Tölvumál - 01.04.1985, Qupperneq 5

Tölvumál - 01.04.1985, Qupperneq 5
5 Ötvegsbanki og BúnaSarbanki, og vísar forliSurinn hér til þeirra, sem bankinn þjónar aSallega. Til hvers á þá aS nota orSiB tölvubanki? Er tölvubanki 'banki þar sem tölvur eru geymdar' eSa 'banki sem þjðnar þeim sem framleiSa og selja tölvubúnaS (vélbúnaS og hugbúnaS)'? í fljótu bragSi virSist mér líklegra, aS seinni bankinn verði stofnaSur, þó að slíkt hafi ekki gerst enn. Allir þeir, sem ég hef rætt þetta mál við og telja sér skylt að hafa á þvl skoðun, álíta að minnsta kosti óheppilegt að nota tölvubanki um gagnabanka og telja það stuðla aS ónákvæmri orðanotkun, sem aftur ýtir undir óskýra hugsun. í bili virSist orSiS tölvubanki því vera laust. Ég hélt I upphafi, aS þeir IðnaSarbankamenn notuSu þetta orð um það samsafn vélbúnaðar, hugbúnaðar og gagna, sem þarf til þess aS veita viðskiptavinum þeirra fyrrgreinda þjónustu. Við þessa notkun hafSi ég I sjálfu sér ekkert aS athuga. Mér og fleirum mun að vísu hafa fundist af þessu nokkur auglýsinga- keimur og aS jafnvel hefði mátt finna annað orð, sem betur hefði hentað. í sýningarskrá sýningarinnar Tölvur '85, er grein um tölvubanka Iðnaðarbankans eftir Magnús Pálsson, og kemur þar I ljós, að tölvubanki er notað um afgreiðslustað- ina sjálfa en ekki allt kerfið eins og ég hélt upphaflega. Afgreiðslustaðirnir eru I mlnum huga útstöðvar frá tölvu- bankanum, ef við höldum okkur við llkingamál úr heimi gagna- vinnslu og tölvutækni, en væntanlega útibú á máli banka- manna. Má ekki einfaldlega kalla þá bankasjálfsala? Fyrst þeir Iðnaðarbankamenn þurfa endilega að nota orðiS tölvu- banki, vil ég I fullri vinsemd benda þeim á að nota það af meiri skynsemi. Petta mál er komið upp vegna þeirrar trúar, að allt, sem tengja má tölvum á einhvern hátt, sé flnt. Þess vegna er um aS gera að setja tölvu- framan viS heiti þess, sem á aS selja, þótt tölvur komi þar jafnvel hvergi nærri.

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.