Vísir


Vísir - 02.03.1962, Qupperneq 10

Vísir - 02.03.1962, Qupperneq 10
10 V I S 1 K Föstudagur 2. marz 1962 Viðtal dagsins — Framh at 4. síðu væri ð manna bátur, óyfir- byggður. Fylgdu honurn tvær árar, kolsýrufyllt flaska til að blása hann upp og einnig handdæla. Á áðurnefndu spjaldi stóð einnig, að bát- urinn hefði verið afhentur frá verksmiðjunni fyrir 2 árum. Var nú skotið á bátinn úr flöskunni og skoðuðu þeir hann lengi og gaumgæfi- lega. Síðan var hann tæmd- ur og flaskan losuð frá hon- um, og sent með hana út í hús er var þar skammt frá og flaskan þar hlaðin að nýju í þessu kolsýruhleðslufyrir- irtæki. Var nú endutekið tvisvar að dæla bátinn upp og gekk það allt að óskum, en í millitíðinni var bátur- inn blásinn upp með hand- dælunni og tc>' það ca. 20 mín. Þegar síðustu kolsýru- flöskunni hafði verið hleypt á bátinn var ákveðið. að hann skyldi standa þannig til næsta dags. Næsta dag mætti eg aftur á skrifstofunni og var þá báturinn uppblásinn eins og skilið hafði verið við hann fyrir 24 klst. Loks fekkst leyfi. Eg spurði nú hvort þeir myndu viðurkenna bátinn sem löglegt björgunartæki ef eg keypti hann. Þeir töldu á honum ýmsa annmarka þ. á. m. að hann væri svo eldíimur vegna þess að hann væri úr gúmmí. Varð mér þá að orði að allir vissu að sjómenn notuðu bæði gúmmístakka og stígvél og hefði annað ekki revnzt bet- ur. Ennfremur bentu þeir á, að ekki mætti koma nálægt honum línukrókur eða nagli svo ekki kæmu á hann göt og að engin tök myndu þá vera á að líma hann. Gekkst eg nú enn eftir því, hvort þeir ætluðu að heimila mér kaup á bátnum til löglegra nota sem björgunartækis. Lofuðust þeir pá til að láta mig vita eftir nokkra daga. Tjáði eg þeim þá að eg hefði ekki bátinn lengur á hendi en þrjá daga og lofuðu þeir þá að athnga málið bet- ur og mætti eg vitja svars næsta dag. Daginn eftir veittu þeir svo munnlegt leyfi til kaupa og nota á bátnum, þó takmarkaðan tíma og ekki lengur en 1 ár. Afréð eg því kaupin á bátn- um og greiddi fyrir hann 1200 kr. Var smíðaður kassi úr . tré utan um bátinn og honum komið fyrir á stýris- húsi á mótnrbát mínum m.b. Veigu VE 291 í vertíðar- bvrjun 1951. Áður en gengið var þann- ig frá bátnum, var haldin æfing með áhöfn og skip- stjóra bátsins, Sigurbirni Sigfinnssyni, en hann ásamt Sighvati Bjarnasyni skip- stjóra, núverandi forstjóra Vinnslustöðvar Vestmanna- eyja, eru fyrstu formenn með slík björgunartæki um borð í íslenzkum mótarbát. Vartíðin 1951 gekk að ósk- um og engin þau óhöpp hentu, er gerðu bátinn nauð- synlegan, en svo líður að vetrarvertíð 1952. Mannslífum bjargað. Laugardaginn fyrir páska, 12. apríl eru allir Eyjabátar á sjó. Er leið á daginn gekk í suðvestan rok og stórsjó. Meðal þeirra báta er á sjó voru var m.b. Veiga 24 lest- ir og reri með net og er SV af Einidrang. Voru skip- verjar hættir að draga net- in og voru að gera sjóklárt, en ætluðu að leggja eina trossu, sem var aftur á dekki áður en lagt yrði af stað heim. Fekk báturinn þá á sig brot, sem braut borðstokk- inn á stórum kafla, fyllti stýrishúsið og setti sjó í lest. Tók þá út nettrossuna. er var aftur á og með henni einn háseta, Pál Þórormsson, sem hvarf í diúpið og drukkn aði. Skipstjóri. sem þá var Elías Gunnlaugsson frá Vm. gat komizt fram í „lúkar“ og sent út neyðarkall. Þegar svo var komið var gripið til gúmbjörgunar- bátsins og skyldi hann nú blásinn upp með kolsýru- flöskunni, en það mistókst að því leyti að ventill. sem var til þess gerður að hleypa lofti úr bátnum var opinn og tæmdi hann sig því næstum jafnharðan. Var nú ventlinum lokað og báturinn dældur upp með handdæluni, en það verk tók 15 til 20 mín. í sömu andrá var Veiga komin að því að sökkva og bátnum því hent fyrir borð og hann festur við bátshliðina. Kom- ust nú allir í bátinn nema vélstjórinn, Gestur Jóhann- esson, sem var fram á, sennilega að huga að því hvort hann heyrði eða sæi til bátsferða, en rétt í sömu andrá reið ólag yfir bátinn og hreif vélstjórann með sér