Vísir - 02.01.1962, Síða 3
Þriðjudagur 2. janúar 1962
V í S I R
3
Biskup ræddi skurðgo&a-
dýrkunina í nýársræðu.
Biskup landsins doktor Sig-
urbjörn Einarsson, flutti nýárs-
messu á nýársdagsmorgun í
Dómkirkjunni. Var þessi höfuð-
kirkja landsins þéttsetin kirkju-
gestum. Var ræða biskups mjög
skelegg og sterk á köflum. Dóm-
prófastur séra Jón Auðuns þjón-
aði fyrir altari. Ríkti mikil
stemning í kirkjunni, en kór
hennar hóf söng sinn á nýja ár-
inu með sálminum „Hvað boðar
nýárs blessuð sól?“
Áður en biskup kom að
kjarna máls síns, leiddi hann
tal sitt að tímatalinu, hinu nýja
almanaki, sem menn tækju
fram í dag með nýjum og ómáð-
um dagatölum, sem enginn
fengi ráðið hvaða þýðingu hefði
fyrir einstaklinginn og þjóðar-
heildina. Um síðustu aldamót
hefðu menn fagnað nýrri öld
vongóðir og bjartsýnir, en mann
kyn síðar orðið fyrir miklum
vonbrigðum er tvær heims-
styrjaldir hafa verið háðar, með
hörmungum og mannfórnum.
Kom biskup síðan að kjarna
nýársræðu sinnar, skurðgoða-
dýrkun síðari áratuga og hvern-
ig þessum guðum hefði hverjum
á fætur öðrum verið steypt af
stóli og um þá og verk þeirra
farið hinum hörðustu orðum.
Komst biskup þannig að orði í
ræðu sinni, að kominn væri tími
til þess fyrir oss íslendinga að
segja skilið við slíka dýrkun,
það væri guðstrúin, sem aldrei
brigðist vonum manna og nafn
hans mundi aldrei blikna.
Biskup ræddi og um árásir
er gerðar hafi verið á kirkju
og kristni frá upphafi og til-
raunir manna til að afkristna
lýðinn. í þessu sambandi vitn-
aði biskup í Vefarann mikla frá
Kashmír, og sagði einnig frá
atviki, sem gerzt hafði í latínu-
skólanum fyrir 70 árum. Ný-
sveinn, sem kom í skólann
(Menntaskólann) hafði ekki
kunnað Faðirvorið. Kennara
hans varð þá að orði við hann:
Guð hjálpi þér. — Nýsveinninn
svaraði um hæl: Þess þarf hann
ekki. Skólapiltur þessi hafði
staðið nærri einum þeirra
manna, er á þeim árum barðist
fyrir afkristnun þjóðarinnar.
Biskup studdist einnig í þess-
ari stólræðu sinni við litla bók,
sem hann sagðist hafa fundið
í bókabúð rétt fyrir jólin, litla
bók eftir brezka heimspeking-
inn Bertrand Russel. Þar ræðir
þessi heimskunni spekingur um
framtíð mannsins eins og hún
horfir nú við honum. Komst
Russel að þeirri niðurstöðu, sem
einhvern tíma hefðu þótt mikil
tíðindi, sagði biskup, að einung-
is hugarfarsbreyting, hjartalag
mannsins, geti bjárgað mann-
kyni frá því að lenda í stór-
styrjöld er eyða mundi öllu lífi
á jörðu.
Hér hefur aðeins verið stikl-
að á nokkru af því helzta í stól-
ræðu biskups í Dómkirkjunni
á nýársdagsmorgun. Vafalítið
var þessi áhrifamikla ræða bisk-
ups ein sú sterkasta, sem þessi
mikli ræðusnillingur og kirkju-
leiðtogi vor hefur haldið í pré-
dikunarstóli.
Sigurbjörn biskup lauk ræðu
sinni með því að biðja landi og
þjóð og atvinnuvegum hennar
til lands og sjávar, blessunar
guðs.
Útvarpið
Framh. af 5 síðu.
heyrist þar nú orðið oft. Penn-
ario þessi er fyrir þá hluti
merkilegur, að það er rækilega
kynnt, að hann leiki á tvö pí-
anó. Ég er þess fullviss, að
hlustendur kunna vel að meta
slíka leikni, en ég veit, að það
veldur fleirum en mér miklum
heilabrotum, hvernig snilli-
menni þetta fer að því að fremja
slíkar kúnstir. Standa píanóin
hlið við hlið, og ef svo er, hve
langir eru þá handleggir hr.
Pennarios? Eða eru píanóin
andspænis hvort öðru og leik-
ur maðurinn með einni hendi
á hvort hljóðfæri? Eða hefur
Pennario einfaldlega fjórar
hendur?
Þórir S. Gröndal.
Bezt að augiýsa í VISI
SATT
komið út
Jamíarhefti tímaritsins Satt
er nýkomið út. Að venju flyt-
ur ritið ýmsar athyglisverðar
og skemmtilegar greinar.
j Satt hefur löngum verið þekkt
fyrir hinar íslenzku frásagnir
sínar, og nú birtist þar þáttur
af Þorleifi ríka, og lýst þar
uppvaxtarárum hans.
Þá birtir ritið sérstæða grein
um atburð, sem átti sér stað í
Noregi á stríðsárunum, er verið
var að hjálpa flóttafólki yfir
sænsku landamærin. En það
krafðist fórna, og eftirleikur
þessa atburðar vakti löngu síð-
ar miklar deilur í Noregi.
„Samsæri þagnarinnar“ nefn-
ist grein um óvenjulegan
ástríðuglæp, sem framinn var
í Frakklandi.
Ýmsar fleiri greinar eru í rit-
inu, s. s. „Sjóhrakningar11, „Um
lífið að tefla“, „Dauðalestin“,
„Draumur, sem kom fram“ —
dulræn frásögn o. fl.
Ritið er hið vandaðasta að
frágangi, að venju.
Stofnað hefir verið kín-
verskt-albanskt skipafélag,
og er þar ný sönnun þess,
að Kína er orðið Albaníu
sá bakhjarl sem Sovétríkin
Iengi voru.
Tilkynnt er í London, að
Elisabet drottningarmóðir
heimsækir Kanada í júní
næstkomandi.
Hcrbergisþerna
óskast
Hótel Skjaldbreið.
Tilkymiiiig
nm söliiskattsskirteini
Hinn 31. desember n.k. falla úr gildi skírteini þau, sem
skattstjórar og skattanefndir hafa gefið út á árinu 1961,
skv. 11. gr. laga nr. 10 1960 um söluskatt.
Endurnýjun fyrrgreindra skírteina hefst 2. janúar n.k.
og skuiu atvinnurekendur snúa sér til viðkomandi skatt-
stjóra eða skattahefndar, sem gefa út skírteini þessi. Allar
breytingar, sem orðið hafa á rekstri, heimilisfanga eða þ.h.
ber að tilkynna um leið og endurnýjun fer fram. Nýtt skír-
teini verður aðeins afhent gegn afhendingu eldra skírteinis.
Eyðublöð fyrir tilkynningar um atvinnurekstur og
söluskattsskírteini fást hjá skattstjórum og skattanefndum.
Reykjavík, 30. des. 1961.
Skattstjórinn í Reykjavík