Vísir - 03.01.1962, Qupperneq 7
Miðvikudagur 3. janúar 1962
V t S I R
7
Gunnar Thoroddsen:
Mörg eru merki þess, að
viðreisnin gangi vel og sé
að ná sér eftir þá atlögu, sem
að henni var gerð á liðnu
sumri.
Meðal annarra votta þess
eru gjaldeyrisstaðan, spari-
féð og hagur ríkissjóðs.
Gjaldeyrisvarasjóður
að skapast.
Gjaldeyrisskorturinn og
hallinn á viðskiptunum við
útlönd var ein aðalorsök
þeirra víðtæku efnahagsað-
gerða, sem ráðizt var í fyrir
tveim árum. Viðreisnin mið-
aði að jafnvægi í gjaldeyris-
málum, en það er frumskil-
yrði fyrir heilbrigðu atvinnu-
og fjármálalífi, frjálsri verzl-
un og stórfelldum verklegum
framkvæmdum til heilla
landi og lýð.
Nú hefur skipt mjög um
til betra horfs.
Þegar stjórnin tók til
starfa fyrir röskum tveim ár
um, var hrein gjaldeyris-
skuld íslenzku bankanna um
150 miUjónir króna, miðað
við núverandi gengi.
Tölur liggja ekki ennþá
fyrir um gjaldeyrisstöðuna
markaðstregðu, þegar slikt
ástand eða atburði ber að
höndum. Gjaldeyris-varasjóð-
ur skapar landinu einnig
lánstraust, en án þess má
ekki vera við uppbyggingu
atvinnuvega og nýtingu auð-
(vjaldejrir
nú um áramót. En í lok nóv-
embermánaðar 1961 var í
stað skuldar komin hrein
gjaldeyriseign, er nam 394
milljónum króna.
Þessi ánægjulegu umskipti,
þessi ótvíræði bati, hafa gert
Seðlabankanum kleift að
endurgreiða nú fyrir ára-
mótin 86 milljónir króna, af
því yfirdráttarláni, sem tek-
ið var hjá Evrópusjóðnum í
upphafi efnahagsaðgerðanna
í því skyni að greiða lausar
gjaldeyrisskuldir og gefa
verzlunina frjálsari en fyrr.
Nú stefnir óðfluga að því
marki, að ísland eignist gild-
an gjaldeyris-varasjóð. Slík-
ur varasjóður er nauðsyn
íslendingum sem öðrum
þjóðum, til þess að mæta
áföllum vegna aflabrests eða
einstaklinga. Lánastarfsemi
til íbúðabygginga, atvinnu-
rekstrar og hvers konar
framkvæmda kemst ekki í
gott horf, nema sparifjár-
stofnun sé mikil og almenn.
Árið 1960 jókst sparifé
landsmanna um röskar 350
milljónir. í nóvemberlok
1961 var aukningin á því ári
orðin 363 milljónir. Er því
sýnilegt, að sparifjáraukning
hefur orðið stórum meiri allt
linda, eins og ætlað er og árið 1961 en áður hefur
fyrirhugað með fram-
kvæmdaáætlun næstu ára.
Nú eru það nær fjögur
liundruð milljónir, sem við
eigum í gjaldeyris-varasjóði.
þekkzt.
Tekjuafgangur
hjá ríkissjóði.
Hallalaus ríkisbúskapur er
sparifé
Sú fjárhæð þyrfti að tvöfald-
ast áður langt líður.
Sparifé eykst.
Söfnun sparifjár er undir-
mikilvægur þáttur í efna-
hagsaðgerðunum.
Á árinu 1960 varð, þrátt
fyrir mikla óvissu um þróun
ríkisfjármála, er fjárlög voru
staða velmegunar þjóðar og sett, nokkur greiðsluafgang-
ur. Það er nú þegar ljóst,
að tekjuafgangur varð einn-
ig hjá ríkissjóði á liðnu ári.
Enn liggur ekki fyrir, hversu
mikill, en nokkru meiri verð-
ur hann en 1960.
I rúman hálfan annan
áratug hefur ríkissjóður
staðið í skuld á viðskipta-
reikningi sínum í Seðla-
bankanum um hver ára-
mót. I árslok 1960 nam sú
skuld 28 milljónum króna
samkvæmt ríkisreikningi,
En í árslok 1961 átti ríkis-
sjóður inneign, í fyrsta
sinn um áramót síðan árið
1945. Var inneignin í
Seðlabankanum nú 39
milljónir króna.
Lausaskuldir ríkissjóðs
námu í lok ársins 1960
fjörutíu og þrem milljón-
um króna. Við lokun rík-
isreiknings fyrir árið 1961
munu allar lausaskuldir
ríkissjóðs hafa verið
greiddar að fullu.
ríki §; éHitr
Land-Rover kynntur.
FYRIR jólin komu hingað til
landsins allmargir Land Rover-
bílar, hin fyrsta stórsending
þessara bíla eftir að bílainn-
flutningurinn var gefinn frjáls.
