Vísir - 02.01.1962, Side 4

Vísir - 02.01.1962, Side 4
4 V t S I R ) Þriðjudagur 2. janúar 1962 SVEINN VALFELLS for- stjóri var, eins og áður hefur verið getið, þátttakandi í Frakltlandsferðinni, sem nokkrum íslendingum var boðið í, að tilhlutan franska ambassadorsins í Reykjavík, herra Jean Brionval, og franska vararæðismannsins herra C. Cocheret, til þess að kynna sér ýmsar greinar fransks iðnaðar. Þar sem ferðin tók stuttan tíma varð að taka ákvarðanir um val einhverra sérstakra greina, sem mætti fá nokkur kynni af á skömmum tíma. Var að sjálfsögðu úr mörgu að velja, en að athuguðu máli mátti telja hyggilegast að velja einhverjar þær greinar atvinnulífsins, sem telja mætti að ættu.sér ein-' hverja framtíðarmöguleik i á íslandi. Af hendi Sveins Val- fells urðu fyrir valinu þessar greinar: 1. Niðursuða fisks. 2. Verksmiðjuframleiðsla og samsetning liúsahluta og 3. Sútun og vinnsla sauð- skinna. Segist Sveini svo frá ferð- um sínum, kynnum og at- hugunum: Það er almennt viður- kennt, að Frakkar standa mjög framarlega á sviði of- angreindra iðngréina, hvar á móti við Íslendingar erum á frumstigi á þessum sviðum og gætum því margt af Frökkum lært. f niðursuðuverksmiðju. Mánudaginn 2. október var gerð heimsókn til Syndi- cat Des Constructeurs De Machines Et Appareils pour Les Industries Chemiques Et Les Industries De L’Ali- mentation. Rætt var við Mr. Pouch, sem gaf ýmsar upp- lýsingar um vélaiðnað Frakka. Um kveldið var haldið með járnbraut til Nantes. Daginn eftir var heimsótt firmað Sudry, sem framleið- ir vélar fyrir niðursuðuiðn- að. Var verksmiðjan skoðuð ásamt framleiðslu hennar. Um eftirmiðdaginn voru skoðað tvær verksmiðjur, er suðu niður sardínur. Var það eftirtektarverð framleiðsla, vel skipulögð og útbúin miklum vélakosti. í stað þess að sardínurnar væru reyktar, sem hér er venja, voru þær steiktar og því næst lagðar í olivenolíu með nokkru kryddi og sneið af sítrónu. Væri það að vissu leyti at- hyglisvert fyrir íslenzkar niðursuðuverksmiðjur að at- huga þessa verkunaraðferð, þar sem franskar sardínur, þannig verkaðar, eru mjög eftirsóttar og þessi verkunar- aðferð virðist krefjast minni vinnu en reykingin. Um kveldið var svo haldið með járnbraut til Parísar. Næsta dag var heimsótt fýrirtækið Société Coignet. Þetta er stórt og gamalt verkfræði- og byggingafyrir- tæki, sem á sér merka og langa sögu. Hefir fyrirtækið staðið fyrir mörgum stór- framkvæmdum, sem hafa vakið á sér heimsathygli sökum snilli og framkvæmd nýrra hugmynda. Fyrirtækið hefir upp á síðkastið snúið sér að fjöldaframleiðslu á „standard“ húsahlutum í verksmiðju og samsetningu slíkra húsahluta á bygging- arstað og með þessari aðferð tekizt að framleiða íbúðar- húsnæði á ódýrari hátt en tekizt hefir mpð eldri bygg- ingaraðferðum. Verksmiðja fyrirtækisins, er skoðuð var, er staðsett í útjaðri Parísar- borgar. Er hún skipulögð til framleiðslu á 1000 til 1200 íbúðum á ári. Er þar öllu mjög haganlega fyrir komið og undursamlegt, hve fáir menn geta afkastað þar miklu. Er það að þakka mjög fullkomnu og vélrænu flutn- inga- og vinnslukerfi, þar sem vélaorka er notuð til sem flestra framkvæmda, sem er stjórnað að miklu leyti með rafeindakerfi úr stjórnpalli, sem er staðsettur miðsvæðis í verksmiðjunni. Sem dæmi upp á hraða fram- kvæmdanna má nefna, að heilir húsveggir eru steyptir og teknir úr steypumóti full- gerðir aðeins 3% klst. eftir að steypunni hefir verið rennt í mótin. Auðsjáanlegt er að útbún- aður verksmiðjunnar er mjög kostnaðarsamur, enda afköstin samsvarandi mikil. Fljótt álitið má gera ráð fyr- ir, að slík verksmiðja myndi kosta of mikið fyrir íslenzkar aðstæður,' enda afköst meiri en íslenzkar þarfir krefðust. Skoðaðar voru íbúðarsam- stæður