Vísir - 02.03.1962, Page 15

Vísir - 02.03.1962, Page 15
Föstudagur 2. marz 1962 V ! S 1 R 15 \ CHARLES JACKSON: NÆIU gengum um ganginn. Gerald var þögull við morgunverð- inn; hann sagði ekki orð. Hann leit ekki á mömmu og ekki á okkur. Þegar við höfðum lokið við að borða sagði mamma: — Don og WarÉick, þið far- ið í skólann núna. Þið þurfið ekki að bíða eftir Gerald. Hann ætlar að vera heima stundarkorn og fara með Henrik frænda á lestarst.öð- ina, þegar allir aðrir eru komnir í skólann. Ætlarðu ekki að gera það, Gerald? Og um hádegið, þegar þið komið heim að borða, verður hér allt eins og venjulega. Henrik frændi ykkar verður farinn og Bartles fólkið eru þau einu, sem vita nokkuð um þetta, og við reynum öll að gleyma þessu. Ég á við það, sagði hún, — að þetta var — jæja, — dálítið óþægi- legt fyrir sum af okkur, ef til vill, og ég er viss um að Hen rik frændi vildi sízt af öllu verða orsök til vandræða fyr ir Gerald eða nokkurn annan. Er þetta ekki satt, Gerald? Gerald mælti eklti orð. — Mér þykir fyrir því að verða að biðja þig um þetta, sagði mamma, — en þú ert nú nokkurs konar húsbóndi héma í húsinu og sá eini, sem getur gert það . . . Svona far- ið þið nú á stað, Don. Þið Warwick farið nú í skólann. Gerald kemur ekki í skólann fyrr en seinna. Um hádegið þegar við War wick komum ofan götuna og snerum að húsinu okkar sá- um við undarlega sjón á bak dyratröppunum. Dýnan úr rúmi Warwicks, þar sem Henrik frændi hafði sofið, var breidd út yfir girðinguna á tröppunum og það var dökk ur blettur á henni. Og á þvottasnúrunni, baka til, hengu lök og jafnvel ábreið- an úr rúminu. Gerald kom heim skömmu síðar og þegar við settumst við miðdegisverðarborðið vor um við öll afskaplega vand- ræðaleg. Eftir stutta stund sagði mamma. — Jæja, Ger- ald, ætlarðu að segja mér hvernig fór? Mig langar til að vita þetta, ef þú vilt segja mér það. — Ojá — jæja, sagði Ger- ald og virtist fara undan í flæmingi. — Hvers vegna ætti ég ekki að segja þér það ? Við gengum bara til stöðvar- innar og fórum bakvegi. Og1 ég keypti handa honum far-j seðil til Chicago, eins og þú sagðir mér. Þetta er allt og sumt. — Beiðstu eftir því að | lestin kæmi inn ? sagði mamma, — og fylgdirðu hon- um upp í lestina? — Já, það gerði ég, sagði Gerald, án þess að líta á nokkurt okkar. — Hann skreið upp í lestina og ég fékk honum gömlu ferðatösk una, sem þú gafst honum — hann veifaði til mín og ég veifaði á móti — og þá er sagan búin. — Ég mætti ekki neinum, sem við þekkjum, mælti hann ennfremur háðs- lega — ef það er það sem þú átt við. — Nei, Gerald, sagði mamma, — þú reizt uð það var alls ekki það sern ég átti við. Við mötuðumi.il þöfful eftir þetta, þangað til síminn hringdi. Gerald stóð upp til þess að anza honum. Hann kom aftur eftir andartak. — Það er til þín, mamma, sagði hann, — það er faðir Dillon. — Ja héma, sagði mamma og stóð upp. — Hvers vegna er katólski presturinn að hringja til mín? — Hvernig ætti ég að vita það, sagði Gerald. — Hann sagðist vilja tala við þig. Mamma fór inn í dagstof- una og að símanum. Við heyrðum hana segja: — Já, faðir Dillon ? Já — Oh — Mér þykir ákaflega mikið fyrir þessu ... Já, hann er það . .. Já, það er rétt, hann er það, faðir Dillon. — Gerið svo vel að lofa mér að hringja yður upp aftur — má ég það ekki ? Ég verð að hugsa mig um fyrst. Þakka yður fyrir, faðir Dillon. Ég ætía að síma aftur eftir stutta stund. Mamma kom aftur inn í borðstofuna. Hún studdi báð um höndum á borðið leit á Gerald og sagði: — Gerald, þú laugst að mér! Hvers Húr i Gamla Híé — folý tóntæki — ® Aðeins 71689 innflytjendur komu til Kanada ilrið seni leið — og er það ein Iægsta inn- fiytjendataia þar i landi uni Iangt árabil. • I Austurríki hafa lieilbrigðis- yfirvöldin varað við að nota rigningarvatn eða bráðinn snjó til matar eða drykkjar. Orsök- in: Aukin geisiavirkni. GAMLA Bló liefur nú feng- ið stórmyndina Ben Húr til sýningar — og ný tóntæki sett upp í kvikniyndahúsinu af því tilefni. Af þeim ellefu „Oscar“-verð launum er kvikmyndin Ben- Húr hlaut á sínum tíma, voru