Vísir - 27.03.1962, Page 5
Þriðjudagur 27. marz 1962.
VISIR
5
Togarar...
Framh. af 1. síðu.
óhagstæður. Hafnarfjarðartog-
arinn Röðull seldi í Bretlandi í
gær 145 tonn af ísfiski, fyrir
aðeins 707 sterlingspund. í
gær átti togarinn Marz einnig
að selja, en svo margir togarar
komu að til löndunar, að Mara
var látinn bíða þar til í dag.
— Á föstudaginn selur Júpiter.
Gert er ráð fyrir að í fyrstu
viku aprílmánaðar muni 4—5
togaiar selja í Bretlandi, en að-
söluferð þeirri lokinni munu
þeir sigla heim, og þykir senni-
legt, að allur togaraflotinn
verði stöðvaður kringum 7.—8.
apríl næstkomandi.
Þessa mynd tók Ijósmyndari
blaðsins í morgun ofan Ur kola-
krana yfir togarabryggjuna við
Ingólfsgarð, og sjást þar all-
margir af þeim togurum, sem
þegar er búið að leggja.
EíturSyf...
Framh. af 1. síðu.
alvarlegs eðlis óg lögreglan
hafði haldið í fyrstu. En hvað
sem öðru liðv. þá væri lögregl
an vel á verði og gerði skyldu
sína eftir fremsta megni.
Vísir leitaði einnig til
Sveins Sæmundssonar yfir-
Iögregluþjóns hjá rannsóknar
lögreglunni og bað hann um
upplýsingar /arðandi eitur-
lyfjanotkunn í Reykjavík, en
Sveinn óskaði ekki eftir að
gefa neinar upplýsingar í
þeim efnum að svo komnu
máli.
tckin — kvað það hafa verið
leyniskyttur OAS sem hefðu
byrjað skothríðina bæði á lög-
regluna og kröfugöngumenn.
í Bab-el-Oued hafa nú verið
handteknir 2300 menn.
FJeiri herskip
send til Alsír.
Frakkar halda áfram að efla
fiotastyrk sinn í Alsír. Þangað
er nýkomið flugvélaskipið LA-
FAYETTE og beitiskipið COL-
BERT úr franska Miðjarðarhafs
flotanum og vörpuðu þau akk-
erum í fiotahöfninni Mers-el- \
Kebir. ,
Landstjóri Frakka í Alsír
flytur ávarp til Alsírbúa í út-
varpi í kvöld. Landstjórinn,
Christian Fouchet, tók við,
starfi sínu um s.l. helgi.
í Oran hafa verkalýðsfélögin
boðað allsherjarverkfall síðdeg-
is til að minnast þeirra, sem j
féllu í bardögum þar um helg- ’
ina.
leikhús þjóSmaa opnar
sýnir 100 hikrit / vor
/Egir...
Framh. af 16. síðu.
Strákarnir voru glaðir og
hressir, þegar þeir stigu í land
úr Ægi. — Höfðu þeir haft
skemmtilega ferð og hlotið góð-
ar veitingar hjá brytanum. Þeir
sem við höfðum tal af vildu
helzt allir komast í Sjómanna-
skólann, en allir voru þeir
ákveðnir í að gerast sjómenn
og höfðu, meira að segja, sum-
ir þegar verið á togurum. Var
ekki laust við að kenndi öfund-
ar hjá þeim yngri yfir þessari
lifsreynslu þeirra eldri.
Þess má geta að í einum
skólanna var farin skíðaferð
um morguninn, en allir sem
þess áttu kost kusu heldur sjó-
ferðina.
Gerviskegg...
Framh. af 16. síðu. ,
gerðist það að flokkar OAS-
manna gerðu hatramma tilraun
til að reyna að leysa þessa
menn úr h'aldi. Réðust þeir á
herbúðirnar með miklu offorsi
og varð harður bardagi á staðn-
um. Eftir að áhlaupi þessu
hafði loks verið hrundið, var
farið að athuga betur fanga þá
sem OAS-menn lögðu svo
mikla áherzlu á að leysa.
Með gerviskegg.
Meðal hinna handteknu var
maður einn þrekvaxinn sem lét
lítið á sér bera. Hafði hann
vegabréf sem hermdi að hann
héti Inglebert. Hafði hann gler-
augu og yfirvaraskegg. Allt í
einu fannst einum liðsforingj-
anum eitthvað vera athugavert
við skeggið. Hann gekk að
fanganum, kippti í skeggið, losn
aði það þá enda var það límt á.
Þá svipti hann gleraugunum af
fanganum. — Komið þér sælir,
Jouhaud hershöfðingi.
Heiðraður -
Framh. af 2. síðu.
þetta lagði Halldór á brattann og
undir forystu hans var Þrótti
komið á legg.
Halldór Sigurðsson. hefur helgað
sig málum unglinganna í Þrótti
síðan hann lét af formennsku, en
nú nýlega var hann kosinn for-
maður fulltrúaráðs félagsins.
Leikhúsdagur þjóðanna er í dag
haldinn í fyrsta sinn f öllum að-
ildarlöndum Leikhúsmálastofnun-
arinnar, ísland þeirra á meðal. Og
Leikhús þjóðanna í París er opnað
í dag f sjötta sinn með sýningum
á þrem grískum sjónleikjunm, sem
Þjóðleikhúsið í Aþenu flytur, en
aðalhlutverkin leika Katina Pax-
inou (sú er lék Piar í myndinni
Klukkan kallar) og Alexis Minotis.