í hafið og hvarf hann þar. Nærstaddir bátar, er heyrt höfðu neyðarkallið, hröðuðu sér eins og þeir gátu til hjálpar. Fyrst bar að mb. Frigg Vestm.eyjum, sem bjargaði áhöfn mb. Veigu úr gúmbjörgunarbátnum, en þá höfðu skipverjarnir 6 verið í bátnum um 40 mín- útur. Skömmu síðar bar þar að varðskipið Ægi, sem leitaði á slysstaðnum og fann ekkert Trípólibíó á nýjum stað ÞAÐ er unnið af miklu kappi við smíði hins nýja ,,Tripólibíós“ Tónlistarfélags- ins við Skipholt. Byrjað er að setja niður sýningarvélarn ar, sem verða endurbyggðar og sem nýjar af nálinni, á- samt öðrum tækniútbúnaði vélanna, eins og til dæmis tal og tónn. Jóhann Sigurjónsson sýn- ingarstjóri, sagði er blaða- maður og Ijósmyndari Vísis, litu sem snöggvast inn í bíó- ið í gærdag, að hann vonað- ist til að geta byrjað að reyna vélarnar og stilla, eftir i’.V.’.V.V.V.'.V.V.’.V.V.V.-. nokkra daga. Hann sagði enn- fremur, það sem við vissum ekki fyrr, að fyrir ljósop sýn- ingarvélarinnar fara 24 myndir á sekúndu þegar verið er að sýna. Fram- kvæmdastjóri bíósins, Guð- mundur Jónasson, sagði að vonir stæðu til að hægt yrði að hefja sýningar um mán- aðamót marz—apríl. Bíóið á að geta rúmað í sæti um 490 gesti. Guðmundur sagði að svo væri Reykjavík orðin stór borg, að miðað við sam- gönguæðar í næsta nágrenni bíósins, þá væri það betur staðsett en ýmis önnur bíó borgarinnar. Áður en langtji um líður mun það m. a. liggja við „þjóðbrautina“ í"■ hið fjölmenna Hvassaleiti, enj* í næsta nágrenni þess er ogJ« að rísa fjöldi húsa. Smiðirnir Ji sögðu, að kyndikerfi bíósinsj* ætti að vera svo öflugt, aðj* hægt yrði með blásurum fráj« miðstöð að hita húsið upp áj* einum 10 mínútum. MyndinJ. var tekin af þeim GuðmundiJ. Jónassyni framkvæmdastjóra J. til vinstri og Jóhanni Sigur-J. jónssyni sýningarstjóra, semj! var að vinna við sýningarvél-j! ina. (Ljósm. Vísis I. M.) í annað en björgunarbátinn, er skipverjar Veigu höfðu yfir- gefið og ekki getað vegna veðurs náð um borð í m.b Frigg. Ægismenn náðu bátn- um og skiluðu honum til Bátaábyrgðarfélags Vestm.- eyja, en Björgunarfélagið af- henti mér síðan bátinn, því hann var ekki tryggður og því mín eign. Við það að ná bátnum um borð í Ægi hafði komizt gat á hann undan haka. Síðast á Stokkseyri eða Eyrarbakka. — Hvað varð svo af þess- um merka bát? hugaðui' nánar og kom þá í ljós, að gúmmíið í honum var tvöfalt, sem verið hefir orsök þess að báturinn tæmd- ist svona seint. Var nú skor- ið stykki úr ytra byrði hans til að geta gert við gatið, sem var á því innra. Af þessu má ráða að telja verður, að báturinn hefði haldizt töluvert lengi á floti, jafnvel þótt öngull eða nagli hefðu sett gat á hann. Seldi eg nú bátinn fyrir sama verð og eg keypti hann, og í þeirri von að eg gæti fengið yfirbyggðan bát, sem þá voru farnir að ryðja sér til rúms eftir fengna happa- sæla reynslu og ómetanlegt gagn þessa fyrsta báts. Það síðasta er eg frétti af bátn- um ári seinna var, að hann var notaður sem skjöktbát- ur til flutninga á mönnum út á bátabólin á Stokkseyri eða Eyrarbakka. — Eg kveð nú Kjartan og þakka honum fróðlegt sam- tal og óska honum og útgerð hans gæfu og gengis. Sigfús J. Johnsen. Nokkrum dögum eftir að eg hafði fengið bátinn þurk- aði eg hann og geymdi hann fram á næsta sumar þar til búsettur maður hér, ættaður af Stokkseyri, falaði bátinn af mér til kaups fyrir kunn- ingja sinn á Stokkseyri eða Eyrarbakka. Eg fór með bátinn til við- gerðar og lét líma hann, dældi hann upp og bar þá ekkert á leka í fyrstu, en eft- ir 1 til tvo daga var hann tómur. Var þá báturinn at- Eslenzkur dósent í Fyrir nokkru var dr. med. Stefán Haraldsson, að lokn- lun próffyrirlestrum gerður dósent í orthopedi við há- skólann í Lundi í Svíþjóð. Stefán Haraldssón er son- ur Haraldar Björnssonar læknir Lundi leikara. Hann er stúdent frá Menntaskólanum í Reykja- vík og hefur stundað nám í læknisfræði við ýmsa há- skóla. Haun er 39 ára að aldri.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.