Vísir - 08.03.1962, Side 8

Vísir - 08.03.1962, Side 8
8 V t S 1 R Fimmtudagur 8. nw.4.1962 \ Hér sjást ítölsku blaðamennirnir er þeir komu heim frá Alsír, Allir italskir blaðamenn sem dvöldust í Algeirsborg til þess að fylgjast með hin- um miklu tíðindum þar eru nú farnir heimleiðis eftir að hermdarverkafélagið OAS hótaði að myrða þá alla, ef þeir yrðu ekki þegar á brott. Áður höfðu margir þessara blaðamanna orðið fyrir að- kasti og árásum OAJS-manna, sumir voru teknir með valdi og haldið sem gíslum. Aðrir höfðu hlotið líkamsmeiðing- flokkar í Kongó veitt þeim grið og frelsi til að ferðast um og fylgjast með bardög- um. — Það er greinilegt, sögðu blaðamennirnir, að OAS- menn eru meiri villimenn en frumstæðustu svertingja- þjóðir í Afríku. uðu að veita mótspyrnu voru beittir valdi og yfirbug- aðir, Gátu ofbeldismennim- ir farið sínu fram og kom engin lögregla ftölunum til hjálpar. OAS-mennirnir sögðust myndu skila tækj- unum, þegar Alsír-málið væri úr sögunni. ítölsku blaðamennirnir | voru tólf talsins. Þeir bjuggu 1 allir á hinu kunna Aletti-1 gistihúsi, en þar býr fjöldi 1 annarra blaðamanna af ýms-1 um þjóðernum. Af þessum | hóp voru sex útvarps og g sjónvarpsmenn. Hinlr voru 1 frá stærstu dagblöðum Ítalíu, frá Rómaborg og Milano. f síðustu viku höfðu sjón- varpsmennirnir verið úti í Arabahverfinu Kasbah og tekið þar nokkrar kvikmynd- ir er sýndu líf fólks þar og skemmdarverk sem unnin | höfðu verið. Þegar þeir | sneru heim biðu þeirra hót- | anabréf frá OAS, þar sem | sagt var að þeir yrðu skotnir jjj ef þeir héldu áfram kvik- myndatökunum. Á laugardagsmorgun ók bifreið með allmörgum vopn- uðum OAS-mönnum upp að hótelinu. Hermdarverka- mennirnir þustu inn í hótelið og komu inn í stórt herbergi þar sem ítölsku blaðamenn- irnir voru fyrir. .J Vanir hættum. Blaðamemnrnir voru treg- I; ir á að hverfa á brott, því að þeir eru flestir úrvalsmenn, vanir að fylgjast með styrj- !j öldum, svo sem stríðinu í Kongó og vanir að leggja sig Ij í lífshættu. Ástæðan fyrir því, að þeir létu hér undan hótunum er sú, að svo virt- I; ist sem OAS félagsskapurinn !; væri allsráðandi í Algeirs- !; borg og ekki var um að ræða I; neina vernd frönsku lögregl- I; unnar. Það hefði því verið I; sama og að ganga út í opinn !; dauðann að dveljast þarna I; lengur. I; Þetta atvik er nær því eins !; dæmi í sögu alþjóðablaða- !■ blaðamennskunnar, því að !» oftast viðurkenna allir að- !■ ilar hin óskráðu lög að blaða- !• menn skuli fá að vinna í friði !; og horfa á þá atburði sem ;■ eru að gerast. Minntust sum- ;■ ir ítölsku blaðamennirnir ;■ þess, að nokkrum mánuðum ;• áður höfðu frumstæðir ætt- Giovanini blaðamaður við ;, La Stampa sem fékk af- ;! lienta úrslitakosti OAS. ■! Síðdegis á laugardag kom !• nýr hópur OAS-manna á hót- !■ elið. Þeir handtóku blaða- !• manninn Giovanini frá !■ Torino-blaðinu LaStampa og !• óku með hann á miklum !• hraða um götur Algeirsborg- !< ar. Þeir voru vopnaðir vél- byssum og við og við hleyptu ;■ þeir skotum úr byssunum út !■ í loftið svo ekki er ólíklegt !■ að einhverjir vegfarendur ;■ hafi særzt eða fallið, þótt ;• Giovanini sæi það óglöggt !