Vísir - 02.03.1962, Síða 2

Vísir - 02.03.1962, Síða 2
?. V 1 S 1 R Föstudagur 2. n>arz 1962 StaBan Önnur deildin II ® IJF 1 blasir við Yal KR - Valur 27:21 Leikur neðstu liðanna í 1. dcild, K.R. og Vals, varð ekki eins jafn og vænta mátti. K.R. tókst að finna smugurnar í vörn Vals, sem var oft ótrú- lega lélcg í fyrri hálflcik, um leið og framlínan var allt of einhæf og auðlærð af K.R.- vörninni. Það voru Valsmenn, sem skoruðu fyrsta markið, en K.R. kemst yfir í 3—1. Valsmenn ógna stöðugt og jafna 4—4. Um miðbik hálfleiksins var vörnin bókstaflega „ekki til“, a. m. k. ekki nema slitur af vörn, sem hvergi nærri gat komið í veg fyrir hina hættu- legu framherja K.R., einkum Karl og Reyni. Markatalan tók nú stökk upp á við, þ. e. a. s. K.R. megin og fyrr en varði var munurinn orðinn 7 mörk og í hálfleik var staðan 19—10 fyrir' K.R. Samt áttu Valsmenn eftir að skjóta K.R.-ingum skelk í bringu og minna þá á 2. deild- ina. Örn skoraði fyrsta mark síðari hálfleiks en Karl svarar um hæl. En nú er sem Vals- menn fái ráðið gangi leiksins í nokkrar mínútur, sóknin leikur a þeim hraða, sem hún ræður við og vörnin leikur mjög góðan leik. Árangurinn er sá að Valsmenn skora 6 mörk í röð og minnka forskot K.R. niður í 20—16 og var ekki hægt annað að sjá en sigur- brosið dvínaði á vörum ýmissa K.R. aðdáenda meðal áhorf- enda. Heinz, Reynir og Karl skoruðu næstu 4 mörkin, á leik- kafla þar sem Valur sleppti sér Heinz Steinmann, KR, hefur brotizt i gegnum vörnina og er kominn í skotfæri á Vals-línunni. Það er Örn Ingólfsson, Val, sem gerir tilraun til að trufla en bak við þá sér í Reyni Ólafs- son, KR, og Halldór Halldórsson, Val. út í of mikinn hraða, og það reið „baggamuninn, Valsmenn skoruðu fleiri mörk það sem eftir var, en ekki tókst þeim að hindra sigur K.R. 27—21, sem teljast verður sanngjarn, K.R. var betra, K.R. fær með þessum leik fyrstu fjöðrina í hatt sinn á þessu móti, 2 dýrmæt stig. Valur hins vegar verður eftir leikinn skoðað sem „fallkandi- dat no. 1“. Reynir og Karl voru að þessu sinni langbeztir, eins og svo oft áður. Ekki er hægt að ímynda sér hvernig liðið liti út ef þeirra nyti ekki við. Guðjón átti einnig mjög góð tilþrif og slapp í heild vel frá leiknum varði t. d. prýðilega af línu. Valsliðið er ótrúlega sundur- laust og vörnin virðist geta hrokkið í þúsund mola er minnst varir. Leikur liðsins á kafla í síðari hálfleik var við hæfi liðsins, ekki of hraður, þó ekki hægur, nokkuð yfirvegað- ur leikur, það er það sem Vals- liðið á að geta leikið sér til ábata. Geir og Bergur eru beztu skotmennirnir en Örn er seigui leikmaður og sýnir undra fram- farir. Hannes Þ. Sigurðsson dænjdi leíkinn. f 2. deild léku í gærkvöldi Framh á bls 5. f fyrstu deild er staðan nú: L U J T St. Mörk FH ...... 3 3 0 0 6 1.09- 60 Fram .... 2 2 0 0 4 61- 40 Víkingur . 2 1 0 1 2 38- 36 ÍR 2 1 0 1 2 41- 60 KR 4 1 0 3 2 85- 92 Valur . ... 