á Dyggingarstað. Þar var verið að reisa „stand- ardiseruð“ fjölbýlishús, 6 hæða há. Voru tvær íbúðir á hverri hæð við sama stiga- hús. Var hæðinni þann veg fyrirkomið, að hver íbúð hafði innri forstofu, fata- skápa, eldhús, bað og hrein- lætisherbergi. Auk þessa | voru á hæðinni 7 stofur eða, íbúðarherbergi, sem j’-mist' mátti skipta þannig að önnur j íbúðin hefði þar af 2 og hin 5, eða skiptingin væri 3 og 4. Þannig fengust á sama flat- armáli 2, 3, 4 og 5 herbergja íbúðir, allt eftir þörfum' hverrar einstakrar fjöl-j skyldu, án þess að þurfa að víkja frá ,,standardiseringu“' á „elimentunum", sem notuð | voru í hvert íbúðarherbergi hússins. Virtist frágangur1 allur á húsum þesSum vera | mjög góður og smekklegur. ( Var húsunum skilað í hend- ur kaupenda með fullgerðum I garði, grasflötum og blóma- reitum. Að loknum degi var haldið með járnbraut til borgarinn- ar Lyon í Rhondalnum. Steypuvélar. Fimmtudag 5. október að morgni var haldið til bæjar- ins Villefrance sur Soanne. Þar er fyrirtækið Bonnet Calad. Það framleiðir hvers konar vélar til steinsteypu- gerðar og selur vélar og skipuleggur verksmiðjur til framleiðslu á húsum og húsa- hlutum. Þetta fyrirtæki sýndi skipulag á verksmiðju með minni framleiðslu en firmað Coignet. Hún var ekki með eins vélrænum út- búnaði og ekki eins vinnu- sparandi, en virtist jafnframt vera miklu ódýrari í stofn- kostnaði en sú, sem skoðuð var í París. Hins vegar pass- aði hún betur, hvað fram- leiðslumagn snerti, fyrir ís- lenzkar þarfir. Þeir höfðu sérhæft sig á og sýndu teikn- ingar og skipulag. á verk- smiðju, sem skyldi fram- leiða, sem samsvaraði 300 íbúðum árlega. Aðferð þeirra á fyrirkomulagi hinna ein- stöku húshluta (elimenta) og samsetning þeirra var með nokkrum öðrum hætti en þeirra, er skoðaðir voru í París, enda þeirra einkaleyf- isfyrirkomulag og aðferð. Þeir höfðu reist fjölmarg- ar verksmiðjur af þessu tagi, fyrir utan Frakkland* bæði í Asíu, Afríku og Suður-Ame- ríku, þar sem framleiðendur hvers staðar ráku verksmiðj- urnar gegn samningsbundnu einkaleyfisgjaldi til eigenda höfundarréttarins. Meðal annars, er þeir sýndu og á- huga vakti, voru, „stand- andi“ barna- og gagnfræða- skólar, er var hægt að panta af „lager“. Föstudaginn 6. okt. var svo haldið til bæjar, er ligg- ur góðan spöl suðvestur af Lyon, er nefnist Annonay. Þetta er þúsunda ára gamall bær í fjallahéraði, hvar stunduð hefir verið sauðfjár- og geitarækt um langan ald- ur. Jafnframt er bærinn þekktur fyrir sútun skinna, sérstaklega af sauð- og geit- fé, um árhundraða skeið. Fyrir móttöku stóð fyrir- tækið Etablissement Mercier Fréres. Þetta fyrirtæki rek- ur framleiðslu á álls konar vélum til sútunar og með höndlun skinna. Það virtist vera mjög stórt og fullkomið í sinni framleiðslu, en sá var hængur á, að vélarnar virtust flestar vera of stórar og afkastamiklar fyrir ís- lenzkar kringúmstæður, svo af þeim gætu fengizt not sem skyldi og verð þeirra krefðist. í Annonay voru einnig skoðaðar sútunarverksmiðj- ur, er fyrst og fremst unnu lamba- og kiðaskinn, aðal- lega til hanzkagerðar. Verk- smiðjubyggingarnar voru æði fornfálegar, enda fleiri hundruð ára gamlar. Þrátt fyrir góðan vélakost var þar mikið um handavinnu við frágang á gæðaflokk, enda virtust sútararnir vera mjög þjálfaðir og kunnáttumenn í sínu fagi. Að loknum degi var svo ekið til Lyon og þaðan með járnbraut til Parísar og var þar með lokið kynnisförinni. Lögreglan í Kaliforníu hefir fengið fyrirmæli um að gæta vand- lega heimilis ekkju Clark Gables, þar sem yfirvöldum barst njósn um, að ætlunin kynni að vera að ræna syni hennar og hins dáða leikara. Drengurinn er orðinn 9 mánaða gamall. \

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.