■ vegna hins mikla hraða. ;■ Kvikmyndatækjum rænt. OAS-mennirnir leituðu nú í herbergjum ítalanna og hirtu öll sjónvarps- og kvik- myndatökutæki og þar á með al filmur sem míyndir höfðu verið teknar á. Ennfremur segulbandstæki og voru þessi tæki áætluð að verðmæti um 5 milljónir íslenzkra króna. Blaðamenn sem ætl- Úrslitakostir. .J Illfæðismennirnir afhentu !j Framhald á bls. 10 •; ÚTGEFANDi: BLAÐAÚTGÁtAN VÍSIR Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45,00 á mónuði. — í lausasölu krónur 3,00 eintakið. Sfmi 1 1660 (5 línur). — Félags- prentsmiðjan h.f. Steindórsprent h.f. Edda h.f. Kosningasöngur Tímans Eins og sagt var hér í blaðinu í gær er Tíminn nú byrjaður aS kyrja gamla sönginn sinn um stjórn Sjálf- stæðisflokksins á höfuðborginni. Og svo hrifinn er ritstjórinn af samsetningi sínum, að hann birtir sama leiðarann tvisvar, svo til óbreyttan. Það hefur löngum þótt broslegt, hve annt Tíma- mönnum verður um hag Reykjavíkur, þegar líður að borgarstjórnarkosningum. Þess á milli verður þess lítið vart, að þeir vilji veg hennar í ríkinu. Skrif Tím- ans um Reykjavík hafa lengst af einkennst af öfund og hatrí. Blaðið hefur reynt að sverta íbóa borgarinnar í augum annarra landsmanna og hamrað á því við sveitafólkið, að Reykjavík sæti yfir hlut þess. Þessi áróður hefur auðvitað fyrst og fremst verið ætlaður til þess, að rýra fylgi þess stjórnmálaflokks, sem meiríhluti borgarbúa hefur trúað fyrir málum höfuðstaðarins um áratugaskeið. En svo langt hefur óhróðurinn gengið, að almenningur í borginni hefur verið kallaður „Grímsby-lýður“ og öðrum álíka nöfn- um og talinn standa öðrum landsmönnum langt að baki um siðferði og manngildi. Reynslan ætti að hafa sannað Tímamönnum það fyrír löngu, að þessi baráttuaðferð er ekki heppileg til þess að auka fylgi Framsóknarflokksins í höfuðstaðn- um, þótt hún kunni að hafa reynzt honum vel annars staðar. Og auðvitað er þeim þetta ljóst. En þeir vita jafnframt, að hvaða ráðum sem þeir beita, hafnar allur þorrí Reykvíkinga Framsóknarkenningunni. Og það eru þau vonbrigði, sem valda því, að mennirnir við Tímann missa stjóm á skapi sínu og velja borgar- búum ýms verstu ókvæðisorð tungunnar. Það vekur því almennan hlátur, þegar Tímamenn snúa allt í einu við blaðinu, rétt fyrir kosningar, og fara láta sem þeim þyki vænt um Reykjavík! Alltaf gegn Reykjavík Þegar Framsóknarflokkurinn hefur verið í ríkis- stjórn og ráðið þar miklu eða öllu, hefur afstaða hans til Reykjavíkur ævinlega verið hin sama. Hann hefur ýmist tafið eða stöðvað öll hagsmuna- og framfaramál Reykjavíkur, sem ríkisstjórn hans gat haft áhríf á. Má þar nefna afskipti dians af Sogsvirkjunarmálinu fyrr og síðar, og var það þó ekki mál Reykvíkinga einna, heldur snerti það líf og hagsmuni fólks um allt Suðvesturland. Skríf Tímans fyrr og síðar um lélega fjármálastjórn í Reykjavík hafa verið hrakin lið fyrir lið, og þegar samanburður hefur verið gerður á fjármálastjórn Ey- steins Jónssonar á þjóðarbúinu og Sjálfstæðismanna á Reykjavík, hefur útkoman orðið Framsókn mjög óhag- stæð. Mátti lesa margt ljótt um Reykjavík og Reykvík- inga, þegar Tímamenn slepptu sér út af þeim saman-

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.