Vísir - 14.02.1962, Blaðsíða 6
6
V 1 S 1 R
Miðvikudagur 14. febr. 1962
Um málverkasýningu
Isleifs Konráðssonar.
Flestir gerast listamenn,
þegar sjötugur karl hefur
það sér til afþreyingar,
varð mér á að hugsa, þeg-
ar ég las um það í blöðun-
um að sá aldni maður Is-
leifur Konráðsson hefði
opnað sýningu á föndur-
myndum sínum Ég gat þó
ekki stillt mig um að fara
á sýningu hans í Bogasaln-
um, og varð meira en lítið
undrandi á að sjá það, sem
þessi fullorðni maður hef-
ur að sýna með myndum
sínum.
Isleifur Konráðsson er
engum öðrum líkur í mynd
um sínum, en hann stað-
festir fullkomlega þau
gömlu visdómsorð að tvisv
ar verður gamall maður
bam. Myndir hans eru
bamslega einlægar, en þó
sýna þær ótvírætt að þar
er skapfesta lífsreynds
manns, sem frá mörgu hef-
ur að segja. Hann leggur
höfuðáherzlu á, að prédika
um kærleika og bræðralag.
Það er stórfenglegur pré-
dikari þessa dagana í Boga
sal Þjóðminjasafnsins.
Engin kirkja er svo fagur-
lega skreytt sem Bogasal-
urinn er nú af ísleifi Kon-
ráðssyni og maður verður
betri maður af að koma
þar inn og dveljast þar
nokkra stund.
Hvít englaský — blóm-
ofin fjöll — spegilslétt höf
— mannelskir fuglar, sem
aldrei hafa komizt í snert-
ingu við drápstól menning-
arinnar.
En Isleifur prédikar um
fleira en guðdóminn.
Ofviðri fór yfir
Evrópu.
Ofviðri mikið fór yfir mik-
inn hluta Evrópu í fyrradag.
Að minnsta kosti 5 menn biðu
bana. Tvö skip fórust og
mörg urðu að leita hafnar.
1 Lankarshire í Suður-Eng-
landi var veðurhæðin mest.
Náði Vindhraðinn 200 km á
klst., en í bayersku ölpunum
í Suður-Þýzkalandi upp í 160
km. Víða brotnuðu leiðslu-
staurar og lokuðust sam-
gönguleiðir af þeim sökum. I
Skagarak tók vestur-þýzkan
sjóliða út af tundurspilli. Á
Bretlandi fórust a.m.k. 3
menn. 1 Hollandi feykti vind-
urinn manni á reiðhjóli út í
skipaskurð og drukknaði mað
urinn. Þök tók af húsum í
Hollandi og þorp einangruð-
ust. Ofviðrið olli miklu tjóni
á húsum í Danmörku. Mörg
norsk, sænsk og austur-þýzk
skip leituðu hafnar á Norður-
Jótlandi. Flest komust í höfn
fyrir mesta veðrahaminn. Á
vesturströnd Jótlands braut
veður og sjógangur i spón
mörg sumarhús. Á Fjóni gekk
á með haglskúrum og í „Kon-
gens Have“ í Óðinsvéum sleit
tvö gömul tré upp með rótum.
Hann segir okkur einnig
fögur og bamsleg ævin-
týri, um tröll og hulda
vætti. Hann hvetur til ætt-
jarðarástar og trúar á föð-
urlandið. Landið okkar er
umvafið dýrð skapaf'ans.
Alls staðar er líf og ang-
andi gróður. Jafnvel bjarg-
snasir við yzta haf hafa
upp á auðlegð að bjóða.
Ég hef sótt flestar mál-
verkasýningar, sem hér
hafa verið haldnar í hart-
nær tvo tugi ára, en ég
hika ekki við að segja frá
því, að engin sýning hefur
snortið mig á jafn áhrifa-
ríkan hátt sem sýning
þessa öldungs. Mér kemur
ekki til hugar að spyrja —
eru myndimar hans ísleifs
gamla mikil list? Um það
varðar mig ekki. Hitt veit
ég, að þær gleymast mér
ekki. Þess vegna þykir mér
skylt að þakka honum og
biðja Guð um að veita hon-
um tíma og heilsu til að
mála margar fleiri myndir.
Trúlega þarf ekki til þess
að koma að hann skorti
héðan í frá liti né léreft, til
þess að svo megi verða.
Hafliði Jónsson,
garðyrkjustjóri.
1927 HEIMDALLUR 1962
/
35 ára afmælishátíð
verður haldin í Sjálfstæðishúsinu laugardaginn 17. fe-
brúar 1962 klukkan 8,30.
ÁVÖKP — SKEMMTIATRIÐI — DANS.
íslenzkur matur framreiddur á miðnætti.
Aðgöngumiðar seldir í skrifstofu Heimdallar kl. 9—7
alla daga, sími 17102. Verði miða mjög stillt í hóf.
STJÓRNIN
Eitt af mörgu, sem laðar ferðamenn til Þýzkalands, eru
hinar fomu byggingar, sem þar er að finna „á hverju
strái“, ef svo má segja — þar sem stríðsguðinn hefur
ekki molað þær mélinu smærra. Myndin hér að ofan er
frá fomi ferðamannaborg, Braunfels an der Lahn, þar
sem neon-Ijós þarf ekki til að laða komumenn. Þeir, sem
vilja njóta kyrrðar og friðar, fara á slíka staði, sem era
utan alfaraleiða og halda enn fornum siðum og venjum.
Fyrir karlmenn
SKYRTUR — BINDI — NÆRFÖT _ HATTAK — IIÚFUK
— PEYSUSKYRTUR — VINNUSKYRTUR O.M.FL.
ÚLPIJR — JAKKAR — GALLABUXUR
SPORTBOLIR A BÖRN OG UNGLINGA
r
L
.4* 4i
íWiíÚII llllllllll
mmm Mmrn §i8fS®
^íiíííiiíiiiií
Aiitt? ii^ij
iimniiimv
‘niil4ÍÍÍÍÍÍÍÍÍÍ"
ni!W mw
aííív Ainæm±
ÍiiÍÍÍÍiiÍiii
iHtiiii
æiW
♦ÝÍÍÍJ
iiíip:
W .iiiiiiíiii,
%
Stórkostleg verðlœkkun
Aðeins 4 daga
ANDERSEN & LAUTH H.F.
i