Vísir - 30.12.1961, Qupperneq 12

Vísir - 30.12.1961, Qupperneq 12
VISIR Laugardagur 30. desember 1961 Vísir. Þetta er síðasta blað Vísis á þessu ári, en næ'st kemur blaðið út þriðjudaginn 2. janúar. '' Vísir óskar öllum lesend- um sínum árs og friðar. Mikið áunnizt með viðreisninni segir í Islandsskýrslu O.E.C.D. I Fyrstu hljómplöturnar með Twist-danslögum eru nú farnar að berast til lands- ins. Komu sendingar af þeim í hljóðfærabúðirnar fyrir jól, en gengu fljótlega til þurrðar. Á myndinni sem liér fylg- ir sést Ólafur Haraldsson í hljómplötudeild Fálkans með eina Twist-plötuna. Hann sagði Vísi, að mikil eft- irspurn væri eftir Twist- plötum, fólk væri stöðugt að koma að spyrja um þær, en verður nú að bíða fram í næsta mánuð þegar næsta sending kemur. Vinsælustu Twist-plöt- urnar lieita Twist, Lets Twist again og The Fly og vinsælasti Twistsöngvarinn heitir því fagra nafni Chub- by Checker. Fram að þessu hafa aðallega komið litlar danslagaplötur en í næsta mánuði . eru væntanlegar stórar hæggengisplötur. Þá fyrst er að vænta hinnar mestu innrásar þessarar nýju danslistar. I ársskýrslu Efnahags og framfarastofnunar Evrópu (OECD) sem út kom fyrir nokkrum dögum er fjallað um ís- lenzk efnahagsmál og er niðurstaða skýrslunn- ar sú að áhrif viðreisnar- innar hafi verið mjög hagstæð í íslenzku efna- hagslífi og stuðlað að því að koma fjármálum ríkisins á réttan kjöl. Ársskýrslan er samin af erlendum hagfræðingum og ráðunautum OECD, sem starfa í París. í skýrslunni segir m. a.: „Vel gekk að framkvæma viðreisnaráætlunina árið 1960 og var þeirri fram- kvæmd haldið áfram árið 1961 með minniháttar breyt- ingum. Á fyrstu fimmtán mánuðum áætlunarinnar mátti sjá af henni verulegan árangur: dregið hafði úr of mikilli eftirspurn, verðlag hafði orðið stöðugra eftir ó- hjákvæmilegar breytingar Aðalbrennan m af völdum gengislækkunar- innar, sparnaður innanlands jókst hröðum skrefum og gjaldeyrisstaðan hafði batn- að verulega. Mikið af því, sem þannig hafði áunnizt, fór hins vegar forgörðum vegna langvar- andi verkfalla á fyrri hluta árs 1961, er að lokum end- uðu með almennum launa- hækkunum, sem námu .um það bil 16%. Síðan er bent á að launa- hækkanirnar í sumar hafi farið langt frain lír þeirri framleiðsluaukningu sem átt hafði sér stað eða búast mátti við á næstu árum. Síð- an segir í skýrslunni: „Því var eina leiðin, sem opin var íslenzku ríkisstjórninni sú, að lækka gengi íslenzku krónunhar á nýjan leik.“ Eins og frá var skýrt í Mynd- sjá Vísis í gær hefur lögreglan í Reykjavík veitt leyfi .toíj 93 áramótabrennum annað kvöld. Miklu fieiri umsóknir um brennur bárust, en af öryggis- ástæðum varð að neita mörg- um umsóknum vegna þess að þær voru of nálægt húsum og talið að hætta gæti stafað af þeim. Brepnuleyfi hafa nú verið veitt í 93 tilfellum og yfirleitt að því tilskildu að við hverja brennu sé fullorðirin maður til eftirlits. Langflestar þessara brenna eru litlar, en sumar þó allmyndarlegar. Undanfa- * gamlárskvöld hefur aðalbrenn- an verið á Klambratúni, en vegna skurðgraftar meðfram Rauðarárstígnum og líka vegna þess að Langahlíðin er lokuð fyrir bifreiðaumferð, verða að- eins smábrennur á Klambra- túni að þessu sinni, en aðal- brennan í þess stað í Kringlu- mýrinni austur af kirkju Óháða safnaðarins. Útför Halldórs Steinsen í dag. ÁRDEGIS í dag verður gerð útför Halldórs Steinsen læknis, ! er lézt á jóladag í Landakots- spítala, rúmlega 88 ára að aldri. Halídór var héraðslæknir vestur í Ólafsvík samfleytt frá 1899 til 1934 er hann lét af embætti og fluttist hingað til Reykjavíkur. Endurgreiðsla lána Merkur maður látinn ★ Seðlabankinn (í samáði við ríkisstjórn- ina), endurgreiddi í gær 2 milljónir dollara eða 86 millj. ísl. króna af 7 millj. dollara bráða- birgðayfirdrætti, sem bankinn fékk hjá Gjald- eyrissjóði Evrópu árið 1960. ★ Er þessi endur- greiðsla staðfesting á gengi viðreisnarstefnu núverandi ríkisstjórnar og sýnir hve mjög gjald- eyrisstaðan hefir batn- að. ★ Þegar ríkisstjórn- in tók við og hóf við reisnina í febrúar 1960 átti landið eyrissjóði, Framh. á 3 enga gjald- óreiðu- en siðu. Matthías Þórðarson fyrrv. fornminjavörður, lézt hér í bœn- um í gœr. Matthías fæddist 30. okt. 1877 að Fiskilæk í Melasveit, hann lagði stund á norræna málfræði og fornfræði við Khafnarhá- skóla, og lauk þaðan námi 1902. Hann kom að Forngripasafninu í Reykjavík 1907, sem aðstoðar- maður, en var settur umsjónar- maður þess árið eftir og skipað- ur þjóðminjavörður frá 20. júní 1908. Gegndi hann því embætti þar til fyrir nokkrum árum að hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Árið 1929 var Matthías, ásamt fleirum, sæmdur prófessorsnafn bót fyrir mikil störf hans í þágu íslenzkra vísinda og menning- arsögu. Matthías Þórðarson var mik- ilhæfur og mikilvirkur vísinda- maður og menntafrömuður. PortUgal segir sig úr S.Þ. Þær fréttir berast frá Lissabon höfuðborg Portú- gal, að Salazar einræðis- herra landsins hafi ákveðið að segja landið úr samtök- um Sameinuðu þjóðanna. Mun Salazar leggja þings- ályktun þar að lútandi fyrir þingið á næstunni. Jafnframt þessu mun Salazar segja upp hinum aldagamla vináttusamningi við Breta. Vonbrigði Portúgala. Báðar þessar örlagaríku ákvarðanir eru bein afleiðing af árás Indverja á borgina Goa. Hefur Portúgolum gramizt það ákaflega, að Sameinuðu þjóð- irnar fengust ekki til að for- dæma hina vopnuðu árás Ind- verja og jafnframt hefur það valdið þeim vonbrigðum, að Bretar stóðu ekki við ákvæðin í vináttusamningnum um að koma Portúgal til hjálpar, þeg- ar á þá var ráðizt. Stríð í Afríku. Salazar einræðisherra sagði nýlega í blaðaviðtali að hann byggist við stríði í Vestur Afríku snemma á næsta ári. — Þar eiga Portúgalar litla ný- lendu, sem kallast Portúgalska Gínea

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.