í vor og sumar munu 17 af 42
þátttökulöndum stofnunarinnar
sýna leikrit á eigin tungumáli í
Leikhúsi þjóðanna, en alls verða
leikritin ilm 100. Sýningarnar fara
flestar fram í Sarah Bernhardt
leikhúsinu, en einnig „tilraunaleik-
rit“ í minna leikhúsi. Ástæðan fyr-
ir því, að ekki taka feiri lönd þátt
í leiksýningum ársins, er sú, að
leikfélög frá hverju landi verða að
kosta sjálf sýningarnar og treysta
sér yfirleitt ekki til þess nema
með opinberum styrk. T. d. hafa
bæði Adler’s Wells og Old Vic í
London ekki treyst sér til að
senda leikflokka að þessu sinni
vegna þessa. Og einu sinni var ís-
landi, sem verið hefir aðili síðan
Stjórn hinnar íslenzku deildar
Leikhúsmálastofnunarinnar
skipa Guðlaugur Rósinkranz f.
h. Þjóðleikhússins, Brynjólfur
Jóhannesson f. h. Leikfélags
Reykjavíkur og Jón Sigurbjörns
son f. h. Félags fsl. leikara. —
Þessi mynd var tekin af þeim
í gær. Talið frá vinstri: Brynj-
ólfur, Guðiaugur, Jón.
1957, boðið að sýna Gullna hliðið,
en Þjóðleikhúsið treystir sér ekki
til að kosta sýninguna.
Alsír...
Framh. af 1. síðu.
gerðum hers og lögreglu i Bab-
el-Oued seinustu daga, og var
gengið til miðhluta borgarinn-1
ar. Segja fréttamennirnir, að
skotliríðin hafi ekki byrjað fyrr
en kröfugöngumenn voru komn
ir fram hjá röðum-öryggisliðs-
ins og lögreglunnar. Margir j
þeirra, sem féllu og særðust, i
fengii skotsár i bakið. Frétta-
ritararnir segja og, að þetta
hafi verið þögul kröfuganga þar
ti’ skothríðin hófst.
Eftir skothríðina og eftir að
varpað hafði verið táragas-
sprengjum úr þyrlu á torgið
ruddu lögreglumenn torgið, en
margir höfðu þá flúið.
Lögreglan birti slðar tilkynn-
ingu og kenndi OAS um upp-
Davíð Ólafsson fiskimálastjóri
tók sæti á Alþingi í gæi í fjar-
veru Péturs Sigurðssonar al-
þingismanns.
íþróftir —
Framh. af 2. síðu.
Valur átti ekki í neinum vanda 1
með Víking er þeim hafði loks tek- j
izt að skora, en í hálfleik var stað-
an 0-0, en leiknum lauk 5-1 fyrir
Val. Þróttur vann annan sigur sinn
þetta kvöld gegn ÍBK, unnu 7-5
og voru mun skemmtilegri í öllum
leik sínum. í hálfleik var staðan
4-2. Breiðablik og Haukar skildu
jöfn 2-2 ,en Fram (b-lið) vann stórt
yfir Reyni, Sandgerði, 9-2.
Þannig lauk fyrri hluta þessa'
innanhússmóts ,sem satt bezt að
segja var heldur langdregið. Mót
sem þessi og svo er raunar um all-
flest íþróttamót, verður að byggja
upp fyrir áhorfandann. Þess vegna
hefði átt að hafa keppniskvöldið
styttra. Að standa inni að Háloga-
landi frá kl. 8.15 til 11.30 nær ekki
nokkurri átt .sérstaklega þegar
ekki eru betri leikir en voru að
þessu sinni.
Dómarar kvöldsins stóðu sig að
manni fannst nokkuð vel, en erf-
iðast reyndist þeim að halda
markatölunum í lagi .einkum þeg-
ar leið á kvöldið, og var oft líkast
gamanleik að fylgjast með svefn-
drukknum smápiltunum, sem var
ætlað að fylgjast með töflunni.
Beztu liðin fyrra k"öldið: KR,
I Þróttur og Valur.
-jbp.-
KRISTJÁN
EINARSSON
LÁTINN
Kristján Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölusambands ís-
lenzkra f iskframleiðenda, varð
bráðkvaddur i gær laust eftir há-
degi.
Kristján var fæddur 1. júlí 1893
í Stakkadal á Rauðasandi. Hann
stundaði nám á Hvítárbakka og
lauk síðar 4. bekkjar prófi í
Menntaskólanum (1916). Hóf hann
svo utanskólanám undir stúdents-
prór. en veiktist nokkru fyrir
próf. — Hann var starfsmaður út-
flutningsnefndar 1918 — 21 og
stundaði kaupsýslustöpf um nokk-
urt árabil. Framkvæmdastjóri út-
flutningsdeildar Alliance var hann
1930 — 32, en 1932 var hann einn
af stofnendum Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda og
var forstjóri þess alla tíð. Hann
var einn af stofnendum h.f. Djúpa-
víkur og fleiri fyrirtækja. Kristján
vann um áratugaskeið að málefn-
um sjávarútvegsins og ferðaðist
víða um lönd fyrir SIF til mark-
aðsleitar og m. a. oftar en einu
sinni til Kúbu og Suður-Ámeríku.
Kristján Einarsson var gagn-
merkur maður og með afburðum
vinsæll. Hann var kvæntur Ing-
unni Árnadóttur, prófasts á Stóra-
Hrauni, Þórarinssonar.
\
Norræn
stofnun
Á síðasta degi Norðurlanda-
ráðsins fyrir helgi var sam-
þykkt tillaga þess efnis að
stofna skyldi í Reykjavík nor-
ræna stofnun. Töluðu ýnisir
fulltrúar um það að slík norræn
menningarstofnun gæti haft
stórmikla þýðingu fyrir nor-
ræna samvinnu í heild auk þess
sem hún myndi verka sem
tengiliður íslands við bræðra-
þjóðimar.