Tölvumál - 01.05.1987, Blaðsíða 17
staða samkvæmt reglum neðstu þriggja laganna 1
ofannefndu OSI-likani. Til að unnt sé að tala um
upplýsinganet verður að samræma samskiptareglur allt
upp á sjöunda lag.
Gagnanetið er því aðeins hluti upplýsinganets. Til
viðbótar koma tölvur og stýrikerfi notenda ásamt
viðeigandi hugbúnaði, svo sem EAN, sem getið er hér
að neðan.
Staðaltillögur OSI-líkansins eru dregnar grófum
dráttum og margt þarf að skilgreina nánar. önnur
netkerfi eru starfandi og ná til margra, en nota
hvert sinar samskiptareglur. Þessvegna er auðsæ og
löngu viðurkennd þörf fyrir alþjóðlega samvinnu
þeirra, er hafa vilja samskipti sín á milli.
RARE
Á sviði vísindarannsókna er alþjóðleg samvinna
algeng og eykst frekar en minnkar með ári hverju.
Fljótleg, auðveld og hagkvæm samskipti með hjálp
tölva eru talin meðal forgangsverkefna i því skyni
að efla þessa samvinnu, enda vantar talsvert á að
þau samskiptakerfi, sem notuð eru i dag fullnægi
kröfum timans. Ekki þarf þvi að koma á óvart þótt
mennta- og rannsóknastofnanir í Evrópu hafi nýlega
beitt sér fyrir stofnun samtaka um að koma á
nauðsynlegum endurbótum á þessu sviði. Er hér átt
við RARE-samtökin.
Tilgangur þeirra er:
að skipuleggja uppbyggingu netkerfa fyrir
vísindamenn til þess að unnt sé að tengjast án
yfirgengilegra erfiðleika hvert sem er innan og
utan Evrópu.
að nota OSI-staðla og útfærslur þeirra eins og
þær eru ákveðnar af CEN/CENELEC (evrópskar
stöðlunarnefndir) i þessum tilgangi.
Stofnaðir hafa verið vinnuhópar til að vinna að
ýmsum verkefnum, sem talin eru nauðsynleg til að ná
markmiðum félagsins. Þeir helstu eru:
17