tvenn veitt fyrir „beztu drama tisku músík" og „beztan hljóm". Og í tilefni af sýning- um á Ben-Húr hafa verið sett upp í Gamla Bíó tóntæki af nýjustu og fullkomnustu gerð, fyrir svokallaðan margrása segultón. Tóntæki þessi, sem eru frá Philips-verksmiðjunum hollenzku, framieiða stereofón ískan hljóm, og gera það mögu legt að hljómflutningur á tali og tónlist kvikmyndarinnar verði með sem mestum raun- veruleikablæ. SHkur hljóm- flutningur var fyrst notaður erlendis í Cinerama-kvikmynd- unum, og siðar í sambandi við TODD-AO kvikmyndirnar. Til þessa hefur verið notuð ein há talara-samstæða i kvikmynda húsum, sem komið var fyrir bak við mitt sýningartjaldið, og tal og tónlist kom ávállt frá einum og sama stað. Hin nýja aðferð notast við marg- ar hátalara-samstæður, sem eru dreifðar bak við allt sýn ingartjaldið, þannig að það er tryggt að hljóðið komi i hvert skipti frá réttum stað mynd- flatarins. Ennfremur er hátöl- urum komið fyrir frammi i á- Barnasagan Kalli kafteinn 41 Vinir okkar heyrðu prófes- sor Blaðgræn koma með hjól börur fullar af körfum og þeir fiýttu sér að fela sig bak við runna. „Hann ætiar að senda piönturnar út á sjó strax I dag og síðan eiga þær að synda yfir hafið og ráðast á megin- löndin og eyða mannkyninu". „Tiuþúsundhákarlar", tautaði Kalli, „strax í dag? £>á verð- um við að gera eitthvað þeg- ar í stað, áður en það er um * FLJÓTAND! EYJAN seinan. Hvað getum við tekið til bragðs?" „Já, en þvi hef ég séð fyrir", sagði Tommi hlæjandi. Og síðan útskýrði hann fyrir Kalla og Stebba, hvað hann hafði verið að gera alla nóttina. „Og allar nýju Stepparis Vulgarisurnar eru nú orðnar plöntuætur og eru nú í fullum gangi að rífa kjöt- ætur prófessorsins í sig". Kalli andvarpaði af feginleik og klappaði Tomma á öxlina. Hann varð að viðurkenna að Tommi litli væri dugnaðar strákur, það yrði áreiðaniega eitthvað úr honum. Enginn þeirra sá andlit prófessorsins, þegar hann kom inn í gróð- urhúsið, en þeir heyrðu, er hann æpti upp yfir sig. horfendasalnum, til að auka enn áhrif hljómflutningsins og gera hann sem eðlilegastan. Kostir hinna nýju tækja munu greinilega koma í ljós, þegar sýningar á Ben-Húr hefjast. Tóntækin, sem Gunnar Þor- varðsson annaðist uppsetningu á, munu verða notuð við allar meiriháttar kv-ikmyndir, sem Gamla Bió fær I framtíðinni. UM KVIKMYNDINA. Ben-Húr er gerð af banda- riska kvikmyndafélaginu MGM í Cinecitta-kvikmyndaverinu í nánd við Rómaborg. Kostnað- ur við töku myndarinnar varð 15 millj. dollara (um 645 millj. ísl. króna), enda er það dýr- asta kvikmynd, sem gerð hef- ur verið til þessa. Kvikmynda- takan hófst 20. mai 1958 með kvikmyndun kappakstursins mikla, og tók það þrjá mán- uði að gera það atriði mynd- arinnar, en alls stóð taka myndarinnar yfir S tíu mán- uði. Áður en sjálf myndatakan hófst, hafði undirbúningur hennar staðið yfir I fimm ár. T. d. unnu yfir eitt þúsund ítalskir smiðir og verkamenn S heilt ár að þvi að útbúa hið mikla hringsvið, þar sem kapp aksturinn fer fram. En alls eru leiksviðin um þrjú hundr- uð talsins I myndinni. Þá þurfti að smiða 50 skipslíkön fyrir sjóorustuna; 78 sérstak- lega tamdir hestar voru keypt- ir frá Júgóslavíu, 12 úlfkldar frá Norður-Afríku og allt eft- ir því. Til að stjórna öllum þessum framkvæmdum var val inn kvikmyndaframleiðandinn Sam Zimbalist, en meðal kunn- ari kvikmynda hans eru „Quo Vadis" og „Námur Salómons konungs", Zimablist lézt af hjartabilun i Rómaborg, áður en myndin var fullgerð. Leik- stjórn í myndinni hafði með höndum William Wyler, og er hann talinn vera einn vandvirk asti kvikmyndastjóri, sem nú er uppi. Hann hlaut „Oscar"- verðlaunin árið 1960 fyrir leik- stjórn sina i Ben-Hur. Er það í þriðja sinn, sem honum hlotn ast sá heiður.. Ben Hur hefur hlotið ellefu „Oscar"-verðlaun og hefur engri kvikmynd áður hlotnazt slikur heiður. Hún var m.a. verðlaunuð bezta mynd ársins — Charlton Heston bezta leikafrek — bezta lit- kvikmyndun — beztu leiksvið — beztu búningar — beztu tón list — beztan hjjóm o.fl.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.