Vísir - 03.01.1962, Qupperneq 12
VISIR
Miðvikudagur 3. janúar 1962
Samningaumleitanir prins-
anna þriggja í Laos strönd-
uðu á því, að Boun Pum
krafðist þess, að menn úr
hans flokki færu með em-
bætti landvarna og innan-
ríkismála.
®y ltiogin
máítvana,
Portúgalsstjórn kveðst hafa
sannanir fyrir því, að kommún-
istar hafi staðið að baki bylt-
ingartilraunarinnar í landinu.
Fimm liðsforingjum hefur ver-
ið vísað úr liernum og verða
þeir leiddir fyrir rétt, en hlut-
Ljóðskáld
hlutu
styrkinn.
Daginn fyrir gamlársdag
var veitt hin árlega styrk-
veiting úr Rithöfundasjóði
Ríkisútvarpsins. Fór styrk-
veitingin fram við athöfn í
Þjóðminjasafninu og til-
kynnti dr. Kristján Eldjárn
þjóðminjavörður um veit-
inguna, en hann er formaður
sjóðsstjórnar.
Að þessu sinni fengu styrk-
inn þeir Jón úr Vör og Matt-
hías Jóhannessen fyrir ljóða-
gerð sína. Hlutu þeir hvor
15 þús. krónur.
Síðan sjóðurinn var stofn-
aður árið 1956 hafa alls átta
skáld og rithöfundar hlotið
styrk úr sjóðnum.
j deild þeirra og fleiri liðsfor-
ingja í samsœrinu er til rann-
sóknar. — Portúgalsstjórn seg-
( ir ennfremur, að hún hafi sann-
’ anir fyrir, að byltingartilraun-
in hafi verið einn liður áœtlun-
ar kommúnista um að koma
stjórninni frá og hrifsa til sín
völdin.
Þvi er haldið fram af mönnr
um, sem hafa kynnt sér sér-
staklega málefni Portúgals, að
i þessi tilraun hafi verið svo mátt
vaná, að varla sé hægt að tala
um hana sem iyltingartilraun,
en hún
sé engu ómikilvœgari fyrir
það, þar sem hún sé gerð
til þess að leiða athygli alls
heimsins að einrœðisstjórn-
inni í Portúgal, alveg eins
og taka hafskipsins Santa
Maria átti sér stað í sama
skyni, — til þess að gera
Portúgalsstjórn ertfitt fyrir,
er henni kemur verst. Nú
hafi stundin verið valin, er
Portúgalsmenn voru hraktir
frá Goa.
Einn þessara sérfræðinga hef-
ur komízt þannig að orði, að
stjórnarandstaðan viti vel, að
vonlaus sé árangur byltingar,
meðan dr. Salazar hafi sömu
tök á hernum og nú, — um
þessi tök verði að losa hægt
og hægt, og sannfæra menn um
það í Portúgal, að stjórn hans
sé ekki lengur starfhæf sem nú-
tíma stjórn.
Það er ekkert spaug að aka hratt, þegar aðstæður til aksturs eru hættulegar, svo sem vegna
bleytu á vegum, og þessi mynd er gott dæmi þess. Hér sér maður helming Jaguar-bifreiðar,
sem ekið var með 70 mílna hraða á blautum vegi í Englandi. Á ínóti kom bifreið, sem einnig
var ekið með 70 mílna hraða, svo að samanlagður hraði bifreiðanna varð sem svarar 225 km.
Ekillinn á Jaguarnum missti stjórn á bifreið sinni, svo að hún skall með hliðina framan á
hinni og hrökk í tvennt. Endinn lauk sinni för 40 metra frá framhlutanum. Hættan við að
aka á blautum vegum, sem eru steyptir eða malbikaðir, er sú, að þegar hraðinn er kominn
yfir visst mark, renna hjólin ekki lengur á sjálfri akbrautinni heldur á örþunnu bleytulagi,
og má þá ekkert út af bera, til þcss að bíllinn verði ekki stjórnlaus. — Slysið, sem hér er sagt
frá, varð tveim mönnum að bana, ökumönnum beggja bifreiða.
Djörf tilraun sænsks
vísindamanns.
Bandaríska vikuritið Time
skýrir í síðasta hefti frá þeirri
athyglisverðu tilraun, sem ver-
ið er að framkvæma í Svíþjóð
að bólusetja fólk gegn krabba-
meini.
