Tölvumál - 01.11.1983, Qupperneq 8
8
FRÉTTIR AF NORRÆNU SAMSTARFI
1 1. tölublaði þessa árgangs var birt yfirlit yfir helstu
atriðin í starfi NDU og hvað áformað var á næstunni í norrænu
samstarfi. Nú skulum við líta á framkvæmd þessara mála og hvað
hefur bæst við.
NordDATA
Ráðstefnan var haldin í Osló seint í júní. Hana sóttu 1800
manns, þar af 8 Islendingar. Á ráðstefnunni voru haldnir 160
fyrirlestrar um tölvumál. Fyrir1estrarnir voru flokkaðir eftir
efni í 29 flokka. Sumir voru um tæknileg málefni, aðrir um
menntunarmál, stjórnun og fleira. Flestir fyrirlesaranna voru
Norðurlandabúar en allmargir voru annarra þjóða.
Næsta NordDATA ráðstefna verður í Helsinki 5.-7. júní n.k., eins
og fram hefur komið í Tölvumálum fyrr í haust. Vonandi verður
þátttaka íslendinga þar góð enda gefst tækifæri til að fræðast um
nýjungar og kynnast öðru fólki með þekkingu á flestum sviðum
þessara mála.
Nánari upplýsingar um NordDATA í Finlandi hafa birst í síðustu
tbl. TÖLVUMÁLA og Kolbrún Þórhallsdóttir gefur einnig nánari
upplýsingar.
Ráðstefna um tölvumál og kennslu
Um miðjan september s.l. var haldin ráðstefna í Reykjavík á vegum
NDU um EDB og skolepo1itik. Þar var rætt um notkun tölva við
kennslu, almenna fræðslu um tölvumál í skólum og stefnumörkun í
þeim málum. Ráðstefnan var mjög vel sótt og dreifing þátttakenda
jöfn frá löndunum fimm. Til ráðstefnunnar var boðið þeim aðilum
sem stjórna og taka ákvarðanir um fræðslumál í hverju landi.
Þátttakendur voru ánægðir með störf ráðstefnunnar en nauðsynlegt
er að fylgja þeim nánar eftir ef árangur á að verða varanlegur.
í því skyni hefur verið boðað til fundar með íslensku
þátttakendunum þann 2. nóv. Sá dagur verður um liðinn þegar
lesendur fá þetta blað í hendur en fréttir af fundinum verða að
bíða næsta tölublaðs.
Aðrar ráðstefnur
Ákveðið hefur verið að næsta haust verði haldin ráðstefna með
svipuðu sniði um fjarskiptanet og þýðingu þeirra. Hún verður í
Noregi .
Árið 1985 verður ráðstefna í Finlandi þar sem áhrif
tæknivæðingarinnar á menningu verða tekin fyrir. Þetta efni
verður afmarkað skýrar þegar fer að líða að ráðstefnunni og
finnst lesendum eflaust þörf á því.