Vísir - 30.12.1961, Síða 6
6
V 1 S 1 R
Laugardagur 30. desember 1961
UTGEFANDI 61ADAÚTGAFAN tflSIR
Ritstjórar Hersteinn Pálsson Gunnar G Schram.
Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson Fréttastjór
ar: Sverrir Uórðarson, Þorsteinn Ó Thorarensen.
Ritstjórnarskritstotur. Laugavegi 27 Auglýsingar
og atgreiðsla Ingóltsstrœti 3. Áskrittargjald er
krónur 45 00 a mánuði — t lausasölu krónur
3,00 eintakið Slmi I 1660 [5 linur). - féiags-
prentsmið|on h.t Steindórsprent h.f. Eddo h.f
v.vv,
Undir áramótin.
ÁriS 1961 er nú senn liðið í aldanna skaut, og að
gömlum sið líta menn um öxl til að átta sig á
þeim lærdómi, sem af atburðum þess má draga, hvernig
mönnum má betur farnast á komandi tímum með því
að færa sér reynsluna í nyt, hvort sem hún hefir talizt
til meðlætis eða mótlætis.
^rið hefir í flestu verið okkur íslendingum hagstætt.
Að sumu leyti hefir það verið hagstæðara en flest
undanfarin ár, þótt sumt hafi að sjálfsögðu verið and-
stætt. En sé litið á afkomu þjóðarinnar í heild, verður
ekki haldið fram með rökum, að ekki hafi vel tekizt.
^fkoma atvinnuveganna hefir verið góð á árinu.
f upphafi þess varð að vísu nokkur dráttur á því,
að vertíð hæfist af fullum krafti, en það átti eðlilegar
orsakir. Sjómenn og útvegsmenn urðu að semja sig
að nýjum aðstæðum, þar sem vafasömum hægindum
uppbótakerfisins hafði verið á brott kippt, og útgerðin
varð að standa á eigin fótum. En þegar torfærum af
þessum sökum hafði verið rutt úr vegi, gekk allt greið-
lega, þótt togaraútgerðin eigi við mikla erfiðleika að
etja, sem reynast þó væntanlega aðeins tímabundnir.
Afk oma landbúnaðarins var einnig betri á árinu en
áður og stafar það af því, að verðlagi hefir verið
haldið stöðugu í landinu og jafnframt hefir almenningi
verið tryggð mikil og góð atvinna allt árið. Ef óánægju-
raddir hafa heyrzt varðandi hag landbúnaðarins hafa
þær fyrst og fyemst og einvörðungu verið af pólitískum
toga spunnar, því að ríkisstjórnin hefir haft það að
aðalstefnumarki sínu að gera öllum atvinnuvegum
jafnhátt undir höfði, sem og eðlilegt er. Þjóðfélaginu
vegnar líka aðeins vel, að allar megmstoðir þess séu
jafntraustar, engin verði veik, svo að hún þoli ekki
þær kröfur, sem til hennar verður að gera. Þá verður
þjóðfélagsbyggingunni allri hætt.
stjórnmálasviðinu hafa orðið nokkur átök, eins og
jafnan vill verða, þar sem menn eru ekki sviftir
öllum réttindum. En það hefir dregið úr því, að skilyrði
sé fyrir slíkum átökum, að þjóðinni skildist á sínum
tíma, að ekki var hægt að halda áfram á þeirri braut,
sem farin hafði verið árum saman. Þegar vinstri stjórn-
in hafði aukið erfiðleikana stórlega, varð að snúa við
og þjóðin óskaði eftir, að það væri gert.
. þær ráðstafanir, sem gerðar voru til úrbóta, voru svo
nauðsynlegar að dómi almennings, að grundvöllur
er ekki til stórátaka. Slíkum votti fyrir vaxandi skyn-
semi almennings, sem komið hefir fram á þessu ári, ber
mjög að fagna.
ANNÁLL
Enn er eitt ár á enda
runnið. Um leið og það kveð-
ur dokum við andartak við,
horfum um öxl og spyrjum:
Fyrir hvað verður ársins
1961 minnzt? Og við get-
um greint nokkra stœrstu
atburðina. Ef við lítum yfir
heimsviðburðina eins og
þeir runnu fram hjá okkur
sjáum við m. a. dauða Ham-
marskjölds, fyrsta geimflug-
ið, valdatöku Kennedys,
dauðamúrinn í Berlín, risa-
atómsprengjur, flokksþing
kommúnista í Moskvu, á-
greining Rússa og Kínverja.
Og ef við lítum okkur nær
og skyggnumst um í íslenzku
þjóðlífi sjáum við atburði
cins og lausn landhelgisdeil-
unnar, heimsókn Ólafs kon-
ungs, háskólahátíðina eða
ritdeilu Hannesar Pétursson-
ar og Gunnars Dal.
'17'ið skulum fyrst rifja upp
’ nokkru nánar það sem
gerðist úti í hinum víða
heimi meðal framandi þjóða.
Það var sagt að það ríkti
friður, en þó var ákaflega
ófriðvænlegt, vígbúnaður og
smástyrjaldir. Menn földu
rýtinginn í erminni.
Innrásartilraun var gerð á
Kúbu og bardagar og víg allt
árið í Kongó. Barizt var í
Bizerta og mikið um mann-
dráp í Alsír. Það var barizt
í Angola og Galvao höfuðs-
maður rændi skipinu Santa
Maria. Indverjar tóku Goa.
