Vísir - 03.01.1962, Page 5
Miðvikudagur 3. janúar 196i
V í S I R
5
Auglýsing
um umferð í Hafnarfirði.
Að fengnum tillögum bæjarstjórnar Hafnarfjarðar hafa
verið settar eftirfarandi reglur um umferð í kaupstaðnum
skv. heimild í 65. gr. umferðarlaga nr. 26 frá 2. maí 1948:
1. Aðalbrautir
Auk þess sem greint er í auglýsingu nr. 163 frá
1960 hefur verið ákveðinn aðalbrautarréttur á eftirtöldum
gatnamótum:
a) Vegamótum Austurgötu og Linnetsstígs, þannig
að umferð um Austurgötu hefir biðskyldu gagnvart umferð
um Linnetsstíg.
b) Vegamótum Tjarnarbrautar og Mánastígs og
Tjarnarbrautar og Arnarhrauns, þannig að umferð frá
Mánstígs og Arnarhrauni hafi biðskyldu gagnvart umferð
um Tjarnarbraut.
c) Vegamótum Hverfisgötu og Tjarnarbrautar, þann-
ig að umferð um Tjarnarbraut hafi stöðvunarskyldu gagn-
vart umferð um Hverfisgötu.
2. Takmörkun á bifreiðastöðum
a) Bifreiðastöður eru bannaðar á Strandgötu að
vestanverðu við götuna frá Vesturgötu að Linnetsstíg og'
frá Landssímahúsinu að Lækjargötu.
b) Að austanverðu við Strandgötu eru bifreiðastöður
bannaðar milli Linnetsstígs og hússins nr. 27 við Strandgötu.
c) Að vestanverðu við Strandgötu frá Landssímahúsi
að biðstöð strætisvagna við Linnetsstíg eru bifreiðastöður
takmarkaðar við 15 mínútur í einu frá klukkan 9—19 virka
daga nema laugardaga frá kl. 9—12. Sama regla gildir að
austanverðu við Strandgötu frá húsinu nr. 27 að Lækjar-
götu.
Auglýsing nr. 163 frá 26. ágúst 1960 um umferð í Hafnar-
firði breytist í samræmi við þetta.
Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli.
Lögreglustjórinn í Hafnarfirði, 29. des. 1961.
Björn Sveinbjörnsson,
settur.
Matreiðslumaður
eða kona óskast
GILDASKÁLINN
Aðalstræti 9, sími 12423.
Creiðsla útflutningsbóta
samkvæmt lögum nr. 4/1960.
Það tilkynnist, að skrifstofa útflutningssjöðs að
Klapparstíg 26 hefur verið lögð niður og að greiðsla
/
bóta úr sjóðnum fer nú fram í gjaldeyriseftirliti
Seðlabankans.
Frestur til þess að leggja fram bótakröfur er
til 1. júlí 1962.
Reykjavík, 2. janúar 1962.
SEDLABANKI ÍSLANDS
"71 Ásgeir Þor- verður nú samt engum illt af
Rt steinsson verk þesSum inndælis krásum, en
Wg fræðingur hélt betra hefði nú samt verið að
tjFTHim ? 1 * gœi'kvöldi geyma eitthvað af öllum þess-
0 r i n d i um um mat, því ekki skemmast
'• tæknimennt- segulböndin.
un og tilrauna Þórir S. Gröndal.
mwMm skip- Hann
Best að
auglýsa í
Vísi
geroi meira
en að drepa á vandamálið, sem
skortur á tæknifræðingum er,
því hann benti á raunhæfar
leiðir til úrbóta. Hann taldi upp
þær menntastofnanir, sem
veita undirstöðufræðslu í
tæknimenntun og benti á, hvar
hægt væri að gera viðunandi
breytingar til reynslu. Væri
óskandi að umræður færu fram
um þessi mál, og fyrirsvars-
menn skólamála létu uppi sitt
álit. Einnig ræddi Ásgeir, í sínu
ágæta erindi, um þörf íslend-
inga fyrir tilraunaskip til að
leita nýrra miða og reyna nýj-
ar fiskveiðiaðferðir.
Thor Vilhjálmsson, rithöf-
undur, las kafla úr bók sinni
„svipir dagsins og nótt“. Þótt
margt heyrðist þarna furðulegt
og skrítið og kaflinn væri í
heild sundurlaus, þá hafði ég
gaman af þessum lestri. Margar
af lýsingunum voru afar
snjallar, sérstaklega þegar sagt
var frá leikfangaframleiðand-
anum, sem sífellt var með and-
litið á hreyfingu, eins og hann
væri að leita að virðulegum
svip til að bera, og konu hans
hinni víðfeðmu, feitu mad-
dömu, sem öll var svo mjúk,
utan þess, að þrennt var hart
sem grjót: augun, tennurnar
og hjartað. Lestur Thors var
allgóður, en það eina, sem að
mátti finna var það, að hann
las heldur hratt og hefur það
líklega stafað af því, að honum
var ætlaður of naumur tími.
Söngmálaþáttur þjóðkirkj-
unnar nefndist lítill þáttur, sem
dr. Róbert A. Ottósson, söng-
málastjóri sá um. Hann sagði
frá tveimur gömlum jólasálm-
um, raulaði þá og spilaði, og
gerði allt þetta svo skemmti-
lega og áheyrilega, að flestir
munu hafa haft ánægju af.
Þetta sýnir, að sérhæft efni má
færa í þann búning, að fjöld-
inn hafi fróðleik og skemmtun
af.
Um hátíðarnar hafa flestir
fengið meira en nóg af þungum
mat og hjá sumum er maginn
enn allur úr lagi genginn. Það
er því víðast etið léttmeti og
sumir eta jafnvel ekkert til að
ná af sér jólaspikinu. En þeir
í útvarpinu halda áfram að
bera að okkur þungmeti; sin-
fóníusteikur, konsertrjúpur, o.
fl. í gærkvöldi voru aftur tón-
leikar í útvarpssal og er það
annað kvöldið í röð, sem Sin-
fóniuhljómsveitin styttir hlust-
endum stundirnar. Vonandi
Stólka óskast
Verkamannaskýlið
Tryggvagötu.
Úígerðarmemi
1—2 vélbátar 70—150 tonn óskast í viðskipti á komandi
vertíð í verstöð sunnanlands. Upplýsingar í Sjávarafurða-
deild S. í. S. Sambandshúsinu, sími 1-70-80.
Vinningsnúmer
i happdrætti Styrktarfélags vangeflnna
Dregið 23. desember s.l.:
U6129 69683* 7390L
Vinningar, 3 Volkswagenbifreiðir.
STVIIKTAIIF'ÉLAG VAIVGEFIMA
Idgíöld
áil iSj ú k rasii iula lle>kj|avikiii*
hafa verið ákveðin kr. 34.00 á mánuði frá
1. jan. 1962 að telja.
Sjnkriisainlag Vteykjavíkiii*
Ráðskona
óskast í góða verstöð. Upplýsingar í Sjávarafurðadeild S.
í. S. Sambandshúsinu, sími 1-70-80.
VIST
Ég er dönsk, 17 ára gömul, og óska eftir vist frá 1.
febrúar næstkomandi, hjá fjölskyldu me? tvö börn í
Reykjavík.
Lonny Koch, Kikkenborg 11,
Vejle, Jylland, Danmark.
I