Vísir - 08.03.1962, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. marz 1962
VI6IB
s
Bitnar ekki
á Loftleiðum
■ segir Krfstján Guðlangs-
son frs. Loftleiða h.f.
í tilefni af frétt á öðrum
stað hér í blaðinu í dag sneri
Vísir sér til formanns félags-
stjórnar Loftleiða h. f., Krist-
jáns Guðlaugssonar hrl. og
innti hann eftir því hvaða
áhrif fargjaldalækkun stóru
flugfélaganna hefði á starf-
semi Loftleiða.
Kristján Guðlaugsson sagði,
að sú fargjaldalækkun hefði
engin áhrif á starfsemi Loft-
leiða og ekki fyrirsjáanlegt að
hún bitnaði á þeim í því formi
sem hún kemur fram í. Það
■
er fyrst og fremst, sagði
Kristján af því áð Loftleiðir
flytja yfirleitt fáa ferðamanna-
hópa. f öðru lagi eru þær regl-
ur, sem flugfélögin hafa sett
um þessi hópfargjöld þess
eðlis, að það er erfitt, einkum
fyrir ameríska farþega, að not-
færa sér þau hlunnindi sem
þar eru boðin. Meðal annars
vegna þess að fargjaldaafslátt-
urinn er ekki í gildi um helgar,
en það er ekki sízt sá tími sem
fólk notar til ferðalaga.
Við liöfum bætti Kristján
ennfremur við, verið á öðrum
markaði bæði austan hafs og
vestan. Og þar við má bæta
að ferðamönnum þeim, sem
viðstöðu hafa á íslandi, fer
stöðugt fjölgandi. Þar af leið-
andi sjá Loftleiðir h. f. ekki
ástæðu til að breyta fargjöld-
um sínum að svo komnu máli
og við reiknum heldur ekki
með að þessi ákvörðun stóru
flugfélaganna hafi nejn áhrif
á farþegafjölda eða farþega-
þjónustu Loftleiða.
Skipstjórinn —
Frh. af 16. s.
vegar hefur enn ekki fengizt
upplýst, hver það var. sem
greiddi öðrum ungum Siglfirð-
ingi hnefahögg. Var það högg
greitt í þvögu en alls höfðu
fimm skipsmenn af brezka
togaranum farið í land.
Geoffrey Roberts viðurkenn-
ir að hafa brotið stóra rúðu í
Diddabar og ennfremur að hafa
hellt bjór niður á menn sem
þar voru. Hafa nú verið bornar
fram skaðabótakröfur á hendur
honum fyrir rúðubrot, meiðsl
og skemmdir á fötum sem
munu nema í kringum 15 þús-
und krónum.
Kom kurteislega fram.
Hinn’ ungi skipverji sem varð
svona æstur í ölvunarástand-
inu fyrir tveimur dögum kemur
hins vegar mjög vel og kurteis-
lega fram fyrir réttinum og er
hinn myndarlegasti pilt'ur að
ytra útliti.
Bretarnir hafa og látið þau '
orð falla, að þeir hafi aldrei
sætt kurteisislegri meðferð hjá
lögreglu en nú hjá lögreglu
Siglufjarðar. Eru þeir fullir
iðrunar og yfirbótar yfir þess-
um óhappaverkum.
Þeim hefur verið skipaður
réttargæzlumaður, Einar Hauk-
ur Ásgrímsson verkfræðingur,
dómtúlkur er Knútur Jónsson
fulltrúi hjá Síldarútvegsnefnd,
en Ármann Jakobsson lögfræð-
ingur fer með skaðabótakröf-
urnar.
Enn er óvíst hvenær dómur
verður kveðinn upp yfir skip-
stjóranum og árásarmanninum.
Framh. af 1. síðu.
að hér væri um kynþáttaofsókn
að ræða og réðst gegn hinum
óeinkennisklædda lögreglu-
manni og var hann sleginn nið-
ur.
Handtekinn.
Við þetta komst svertinginn
enn undan en brátt þrengd-
ist hringurinn um hann. Hann
hljóp gegnum Ködbyen og alla
leið út að Enghave. Þar var
hann loksins gripinn eftir lang-
an eltingaleik og var þá laf-!
móður af hlaupum og uppgef-
inn.
Dröfn dregin
tiE Kefiavíkur
Vélbáturinn Dröfn frá
Hafnarfirði var á leið til
heimahafnar í gær er vélin
bilaði út af Gerðatanga.
