Vísir - 17.03.1962, Blaðsíða 16
Bæjarstjórinn í Hafnkrfirði
skýrði frá því í gærdag, að lok-
ið væri hugmyndasamkeppni
þeirri um miðbæ Hafnarfjarðar,
er efnt var til í maímánuði
1960. Þrír ungir arkitektar hlutu
verðlaun, 1.-3., og féllu 1. verð-
laun í hlut Jóns Haraldssonar,
Björnssonar leikara, Bergstaða-
stræti 83 hér í Reykjavík. önn-
ur verðlaun hreppti Ormar Þór
Guðmundsson sem stund legg-
ur á arkitektur, sonur Guðmund
ar Bjömssonar kennara, Akran.,
! og 3. verðlaun hláut ungur
j Hafnfirðingur, Þorvaldur S. Þor-
1 valdsson, heitins kaupm. Bjarna
i sonar ,arkitekt. Þorvaldur dvelst
nú í Danmörku.
Stefán Gunnlaugsson bæjar-
stjóri gerði í allítarlegri ræðu
grein fyrir máli þessu. Sérstök
5 manná dómnefnd var skipuð,
og áður en hægt var að efna til
sjálfrar hugmyndasamkeppninn-
ar varð að Ijúka allumfangs-
miklu undirbúningsstarfi.
Tilgangur samkeppninnar var
að fá fram hugmyndir að bygg-
ingarfyrirkomulagi og nýtingu
Jón Haraldsson arkitekt fékk
i. verðlaun fyrir skipulagsupp-
drátt að nýjum miðbæ Hafnar-
fjarðar. Hann er 31 árs að
aldri, sonur Haraldar Björns-
sonar leikara og konu hans
Júlíönu Friðriksdóttur. Hann er
stúdent frá Menntaskólanum i
Reykjavík en arkitektaprófi
Iauk hann frá Háskólanum í
Niðarósi fyrir tveimur árum.
Síðan starfaði hann hjá arki-
tektafirma í Helsingfors og er
nú starfandi hjá fyrirtækinu
Gunnlaugsson og Nielsen í
Kaupmannahöfn.
hins takmarkaða miðbæjarsvæð
is Hafnarfjarðar og aðliggjandi
hafnarsvæðis. Einnig var til
þess ætlazt að fram kæmu frum
drög að skipulagi hafnarinnar.
Síðan greindi bæjarstjórinn
frá úrslitum samkeppninnar.
8 tillögur bárust í þessari
hugmyndasamkeppni og liggja
nú fyrir niðurstöður dómnefnd-
ar:
1. verðlaun 50 þúsund krónur,
hlýtur Jón Haraldsson, arkitekt,
Bergstaðastræti 83, Reykjavík.
Aðstoðarmenn hans voru Bene-
dikt Bogason, verkfræðingur,
Selfossi og Sigurður Thorodd-
sen, stud. art, Suðurgötu 66,
Hafnarfirði.
2. verðlaun 30 þúsund krón-
ur hiýtur Ormar Þór Guðmunds-
son, stud. arch. Stuttgart, Þýzka
landi. Samstarfsmaður hans var
Ulrich Stahr, arkitekt.
3. verðlaun 20 þúsund krónur
hlýtur Þorvaldur S. Þorvalds-
son, arkitekt Kaupmannahöfn.
Aðstoðarmenn hans voru Per
| Iversen, Stephan Kappel og
Björn Skánes.
Þessu næst gerði bæjarstjór-
inn að nokkru grein fyrir um-
sögn dómnefndarinnar um þessa
hugmyndasamkeppni. Og sagði
hann m.a.:
„Miðbærinn er tengdur
Reykjavíkurvegi að norðan og
Reykjanesbraut að sunnan með
Strandgötu, sem í dag er megin-
umferðaræð miðbæjarins. Með
| síaukinni bílaumferð er fyrirsjá-
1 anlegt að Strandgatan verður ó-
fullnægjandi og óhéppileg sem
aðalæð í gegn um miðbæjar-
Framh. á 2. síðu.
Stjama St. Mirren-liðsins, Þórólfur Beck er kominn heim snögga
ferð. Félagar hans úr KR tóku á móti honum og tók ljósmyndari
Vísis þessa mynd af honum í gær í Vesturbænum með þeim vin-
um sínum'Gunnari Felixsyni og Ulfari Guðmundssyni.
stóð sig vel
fyrri hálfíeik
NORÐURLANDAMÓT ung-
linga í handknattleik hófst síð-
degis í gær í Danmörku og var
fyrsti leikurinn leikinn í bæn-
um Köge og voru áhorfendur
um 1200 talsins. Fyrsti leikur
mótsins var milli Finna og
Norðmanna, sem unnu með 18
mörkum gegn 11. Næst Iéku
íslendingar gegn Svíum.
í fyrri hálfleik hafði Ieikur-
inn verið alljafn, liðin skiptust
á um að setja mörkin, og í hálf-
leik höfðu Svíar eitt mark yfir
8:7. — Strax í síðari hálfleik
höfðu Svíarnir náð yfirtökum
í leiknum, og Iauk honum með
sigri þeirra 14 mörkum gegn
10.