3 0 0 3 0 58-104 Markhæstu einstaklingar: Mörk Ragnar Jónsson, FH, .... 32 Reynir Ólafsson, KR, .. 28 Birgir Björnsson, FH, . . 24 Karl Jóhannsson, KR, .. 23 Ingólfur Óskarsson, Fram, 22 Evandt vann á 1.69 og 3.46 Norðmaðurinn Evandt, sem kemur innan skamms í boði ÍR og keppir liér í at- rennulausum stökkum, vann nýlega hástökk og Iangstökk án atrennu á Noregsmeistara- mótinu í Mo, Rana. Evandt stökk 1.60 í há- stökki og 3.46 í langstökki. Ilarald Hæreid frá Oslo vann hástökkið í unglingaflokki á 1.70. og íslenzkan f Daily Record á miðviku- daginn er St. Mirren liðinu hælt mikið fyrir hinn góða anda sem ríkir innan herbúða þeirra, og bent á að hér ríki sá hinn rétti andi til að endur- taka sigurinn í bikarnum frá 1958. Og þetta cnda þótt tveir af beztu mönnum liðsins séu á sjúkralista, b. e. hinn frægi markvörður þcirra Jimmy Brown og framherjinn Tommy Bryceland. Lýsir blaðið nokkuð þeim góða „móral“ sem liðið býr yfir og segir m.a. Willie and Jimmy (Fernie og Brown) tala saman á íslenzku, þannig að Tottie er sem þræddur á þráð er þeir tala. Körfuknattleiksmót íslanls að Hálogalandi kl. 8.15: Meistarafl. k. Ármann—Í.S. 1. flokkur k. Ármann—Í.R. Bobby Flavell, framkvæmda- stjóri liðsins segir: — Við höfum nú gengið í gegnum tímabil meiðsla og slysa, en við snúum nú til baka á réttum tíma og allir erum við glaðir og náægðir. — Ég yfirgaf Love Street, segir blaðamaðurinn — og fannst ckki nema rétt að að- vara hin sjö Iiðin sem gera sér vonir um bikarinn í þessari keppni. Glasgow Rangers eru nú komnir á toppinn í skozku deildinni eftir að Dundec hefur leitt deildina í allan vetur. Unnu þeir í fyrra- kvöld Motherw. í Ibrox með 2—1. Rangers hafa þá 40 stig eftir 25 leiki. Dundee er með 39 stig eftir að hafa Jeikið einum leik minna. 'iigers m EriéMttlar irótiÍM' MATTHEWS: 800. leikurinn í deildakeppni Fljótasti knattspyrnumaður heims, — einnig fljótur í bíl. Stanley Matthews lék um helgina sinn 800. leik í ensku deildarkeppninni. — Þessi merki leikur var milli liðs Matthews, Stoke City og Leyton Orient á heima- velli Leyton, sem sigraði 1—p. Matthews, sem nú er 47 ára að aldri, átti ekki eins góðan leik nú og oft áð- ur, enda sjaldgæft að slíkir afmælisleikir séu vel leikn- ir. Stanley hefur samt átt mjög góða leiki síðan hann fór yfir til Stoke og gtt stór- an þátt í velgengni félagsins. GENTO: © Gento, fljótasti knatt- spyrnumaður heims, virðist fljótur á fleiri sviðum eftir spönskum lögregluskýrslum að dæma. Gento ók bifreið sinni Mercedes 220 Sedan á ofsahraða á a&ra bifreið, með þeítm afleiðirigum að lögreglumaður í hinni bif- reiðinni, lézt af völdum meiðsla. Sjálfur slapp Gento án teljandi meiðsla. Real Madrid bjargaði þessum frækna v. útherja frá fang- elsi með því að bera ábyrgð á honum. Gento lék með lið- inu, sem sigraði Juventus í París, með 3:1

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.