Var hvöss hafátt og kall-
aði báturinn á hjálp gegnum
Keflavíkur Radíó. Kom Sæ-
ljón úr Vogum honum til
lijálpar og dró hann inn til
Keflavíkur.
Stórfelld Sækhun far-
gjalda yfir Atlantshaf
Á laugardaginn taka
sfóru flugfélögin á ieiðinni
yfir Atlantshafið upp ný
og miklu lægri fargjöld en
áður. Fargjaldalækkun
þessi gildir aðeins fyrir
hópferðir. Með henni von-
ast fiugfélögin eftir stór-
auknum flugferðum. Búast
|>au við 25—30% aukn-
ingu flugferða við slíka
íækkun. Þau búast eink-
um við því að með þessari
breytingu hefjist mikill
straumur evrópskra túrista
til Ameríku, en fram að
þessu hefur straumurínn
aðallega veríð ameriskir
túristar til Evrópu.
300 dollara
New York — London.
Eftir þessa fargjaldalækkun
mun flugið fram og aftur yfir
Atlantshaf kosta um 300 doll-
ara og getur jafnvel farið niður
í 2V4 dollára á mann, ef um er
að ræða 25 manna hópa eða
meira. Gildir það fargjald þá
milli New York og Shannon á
írlandi. Milli New York og
London verður farið 300 doll-
arar, New York og Róm 385
dollarar. Hægt verður að fá far
á þessu gjaldi allan ársins
hring. Til samanburðar má
geta þess, að skrifstofa Loft-
leiða gefur þær upplýsingar að
fargjald New York—London
fram og til baka sé 416 doll-
arar.
Þotumar fylltar.
Með þessari fargjaldalækkun
vonast stóiJu flugfélögin eftir
því að flugvélarnar fyllist af
farþegum, en síðan þoturnar
komu til skjalanna hafa þær
flogið hálffullar yfir hafið.
Með fjölgun flugfarþeganna
vonagt flugfélögin einnig til að
þau geti ’ dregið úi tapinu á
flugleiðinni yfir Atlantshafið
sem skipti milljónum dollara á
síðasta ári.
Mill jónat jón
Framh. af 1. síðu.
eftir því, að rennur og ýmis
iönnur tæki, sem notuð voru til
flutnings og vinnslu á salti, var
koparslegið og datt honum í
hug að e. t. v. váeri orsökina
þar að finna. Tók hann þá til
salt. Hefði þégar verið söltuð
60—70 tonn af fiski úr þessari
blöndu og var nú beðið eftir
því, hvort gula.kæmi þar fram.
Þar átti að fleygja um 200 tonn-
um af salti í sjóinn. Hraðfrysti-
|hús Þórkötlustaða hafði fengið
við rannsóknir hér heim_ og um 80 tonn af salti og notað
tókst að framleiða sams konar, meirihlutann, en um 5 tonn
gulu í fiski, með því að blanda voru sýnilega skemmd. Hjá
örlitlu magni af kopar í saltið. Gjögur h.f. voru ca. 10 tonn af
Vegna þessara rannsókna Geirs fiski ónýt, hjá Arnarvík h.f. á-
voru öll kopar- og eirtæki bann- líka magn og svo mætti lengi
færð í sambandi við saltvinnslu telja.
og flutning, enda hefur ekki
borið á þessu síðan. |
Nú hefur verið upplýst, að
skip það, er flutti 900 tonna1
Fiskur með þessum lit er ó-
seljanlegur á venjulega mark-
| aði, eða að reynt; verði að harð-
. . . fellur geysilega í verði, jafnvel
saltfarm til Suðurnesja fynr , ... .______* ..
. u__ ijt _____f. , Pott hsegt verði að selja ^ann
sem gallaða vöru á aðra mark-
nokkru, hafi þar áður verið í
brotajárnsflutningum, og eru
allar líkur til þess að kopar-
agnir hafi leynzt í lestum þess,
en ekki mun þurfa nema einn
aði, eði að reynt verði að harð-
þurrka hann og selja til Suður-
Ameríku, en líklegt þykir að
.... , ,,. . guli liturinn deyfðist mikið
hluta kopars a moti milhon af l •* ,__
, , , „'við harðþurrkun. Bar ollum
salti til að spilla þvi, en það ... ,. .