íþróttafréttaritari útvarps-
ins, Sigurður Sigurðsson, sagði
í íþróttaþætti í gærkvöldi að
bezti maður liðsins íslenzka
hafi Kristján Stefánsson verið
og hafði hann skorað f leiknum
alls 5 mörk. Sagði fréttaritar-
inn ennfremur að lið íslendinga
hefði farið bærilega af stað,
en Svíar hafi mjög harðsnún-
um handknattleiksmönnum á
að skipa, og mun hið sænska
lið vera sigurstranglegasta lið-
ið á mótinu.
Horfur voru á að Danir
myndu ganga með stórsigur af
hólmi í leik sínum á móti Finn-
um í gærkvöldi.
í dag heldur mótið áfram og
mætast þá Danir og íslending-
ar og síðar í dag keppir is-
lenzka liðið þriðja leik sinn á
móti Finnum. Þessir leikir fara
fram f borginni Næstved.
mm
Laugardagurian 17. marz 1962.
í ikmmms-
SéttN
I næstu viku hekiur KFUM |
og K æskulýðsviku f Laugar-
nessókn. En slíkar æskulýðs-,
vikur hafa verið haldnar um,
margra ára skeið og verið
mjög fjölsóttar. Samkomum- ‘
ar eru haldnar á hverju kvöldi I
kl. 8,30.
Fyrsta samkoman verður á i
sunnudaginn og tala þá Gunn-,
ar Sigurjónsson cand. theol. og
Þórir Guðbergsson kennari, en *
Mandaður kór syngur.
Af öðrum ræðumönnum í |
vikunni má nefna Jóhann Guð-1
mundsson flugumferðarstjóra,,
Ingólf Gissurarson húsgagna-
bólstrara, Sigurbjörn Guð- ‘
mundsson verkfræðing, Ólaf I
Óiafsson kristniboða, Frank |
Halldórsson kennara og Ástráð |
Sigursteindórsson skólastjóra.,
Á miðvikudag verður föstu-,
guðsþjónusta og prédikar þá
sóknarpresturinn sr. Garðar'
Svavarsson.
ÆFIN6IN HCFUR BREYTT
ÞÓRÓLFI
í gærkvöldi ræddum við litillega
við okkar vinsæla knattspymu-
mann Þórólf Beck, sem hér er
staddur í helgarfrfi, rétt eins og
þegar menn fara úr nágrannasveit-
um Reykjavíkur í frí til að njóta
lystisemda borgarinnar.
Þórólfur var að ferðbúast er við
komum, var boðinn til kvöldverð-
ar til gamals leikfélaga, Gunnars
Guðmannssonar, en samt sem áð-
ur greiddi hann úr öllum spurn-
ingum fróðleiksfúsra fréttamanna
og sat fyrir meðan Ingimundur
Magnússon ljósmyndari Vísis
smellti allt hvað af tók.
Þórólfur kvaðst nú hafa verið í
Paisley í rúma 6 mánuði, eða síð-
an snemma í september. Síðan
hefur mikið vatn runnið til sjávar,
Þórólfur sjálfur mikið breyttur frá
því sem við þekktum hann, 9 kíló-
um léttari og hraðari að sjá, og
blöðin í Skotlandi undirstrika það
að hann sé orðinn hraður, en fyrir
hraða var hann alls ekki þekktur
sem leikmaður í KR.
— Hvernig líkar þér veran í
Skotlandi?
— Ég get ekki sagt annað en að
mér líki allvel. Þó verð ég að
segja að oft er ég hálf einmana
og sakna strákanna í KR. St.
Mirren-strákarnir eru allflestir
kvæntir menn og helga sig fjöl-
skyldum sínum, er æfingum lýkur,
en hinir, sem enn eru ókvæntir
eru allir miklu yngri en ég, t .d.
McLean, nýi innherjinn, hann er
aðeins 18 ára gamall.
— Og hvað um tungumálaerfið-
leikana?
— Þeir eru nú að heita má úr
sögunni og ég farinn að tala nci:k-
uð sæmilega, og strákarnir í lið-
inu segja oft í gamni að það sé nú
meiri hefndargjöfin að ég skyldi
fá „málið“, því nú sé ég
helv. .... kjaftfor, áður hafi þeir
aldrei vitað þegar ég var að ybba
mig.
— Hvernig er útlitið framund-
an?
— Næsti leikur hjá mér er við
Celtic í bikarkeppninni. Það verð-
ur langstærsti leikurinn minn
hingað til. Við leikum á Ibrox-vell-
inum í Glasgow, en Rangers eiga
þann völl. Þarna er búizt við að
um 60 — 70 þús. manns horfi á
okkur. St. Mirren hefur haft margt
uppi á teningnum í sambandi við
þennan leik, t .d. var ég sendur
heim til að koma ánægður til baka,
því vissulega hefur það sitt að
segja að hafa ánægðan mannskap.
— Útlit fyrir breytingar innan
liðsins?
— Já, ég býst við að ég verðl
nú gerður að innherja, og mér lík-
ar það vel. Bryceland, sem nú er
að koma aftur eftir fótbrot verður
Framh. á 10. síðu.
HLYNAR I ViÐRI
NÚ um helgina mun hlýtt
loft ná til Iandsins og vindur
snúast til suðaustan áttar, og
hlýna í veðri um land allt. —
í dag gerir veðurstofan ráð
fyrir allhvassri austan átt hér
við Faxaflóa með lítilsháttar
/