Vísir - 08.03.1962, Blaðsíða 16

Vísir - 08.03.1962, Blaðsíða 16
VISIR Hnuntudagur 8. marz 1962 iW.WJW.VJ W.W, I Bingó í Keflavík jl Bingó í kvöld í Aðalveril* jlkl. 21,00. Glæsilegir vinn-I* jlingar. Ókeypis aðgangur. I* 1» Sjálfstæðisfclögin !• í Keflavík. I' biöst auð- mjúklega afsökunar ÞaS er mál manna a Siglufirði, að það sé mesta mildi að pilturinn 15 ára, sem varð fýrir árás Eng Iendings í fyrradag, sé ekki miklu meira slasaður en raun er á. Hefur Geoffrey Roberts * Vitaskipinu 9Arvakur6 hleypt af stokkum í MORGUN klukkan 8,30 eft- ir hérlendum tíma, var nýju ís- lenzku skipi hleypt af stokk- unum í skipasmíðastöð einni suður í Hollandi. Þetta er hið nýja skip Vita- og hafnarmála- stjórnarinnar og verður það skírt við þetta tækifæri, svo sem venja er. Það hlýtur nafnið Árvakur, og mun vera fyrsta skipið í flotanum sem ber það nafn. Þetta nýja vitaskip er smíðað í Bodewes Scheepswerven í Martenhoek. Viðstödd athöfnina verða Aðalsteinn Júlíusson vita- og hafnarmálastjóri, Guðni Thorlacius skipstj., væntanlegur skipstjóri hins nýja skips, og dóttir hans Margrét Thorlacius, en hún mun mölva kampavíns- flöskuna á stefni skipsins og skíra það. Hjálmar R. Bárðarson teikn- aði Árvak og gerði útboðslýsing- ar á skipinu og tók einnig þátt í samningagerðinni um smíði skipsins og átti Vísir stutt sam- tal við skipaskoðunarstjórann í nioiigrto. .Lýsti hann með nokkr- um orðum hinu nýja skipi, en það er 350 tonn. Lengd 43,3 metrar, 8,3 metra breidd og dýpt þess á aðalþilfari 4 metrar. Öflugt skip. Árvakur er frambyggt skip til þess að skapa sem bezt skil- yrði á afturþilfari til að vinna við hinar stærstu baujur sem notaðar eru. Gálgamastur verð- ur á skipinu, og verður við það stjórnborðsmegin bóma, sem lyft getur 12 tonnum og bak- borðsmegin í mastrinu 5 tonna bóma. Á afturþilfarinu verða margar lyftivindur og stór drátt- arvinda og aftast á skiyinu eru rúllur sem þola að lyft sé á þeim 30 tonna þunga. Var þetta gert með það í huga, sagði Hjálmar, að skipið gæti dregið til hafnar stór skip. Vélin verð- ur 1000 hestafla og með skipti- skrúfu. Auk nauðsynlegs lestarrýmis verður í skipinu verkstæði vegna viðhalds og til vig^erð- ar vegna vitanna og að sjálf- sögðu verður það búið öllum hinum fullkomnustu siglingar- tækjum. — Hvað um getu skipsins til landhelgisgæzlustarfa? Framh. á 5. síðu 19 ára háseti á togaranum Ross Archer viðurkennt að hafa slegið piltinn tvö högg i höfuðið með bjór- flösku. Við fyrra höggið brotnaði flaskan á höfði piltsins, en seinna höggið gaf Bretinn með brotnum stúti flöskunnar og skarst hin siglfirzki piltur verst í því höggi. Auðmýkt skipstjóra. Rannsókn hefur staðið yfir í máli Bretanna og er enn ekki fyllilega lokið. Bretarnir hafa komið vel fram í réttinum. Sérstaklega er það athyglisvert, að skipstjór- inn Albert Frederick Hilldrith 34 ára er auðmjúkur í réttinum. Hann gekk fyrir dómarann og baðst auðmjúklega afsök- unar á framkomu sinni, að hann skyldi hafa æst til mót- þróa gegn lögreglumönnunum. Hann kveðst hafa verið yfir sig þreyttur og í vondu skapi vegna bilunarinnar. Þá segist hann og hafa verið örlítið við skál. Sjónarvottar telja hins vegar, að hann hafi verið ofur- ölvi. 15 'þúsund króna skaðabætur. Það er víst að hinn 19 ára háseti Geoffrey Roberts réðist á hinn unga Siglfirðing. Hins Framh. á bls. 5 Eini Grænlend- ingurinn slasast Togarinn Þorkell Máni kom hér inn á ytri höfnina í gær- kvöldi um klukkan 9, vegna meiðsla eins skipsmannanna, Grænlendingsins Lyberth Sör- en, sem er 24 ára gamall. Slysið vildi til með þeim hætti, að því er blaðið hefur frétt, að hinn ungi maður, sem búinn er að vera um nokkurt skeið á togaranum og talinn dugandi togarainaður, hafi ver- ið í koju er hann slasaðist, snemma í gærmorgun. Hafði hann oltið sofandi út úr koj- unni, en hann var í efri koju, og fallið niður á gólf í klefan- um. Hlaut hann mikið höfuð- högg við fallið. Er hann kom í land virtist hann allhress. — Brunaverðir sóttu hinn slasaða á hafnsögubáti um borð í Þor- kel Mána. Var Grænlending- urinn síðan fluttur í Landa- kotsspítala. Lyberth Sören er eini Græn- lendingurinn á flota lands- manna, en hann er talinn eiga heima í Þórshöfn í Fær- eyjúm, en fæddur er hann í Grænlandi. Fara ramenn Líkur eru taldar til þess að verkfall togarasjómanna muni hefjast n. k. laugardag þar eð samningar hafa ekki tekizt um kjör þeirra milli sjómanna- félaganna og togaraútgerðar- manna. Komi til verkfalls mun það ekki leiða • til stöðvunar skipa fyrr en 2—3 daga eftir að verkfallið er hafið. Það mun ná til alls 700—800 manns. í morgun var ekki vitað með neinni vissu hvort sáttasemjari ríkisins myndi kalla fulltrúa deiluaðila á sinn fund. Samningar þeir sem togara- sjómenn hafa nú sagt upp eru frá því á árinu 1958. Breyting- ar hafa þó orðið á fiskverði á þessum tíma og nemur sú hækkun á launum um 10—12 prósent. Togarasjómenn munu vera þeirra skoðunar, að það verð sem ákvéðið var á fiski af verðlagsráði sjávarútvegsins um áramótin, skuli ná til alls þess fisks sem á skip kemur hvort heldur um er að ræða báta eða togara, og þeir túlka þessa fiskverðhækkun á þá leið, að um hana þurfi ekki að semja sérstaklega við togara- sjómenn nú. • ■t

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.