Time segir að tilraun sænska
vísindamannsins Bertils Björk-
lunds sé djörf. Með Iienni sé
reynt að stytta Ieiðina til árang-
urs en deilt sé á Björklund fyr-
INDONESAR HEIMTA ALLT
EÐA EKKERT.
Utanríkisráðhei*ra Indones-
líu, Subandrio, hafnaði í gær
'tilboði hollenzku ríkisstjórnar-
' innar varðandi áamkomulags-
umleitanir um framtíð hol-
lenzku Nýju Guineu. Við til-
boð Hollendinga voru allmiklar
vonir bundnar um friðsamlcga
Yfir 2000
árekstrar
ENDANLEGAR tölur um
bilaárekstra og önnur slys í
umferðinni hér í Reykjavík,
sem rannsóknarlögreglan
hefur komið nærri, liggja
ekki fyrir með öruggri vissu
ennþá, en telja má fullvíst,
að hún losi 2000.
lausn deilunnar, cn Banda-
ríkjastjórn hefur að undan-
förnu reynt að miðla málum.
Aðsins fullur
: yf irráðaréttur.
i Subandrio kvað svo að orði
í gær, að Indónesíustjórn gæti
;ekki fallist á neinar viðræður,
inema fyrirfram væri fallist á
fullan yfirráðarétt Indónesíu í
Vestur-Irian, sem Indónesar nú
nefna hinn hollenzka hluta
landsins.
Ástralir ófólegir.
Þykir nú heldur hafa syrt í
álinn aftur. Ástralíustjórn
fylgist nákvæmlega með öllu
sem gerist, en Ástralía fer með
umboðsstjórn á austurhluta
eyjarinnar sem kunnugt er.
Leiðtogi stjórnarandstöðunn-
í Ástralíu sagði í gær, að
Framh. á 2. síðu
ar
Sukarno forseti flutti einnig
ræðu í gær og kvað Hollands-
stjórn sýna mikla þrákelkni.
Hefði hún sent herskip, flug-
vélar og lið til landsins. Kvaðst
hann mundu beita valdi gegn
valdi og lýsti yfir, að Hollenzka
Nýja Guinea væri fylki í Indó-
nesíu.
Með tunnu-
farm heim.
í MORGUN kom togarinn
Freyr úr utanlandssiglingu,
en hann seldi síldarfarm
skömmu eftir jólin í Bremer-
haven fyrir um 150.000 þýzk
mörk. Á heimleið kom tog-
arinn við í Hapgasundi og
tók þar um 12000 tómar síld-
artunnur. Fer nær helming-
ur farmsins hingað til Rvík-
ur, en hitt suður til Kefla-
víkur.
Bertil Björklund bólusetur
sjálfan sig.
I ir það, að hann hafi ekki nægi-
j lega undirbúið slíka tilraun.
Aðferð Björklund^.
í fréttinni er sagt frá aðferð
Björklunds. Hún er í því fólg-
in að taka vef sýktan krabba-
mejni, hluta hann niður í smá-
ágnir og leggja undir útfjólu-
I bláa geisla til áð drepa allar
i veirur í honum. Hefur Björk-
I lund og aðstoðarmenn hans síð-
an gert tilraunir með að sprauta
þessu efni inn í tilraunadýr og
eru nú að hefjá innsprautun í
lifandi fólk.
Styrkur frá
Bandaríkjunum.
Þá er frá því skýrt að Björk-
lund hafi fengið styrk sem
nemur nær 5 millj. ísl. króna
frá Bandaríkjunum. Sumir vís-
indamenn telja að hættur geti
verið fólgnar í tilraun þessari.
Time telur að ekki séu miklar
líkur fyrir að árangur náist en
hér sé um svo mikið stórmál
! að ræða, að reyna verði allar
Ileiðir.
Spilakvöld Sjálf-
stæðismanna í kvöld.
í kvöld halda Sjálfstæðis-
I félögin í Reykjavík áramóta-
spilakvöld. Fer það fram í
tveimur veitingahúsum við
AusturvöII, Sjálfstæðishúsinu
og Hótel Borg. Hefst spila-
kvöldið kl. 20,30. Góð verðlaun
verða veitt í félagsvistinni á
báðum stöðunum. I Sjálfstæð-
ishúsinu mun Gunnar Thor-
oddsen fjármálaráðherra flytja
ávarp, en Birgir Kjaran alþm.
mun ávarpa gesti á Hótel Borg.
Happdrætti verður haldið og
Árni Tryggvason syhgur gam-
anvísur. Þá verður stiginn dans.
Er ekki að efa að þetta spila-
kvöld verður fjölmennt að
vanda.