Austur í Indó-Kína var ó-
friðlegt og Krúsév skók
(jie&ilecjt
nyar
i
Niður með persónu-
dýrkunina.
brandinn. Hann hótaði Nato-
ríkjum atómárásum og blés
að glóðum í Berlín. Hélt
flugsýningu í Moskvu og
efndi til flotaæfingh við ís-
land.
Kennedy svaraði með
merkilegri ræðu og var að-
alinntak hennar: Við vilj-
um frið, en látum hart mæta
hörðu. Þá fór Krúsév að
draga í land nema hvað
hann hóf nú hinar ægilegu
kjarnorkuvopnatilraunir.
Heima fyrir átti Krúsév í
erfiðleikum, sem sást bezt
af því „að helmingi kornsins
var stolið af ökrum Ukr-
ainu“. Hann átti í deilum
við Kínverja og Albani og
greip til þess örþrifaráðs að
fordæma Stalin, lét mölva
styttur hans og kalla Stalin-
grad Volgagrad. Molotov fór
loksins heim frá Vín, sagt
er að Voroshilov hafi fram-
ið sjálfsmorð, en Furtsevu
var vikið úr embætti eftir
að hún hafði lýst yfir því á
íslandi, að hún væri heið-
ingi. Loks skeytti Krúsév
skapi sínu á smælingjunum,
Finnum og Dönum.
Nýr dans „Twist“ breiddist
út.
T*ess er enn fremur að
-*■ minnast, að Eichmann
var dæmdur til dauða, Hem-
ingway skaut sig og Lum-
umba var drepinn. De Gaulle
var sýnt banatilræði og sam-
særi gert um að ræna Karó-
línu dóttur Kennedys.
Margrét Rósa fæddi son og
Maj Britt múlatta. Flúgrán
tíðkuðust í Bandaríkjunum.
Jomo Kenyatta var sleppt
úr fangelsi og á leiðinni í
ráðherrastólinn. Fáni frjálsr-
ar Tanganjika dreginn að
hún á Kilimandjaro. Empire
State seldur á 200 milljón
dollara. Skógareldar geisa á
Nýfundnalandi og sagt að
glæpamenn í verkalýðsfé-
lögum hafi kveikt í.
Ægilegur hvirfilbylur
skellur yfir Texas. Línu-
braut við Mont Blanc slitn-
ar, milljónahverfi í Holly-
wood brennur. Quadros segir
af sér, Trujillo er drepinn,
Arabalýðveldið liðast í
sundur og Kassem girnist
Kuwait. Luthuli fær friðar-
verðlaun Nóbels.
Dagens Nyheder deyr í
Kaupmannahöfn, Gerhard-
sen og Adenauer tapa þing-
meirihluta sínum. Menderes
reynir að drepa sig, er lífg-
aður við og síðan hengdur.
Öreigabíllinn Jagúar fluttur
inn.
Twist dansinn kemur upp,
bólusetning gegn krabba-
meini í Svíþjóð og mænu-
veikifaraldur í Hull. Merkir
fornleifafundir eru Þjóð-
hildarkirkja á Grænlandi og
Leifsbúðir á Nýfundnalandi.
Elísabeth heimsækir Ghana
og sonur Rockefellers er ét-
inn af mannætum.
Tnnanlands er einnig margs
að minnast. Forseti vor
fer í 15 þús. km ferð um Kan-
ada. Ólafur konungur heim-
sækir landið, horfir á leikrit
Nordals og dregur engan
lax. Breytingar á ríkisstjórn,
Ólafur Thors tekur sér frí.
Bjarni Benediktsson kemur
í staðinn og Jóhann Hafstein
bætist við. Á fjölmennum
landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins er Bjarni kjörinn for-
maður, en Gunnar Thorodd-
sen varaformaður.
Merkasti atburður ársins
er án efa hin heillavænlega
lausn landhelgisdeilunnar.
Það ætlaði að ganga stirð-
lega. Brezkir togarakallar
gera verkfall. Dennis Welch
er gallharður.
Litlu munar — tveimur
undirskriftum, — að annað
stórmál leysist, — handrita-
deilan. Illindi eru út af því
í Höfn. Mótmælaganga og
sagt að íslendingar muni
nota handritin í skósóla og
megi eiga Jörgensen. Málið
frestast en verður leyst.
Ríkisstjórnin heldur fast
við efnahagsmálastefnu sína
þrátt fyrir skemmdarverk
kommúnista óg SÍS í verk-
fallinu stóra.
Eins og alltaf var búizt
við eru ýmsir óánægðir með
efnahagsaðgerðirnar, ekki
sízt hálaunamenn eins og
læknar og verkfræðingar og
margs konar hópar hóta og
framkvæma verkföll: kenn-
arar, lögregluþjónar á ísa-
firði, Sinfóníuhljómsveitin.
Þrátt fyrir góða sumar-
síldveiði gera erfiðleikar út-
vegsins strik í reikninginn,
svo sem í misheppnaðri vetr-
arvei^íð, m. a. vegna verk-
falla s^ómanna í Vestmanna-
eyjum og verkakvenna í
Keflavík, — síðan verkfall
þorsksins og loks verðhrun
á lýsi. Togaraútgerðin er á
kúpunni, sem sést bezt, er
Akranes leysir upp Bæjar-
útgerð sína með 40 millj. kr.
i « r a *i ■ « ii s i