Vísir - 10.01.1962, Page 9
V í S I R
9
Miðvikudagur 10. janúar 1962
Þær fréttir, að ríkissjóður
hafi komizt allvel af á liðnu
ári, hafa að vonum vakið
gleði hjá góðu fólki. Um
þessi fyrstu áramót í sextán
ár átti ríkissjóður inneign á
viðskiptareikningi sínum í
Seðlabankanum og lausa-
skuldir ríkissjóðs allar
greiddar, en þær námu
fjörutíu og þrem milljónum
fyrir ári.
Undarlegar
undirtektir.
En hjá málsvörum og mál-
gögnum stjórnarandstöðunn-
ar hafa undirtektir orðið
harla undirlegar. í stað þess
að gleðjast yfir góðum tíð-
indum eins og sönnum föð-
urlandsvinum sæmir, hafa
þeir allt á hornum sér.
„Ríkissjóður farinn að safna
fé í Seðlabankanum!“ segir
Tíminn. Hvílík hneisa, að
hans dómi, að ríkissjóður
skuli leyfa sér að vera ekki'
alltaf skuldum vafinn. Hin
góða afkoma stafi af því,
að ríkisstjórnin hafi rænt
120—140 milljónum af sjó-
mönnum og útgerðarmönn-
um, hirt allan gengishagn-
aðinn í ríkissjóð, — og nú
hælist hún yfir ránsfengn-
um.
Allhressilega er nú stað-
reyndum umturnað, þegar
slíkar falsmyndir eru dregn-
Hver á gengisgrdðann?
Grein Gunnars Thoroddsen, íjérmálaráðherra.
ar upp. Hér skal málið skýrt
_ eins og það liggur fyrir í
raun og veru.
Gengisgróði af
vörubirgðum.
Þegar genginu var breytt,
4. ágúst, var til í landinu
mikið magn af íslenzkum
afurðum, tilbúnum til út-
flutnings. Þær voru að
mestu framleiddar við því
kaupgjaldi og verðlagi, sem
hér gilti áður en hækkanir
urðu. Þegar þessar vöru-
birgðir voru seldar og flutt-
ar úr landi, fengust fyrir
þær 13% fleiri íslenzkar
krónur en áður, vegna geng-
isbreytingarinnar. Áætlað
er, að þessi gengisgróði
nemi um 140 milljónum
króna, þegar allar birgðirn-
ar hafa verið seldar og
greiddar. Falla um 80 millj.
til greiðslu árið 1961, en af-
gangurinn 1962.
Hver á
gengisgróðann?
Hver á þennan gengishagn-
að?
Ef engin lagaákvæði hefðu
Gunnar Thoroddsen.
verið sett um ráðstöfun hans,
hefðu þeir aðiljar, sem voru
eigendur útflutningsvara 4.
ágúst, fengið þessa fúlgu. í
mörgum tilfellum var það
tilviljun háð, hver orðinn
var löglegur eigandi útflutn-
ingsvöru 4. ágúst. Sjaldan
munu það hafa verið sjó-
menn. Stundum útgerðar-
menn, frystihús, síldar-
verksmiðjur, stundum
útflutningsfyrirtæki, sem
ýmist eru sölusamtök, hluta-
félög eða einstaklingar.
Hefði sú regla verið látin
ráða, að sá, sem var eigandi
vörunnar 4. ágúst, hefði átt
að eignast gengisgróðann af
þeirri vöru, hefði það valdið
réttlátri gagnrýni.
Vörurnar voru að mestu
framleiddar með eldra kaup-
gjaldi og kostnaði.
Oft hefðu það ekki verið
framleiðendur, sem hagn-
aðinn hlutu, heldur útflytj-
endur.
Misrétti hefði orðið milli
framleiðenda innbyrðis.
Einn var nýbúinn að selja
framleiðsluna við gamla
genginu. Annar seldi fám
dögum seinna og fekk 13%
hærra verð, þótt vara beggja
væri framleidd á sama
tíma og framleiðslukostnað-
ur sá sami.
Ef ríkisstjórnin hefði látið
það afskiptalaust hvert þessi
gengishagnaður rynni, myndi
ýmsum aðiljum hafa fallið í
skaut gróði að ástæðulausu,
og misrétti og ójöfnuður
skapazt milli manna
Að öllu þessu athuguðu
þótti ríkisstjórninni rétt að
ráðstafa gengisgróðanum
.þannig, að hann kæmi at-
vinnuvegunum, fyrst og
fremst útgerðinni, að góðu
gagni.
Áföll vegna
ábyrgða.
Nú standa sakir svo, að
mörg atvinnufyrirtæki,
sem fengið hafa lán með
ríkisábyrgð, hafa ekki getað
staðið í skilum, og ríkissjóð-
ur orðið að leggja út stóré
vegna þeirra. Þessar upp-
hæðir námu árið 1960 um 50
miiljónum og 1961 nærri
80 milljónum króna.
Hér er ekki um að ræða
ábyrgðir, sem núverandi
stjórn hefir veitt, heldur
ríkisábyrgðir veittar af fyrri
ríkisstjórnum.
Þessar ábyrgðir eru vegna
kaupa og smíði á togurum,
bátum, fiskvinnslustöðvum
og fjölda annarra fyrirtækja.
Stjórnin ákvað að ráðstafa
meginhluta gengishagnaðar-
ins á þann veg í þágu at-
vinnuveganna, að hann rynni
til þess að greiða áfállnar
ábyrgðarskuldir vegna
þeirra.
