Vísir - 17.02.1962, Síða 3

Vísir - 17.02.1962, Síða 3
1;,7- fgþÆáar 19J>2 VÍSIR 3 SJL í NANTICOKE Fiskverksmiðja Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna hefir mjög verið á dagskrá að undanförnu vegna ágrein- ings sem varð um rekstur hennar innan Coldwater, en þeim deilum lyktaði sem kunnugt er með því að tveimur sölustjórum Cold- water í Ameríku, Árna ÓI- Jóhannes Einarsson. verksmiðjustjóri. afssyni og Pálma Ingvars- syni var vikið frá störfum. Stækkuð sl. haust. Verksmiðja þessi er í bæn- um Nanticoke í Maryland- ríki, skammt frá Philadelpiu og höfuðborg. Wasliington. Hún hefir verið starfrækt í mörg ár, en með vaxandi fisksölum í Bandaríkjunum taldi Sölumiðstöðin að hún væri orðin of lítil, enda var svo komið, að vinna þurfti nær allan sólarhringinn til þess að anna eftirspurninni. Því var sú ákvörðun tekin að stækka verksmiðjuna svo að afköst hennar yrði helm- ingi meiri en áður. Kom sú stækkun til framkvæmda í september sl. Er verksmiðj- an nú með stærstu fiskverk- smiðjum í Bandríkjunum. Hún afkastar um 50 tonnum af tilreiddum fiski á 8 klst. vinnudegi og eru í lienni þrjár samstæður, ein fyrir fiskstangir en tvær fyrir fiskskammta, sem eru fer- kantaðar steiktar fiskkökur. Hér sjást starfsstúlkur í Nanticoke-verksmiðjunni, þar sem þær eru að setja rasp og eggjarauðu á fiskkökur og sjást hinar ferköntuðu kökur þar sem þær eru að renna niður í steikarafeitina. Meirihluti starfsfólksins í Nanticoke eru svertingjar, enda er verksmiðjan í Suðurríkjunum. 300 manna starfslið. Um 300 manns vinnur að staðaldri við verksmiðjuna og liefir ekki þurft að fjölga þar starfsliði þótt afköstin ykjust þar sem vélarnar eru nú fullkomnari. Samtímis þessari stækkun verksmiðjunnar voru kæli- geymslur þrefaldaðar að stærð og er það þýðingar- mikið til að geta geymt hina framleiddu vöru og dreift henni jafnt á markaðinn all- an ársins hring. Kostnaður við byggingu verksmiðjunnar í Nanticoke og stækkun hennar er ekki á neinn hátt tekinn héðan að Ný mynd af Nanticoke verksmiðjunni, sem sýnir meðal annars hinar stóru kæligeymslur t.v. á myndinni. heiman, heldur hefir hann verið framkvæmdur ein- göngu með erlendum lánum. En það sem nú hefir einkum valdið erfiðleikum og deil- um er reksturskostnaðurinn og þá aðallega það, að Cold- water hefir ekki fé til þess að greiða fiskinn við mót- töku, heldur Iíður nokkur tími þar til hann er kominn á markaðinn. íslenzkk stjórnendur. Við Nanticoke verksmiðj- una eru nú starfandi nokkr- ir íslendingar, sem stjórna rekstrinum. Þeir eru Jóhann es Einarsson, sem hefir verið verksmiðjustjóri í 6 ár, en hann er iðnverkfræðingur að menntun og hefir staðið sig vel í starfinu og er vin- sæll meðal starfsfólksins. Þá kemur Brynjólfur Sandholt, sem stjórnar gæðaeftirliti, Konráð Adolfsson skrifstofu- maður og Sigurður Tómas- son sem fer með bókhald. Ólafur Guðmundsson er vél- stjóri og Árni Sigurðsson rafmagnsmaður. Þessir ís- lendingar allir búa þarna með fjölskyldum sínum og una sínum hag hið bezta i hitum Suðurríkjanna. 14% af heildar framleiðslu USA. Með stækkun verksmiðj- unnar hefir hlutur Nan- ticoke í fiskframleiðslu Bandaríkj. aukizt. Hann var árið 1960 um 12.2% af heild- arframleiðslu Bandaríkjanna á tilreiddum fiski, en er nú kominn upp í 14% af heild- arframleiðslu Bandaríkj- anna. f janúar sl. var fram- leiðsla verksmiðjunnar 50% meiri en í janúar árið áður. En verksmiðjan er ekki nýtt eins og hægt væri, þar sem gert er ráð fyrir að stækk- unin í haust nægi nokkur ár fram í tímann. Yrði síðar mögulegt, ef salan heldur áfram að aukast svo ört sem raun ber nú vitni um, að taka upp tvöfaldar vaktir og margfalda framleiðsluna frá því sem nú er.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.