Um leið og þetta gerðist kom
til umboðs bílanna hér, Heklu
h.f., fulltrúi frá verksmiðjun-
um til þess að kynna sér reynslu
manna af bílunum, og til þess
sjálfur að öðlast nokkra þekk-
ingu af þeim kröfum og óskum
sem gerðar eru á hendur bílun-
um hér. Lauk þessari heimsókn
fulltrúans sem heitir George
Coe, með því að forráðamenn
Heklu kynntu hann fyrir blaða-
mönnum. Síðan bauð hann þeim
í mjög óvanalega ökuferð hér 1
útjaðri bæjarins, svona til þess
að sýna þeim getu hins brezka
Rovers. Var ekið upp í gamlar
malargryfjur fyrir austan
gamla golfvöllinn við Öskju-
hlíðina. Þar var jeppanum ek-
ið upp og niður snarbrattar
malarskriður, og þótti mönn-
um nóg um hve bíllinn ýmist
reisti sig eða stakk sér beint
niður, án þess, að því er virt-
ist, væri nokkuð teflt um of.
Einn af starfsmönnum umboðs-
ins lék þessar sömu listir og
Coe, á þessari óvenjulegu
bílabraut sem líklega eng-
inn blaðamannanna vissi að til
væri í bænum. Svo mikinn
hliðarhalla þoldi bíllinn, að
furðu sætir. Var þessi ökuför
öll hin eftirminnilegasta.
Coe ræddi síðan við blaða-
menn um verksmiðjurnar sem
bílana framleiða, en þeir eru
eftirstríðs-framleiðsla, um ýmsa
erfiðleika sem á því hafa verið
hér á landi að gera út bíl, m. a.
vegna varahlutavandræða. Allt
stendur þetta til bóta hér hjá
Heklu, sagði Coe, enda fer ekki
hjá því, þegar þess er gætt að
í september hafa verið pantaðir
hjá verksmiðjunum héðan frá
umboðinu 150 bílar. Við vitum
að fleiri munu koma í kjölfar
I {')<<’. >*■ ! I' i • J r 1 J l <
þessara bíla, því Land Rover
hentar vel fyrir íslenzka stað-
hætti og hér er mikill áhugi
fyrir diesel-Land Rovernum,
enda eru allir þeir 30 bílar sem
nú komu, af dieselgerðinni. Ég
veit að það mun gleðja hús-
bændur mína heima í Bretlandi,
að heyra það, að margir „gaml-
ir“ Land Rovereigendur eru á
meðal þeirra er nú fá sér nýj-
an bíl. Ég vona að hann reyn-
ist þeim eins vel og jafnvel bet-
ur en sá gamli. Óneitanlega er
húsið á þeim betra, en á eldri
gerðinni, svo nokkuð sé nefnt.
Einnig hafa verið gerðar á þeim
margar aðrar breytingar sem
veigamiklar eru að okkar dómi.
Forráðamenn Heklu skýrðu
frá því, að 12 ár væru liðin
frá því fyrstu Land Rover-jepp-
arnir komu til landsins. Eftir
að bílainnflutningurinn var
gefinn frjáls hefur áhuginn
fyrir bílunum vaxið gífurlega
og horfur á því að mikill fjöldi
bíla verði fluttur inn þegar á
næsta vori.
Samgöngur nyrðra
hafa stórhatnað.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri í morgun.
Hlýviðri er nú norðanlands,
7 stiga hiti í gær og 3 stig í
morgun. Snjór hefur sjatnað
til muna og allir vegir um
Eyjafjörð færir orðnir og auk
þess víða um Þingeyjarsýslu.
Meðal annars er fært orðið
um Dalsmynni til Húsavíkur,
en sú leið var ófær um jólin.
Þá er og fært stærstu bílum yf-
ir til Mývatnssveitar. Norður-
leiðabíll kom frá Reykjavík í
gærkvöldi og sagði færi gott.
Hann fór suður aftur í morgun.
Miklar flugsamgöngur eru
um þessar mundir við Akur-
eyri. í gær komu 3 flugvélar og
í dag er von á 4 flugvélum til
að sækja 120 farþega sem bíða
fars suður, mest skólafólk og
vertíðarfólk.
Gamlárskvöld var einkar ró-
legt á Akureyri og lögreglan
þurfti lítil afskipti að hafa af
fólki á almannafæri, enda var
ölvun með minnsta móti. Sext-
án brennur voru leyfðar í út-
hverfum bæjarins og sótti þang-
að margt fólk. Þá voru ára-
mótadansleikir í 5 samkomu-
húsum um kvöldið. Fyrir utan
þetta var fátt um fólk á götum
bæjarins. Engin slys eða óhöpp
hentu, hvorki af sprengjum né
völdum umferðar.
Bandaríkjastjórn beitir
áhrifum sínum til þess að
stjórn Hollands og stjóm
Indónesíu ræðist við um
ágreininginn út af liollenzku
Nýju Guineu.