hlutverk verðlagsráðs er þríþætt: 1) að ákveða, lágmarksverð á öllum tegundum fersks sjávarafla, sem seldur er til vinnslu hér á landi eða selja skal í skip eða annað flutn- ingstæki til útflutnings óunninn, 2) að fylgjast með markaðs- verði sjávarafurða á erlendum mörkuðum á hverjum tíma, 3) að safna gögnum um framleiðslukostnað hinna ýmsu fram- Ieiðslugreina sjávarútvegsins svo að safna öðrum gögnum, sem ákvarðandi kunna að verða á sjávarafla.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.