, . . syðra saman um það, að fisk-
þyðir, að eitt kilo kopars í lest- . ... , ,
’ . urinn væri gæðavara, þrátt fyr-
um skipsins hefði nægt til að
gereyðileggja allan farminn.
Geir Arnesen hefur tekið sýn-
ishorn af saltinu og er það í
rannsókn en niðurstöður munu
ekki kunnar ennþá. í samningi
Kal & Salts við eigendur salt-
skipsins, er tekið fram, að eig-
endur ábyrgist að kopar kom-
ist ekki í saltið í skipinu.
Við athugun fiskimatsstjóra
í gær, kom það greinilega í ljós,
að þær verstöðvar, sem fengið
höfðu salt síðast úr skipinu, þ.
e. a. s. neðst úr lestinni, höfðu
orðið harðast úti, enda tóku
þeir þegar eftir því, að síðustu
bílfarmarnir voru mun dekkri
og fóru jafnvel fram á afslátt
af þeim sökum. Þykir því sýnt,
að koparagnir hafi leynzt í lest-
arbotninum og eyðilagt saltið
sem var neðst i lestinni, enda er
sá fiskur, sem saltaður var með
því þegar orðinn dökkgulur. Er
óvíst, hve mikill hluti saltsins
hefur verið koparmengaður, en
því minna sem koparmagnið er,
því lengri tíma tekur það að
koma fram á fiskinum. Þar að
auki var saltinu víða blandað
saman við eldra salt, sem fyrir
var, og hefur ekki tekizt að
grafast fyrir um, hvað orðið
hefur af öllu því saltmagni, sem
með skipinu kom, en það dreifð-
ist víða um Suðurnes. Er því
ekki csennilegt að skemmdir
eigi eftir að kóma víðar fram á
næstu vikum, og verður ekki
hægt að meta skaðann fyrr en
að nokkru ‘ tíma liðnum, en
víst er að hann skiptir milljón-
um.
Fiskimatsstji' ri gat þess í
gær að við lauslegan útreikning
mætti áætla, að í hvert tonn af
salfiski færi um tonn af salti.
Samt mun reynast erfitt að
gizka á það fiskmagn, sem get-
ur skemmzt, því að bæði er það
að ekki hefur allt saltið verið
notað. en sums staðar b'andað
öf 'u salti. tem dæmi þess má
benda á að hjá Þorbirni h.f.,
hafði 137 tonnum af menguðu
salti verið blandað í gamalt
ir litinn, sem engin áhrif hefur
á bragðið. Kom til orða, hvort
ekki mætti sel,ia hann á innan-
landsmarkaði, en lög munu
mæla svo fyrir, að engan fisk
megi selja hér, sem ekki er í
öðrum gæðaflokki eða ofar, en
fiskur með þessum göllum verð-
ur ekki metinn í gæðaflokk, og
virðist sú leið því útilokuð, jafn-
vel þótt hér sé aðeins um út-
litsgalla að ræða.
Vitasklplð
Frh. af 16. s.
— Að sjálfsögðu er þetta
skip verulega minna en t. d.
Óðinn og getur aldrei komið
að sama gagni og hann til
gæzlustarfa, þegar t. d. þarf að
veita togurum eftirför, sem
ætlar að komast undan. Hins-
vegar má geta þess, sagði
Hjálmar R. Bárðarson, að sér-
stakar ganghraðaprófanir voru
gerðar f tilraunastöð í Dan-
mörku. Var eg sjálfur viðstadd-
ur þessar prófanir. Línur í
skrokki skipsins reyndust það
góðar, eins og þær voru upp-
haflega hugsaðar, að sérfræð-
ingar tilraunastöðvar þessarar
töldu ekki neina ástæðu til að
breyta skrokklínum hið
minnsta. Verður ganghraði
skipsins, sem verður eins og
eg sagði áðan, um 350 tonn,
eins mikill og hægt er að fá
miðað við vélaorku, stærð
skipsins og gerð. Þessi gang-
hraðaprófun var gerð með það
fyrir augum, að skipið verði
notað að einhverju leyti til
gæzlustarfa við lgndið. Til
björgunarstarfa mun tæplega
vera annað skip í flotanum
hentugra. Skip eins og Óðinn,
sem að sjálfsögðu er fullkomið
sem gæzluskip, myndi hinsveg-
ar ekki henta vitamálunum til
flutninga og annarar þjónustu
við vitana hríngum landið.
sagði skipaskofunarstjóri að
lokum.