Gengishagnaðurinn renn-
ur alls ekki til almennra
þarfa ríkissjóðs. Kemur það
gkýrt fram í lögunum, þótt
málgögnum stjórnarandstæð-
inga hafi láðst að geta þess.
l±6Ui'<
Mœkkanir á fisktoll-
um í Vestur -itýskalandi
HvaSa áhrif hafa hin-
ar nýju tollahækkanir í
Vestur-Þýzkalandi á
sölu íslenzks fisks þar í
landi? I hverju eru
tollabreytingarnar fólgn-
ar?
Þessum spurningum velta
menn mjög fyrir sér þessa
dagana og því hefur Vísir
aflað sér upplýsinga um mál-
ið.
ísfiskur.
Fram til 1. janúar 1962
var ísfislcur tollfrjáls í Vest-
ur-Þýzkalandi síðari hluta
árs, frá 1. sept.—31. des.
Fyrri hluta ársins var 10%
tollur á ísfiski. Efnahags-
bandalagið . hefur aftur á
móti ákveðið að cndanlegur
tollur á ísfiski í öllum lönd-
um þess skuli vera 15%. Um
áramótin tók fyrsta stig
tollahækkananna af þrem-
ur gildi.
Þýðir það að tollur á ís-
fiski í V-Þýzkalandi verður
11.5% frá 1. janúar—1. ág.
næstu árin, en aðeins 4.5%
frá 1. ágúst—31. des.
Þess má geta að Vestur-
Þýzkaland hefur sótt um
svokallaða tollkvóta til fram
kvæmdarstjórnar Efnahags-
bandalagsins í Brussel. Eru
slíkir tollkvótar veittir ríkj-
um innan bandalagsins, ef
þau eru ekki sjálfum sér nóg
um einhverjar vörutegundir,
Munu Þjóðverjar hyggja á
tollfrjálsan eða tolllágan
innflutning ísfisks, ef kvót-
inn verður veittur. Ef Norð-
menn og Svíar koma í Efna-
hagsbandalagið munu Þjóð-
verjar hins vegar væntanlega
ekki Ieyfa kvótainnflutning,
þar sem nægur fiskur verður
þá á boðstólum innan banda-
lagsins.
Varðandi ísfiskinn var að-
eins um eina undantekningu
að ræða frá fyrrgreindum
tolli í V-Þýzkalandi. Það var
ufsinn. Var hann tollfrjáls
til 1. febr. ár hvert, en ekki
aðeins til áramóta. Nú er
hann tollaður um 4.5% til
1. febrúar.
ísuð síld.
Á ísaðri síld var enginn
tollur í V-Þýzkalandi fram
til síðustu áramóta. Hinn
sameiginlegi tollur Efnahags
bandalagsins mun alls verða
20%. Hafa 30% hans verið
látin koma til framkvæmda
frá síðustu áramótum, og er
hann því nú 6%.
Utflutningur okkar á ís-
aðri síld jókst mjög 1960 og
1961 og er því þessi tolla-
hækkun tilfinnanlcg fyrir
íslenzka útveginn.
Freðfiskur.
Tollur ó freðfiski var fyr-
ir árámót 5% í Vestur-Þýzka
landi. Efnahagsbandalags-
tollurinn mun endanlega
verða alls 18%, 30% tolla-
hækkun er kom til fram-
kvæmda á áramótum og er
tollurinn því nú 8.9%. Hér
ber þess þó að geta að vart
hefur verið um freðfiskút-
flutning frá íslandi til Vest-
ur-Þýzkalands að ræða til
þessa svo ekki gætir þessar-
ar tollahækkunar svo neinu
nemi. Hins vegar má telja
fullvíst að freðfiskmarkað-
urinn í V-Þýzkalandi muni
verða okkur mjög mikilvæg-
Vísir hcfur nú haft nánari
fregnir af kínverska leikrit-
inu „Drekinn", sem sýnt hef-
ur verið að undanförnu á
hinum Norðurlöndunum. Ber
þeim sem séð hafa leikrit
þetta í Osló og Kaupmanna-
höfn yfirleitt saman um það,
að hér sé á ferðinni mjög
merkilegt og stór áhrifaríkt
leikrit. Þykir leikritið sýna
með sérstaklega áhrifamikl-
um hætti hvernig innræti
ur er fram líða stundir og
mun þá tollurinn skapa erf-
iðleika, ef við stöndum utan
bandalagsins.
★
Hinn sameiginlegi fisktoll-
ur Efnahagsbandalagsins
gagnvart löndum sem ekki
eru aðilar þess kom þannig
til framkvæmda um þessi
áramót. Verður hann settur
á í þremur áföngum og er
það hinn fyrsti sem nú lief-
ur verið framkvæmdur.
Annar áfanginn hefst sam-
kvæmt ákvæðum Rómar-
samningsins 1. janúar 1966.
Hækkar þá hinn sameigin-
legi ytri fisktollur um önn-
ur 30%.
kommúnista er, með glögg-
um dæmum úr verulcikan-
um, þar sem kommúnistar
hafa náð völdum í Kína.
Það væri vissulega mikils
virði, ef hægt væri að fá hinn
kínverska leikflokk til að
koma til íslands og sýna
þetta óhrifamikla leikrit hér
á landi. En þar væri um all-
mikið verk að ræða, því að
í leikflokknum munu vera
Framh. á 5. síðu-
Það ætti að sýna
,Drekarm‘ á Islandi.