Vísir - 30.03.1962, Blaðsíða 2
2
W ShR
Föst-ueiagur 30. marz—1^62.
1 '■ H
Fyrstu dagamir á Italíu voru sæludagar. Daninn átti að bjarga heiðri Udinese, en þetta
átti'eftir að breytast.
jJSHP
' 'sí
,
Leif Mortensen
óánægður á Italíu
— Ef ég mætti ráða, mundi ég
taka saman föggúr mínar og halda
heimleiðis og Ieika brátt í KB-
Iiðunum. Ég held þetta lif ekki út
nema í mesta lagi eitt ár til við-
bótar.
Það var Leif Mortensen, atvinnu
knattspyrnumaður hjá Udinese,
sem gefur þessa yfirlýsingu eftir
ársveru sína á Ítalíu.
Hann heldur áfram: — Þó að
ég haldi áfram i eitt ár til viðbót-
ar, þó er það eingöngu vegna þess
að ég hef 2 ára samning við Udi-
nese og hann rennur ekki út fyrr
en í júlí 1963. Þangað til hef ég
135.000 d. kr. standandi i banka-
bók, en það eru víst fæstir jafn-
aldrar mínir, sem geta státað af
slíku, því ég er aðeins 21 árs.
„Peningar eru ekki allt“
Meðvitundin um peningana
draga nokkuð úr heimþránni. Ég
veit að ég hef ekki yfir nokkrum
sköpuðum hlut að kvarta, ég vissi
inn á hvað ég gekk, þegar ég und-
irritaði samningana. Ég vissi þó
ekki að ég ætti að hafna á skugga-
hlið ítölsku knattspyrnunnar.
Á þessu eina ári á Ítalíu hef ég
lært að peningar eru ekki allt í
tilverunni og ég tek sérstaklega
fram að ég vildi óska að það hefði
verið fyrir I<B, sem ég keppti á
sunnudaginn var, því ég sakna
gamia félagsins míns. Hér get ég
ekkert gert annað en æfa og aftur
æfa. Þó hef ég ekki minnstu
möguleika á að komast í liðið, því
ég er á lista yfir leikmenn, sem
Udinese lánar út gegn borgun. Fé-
lagið reyndi líka að losna við mig
þegar það hafði 3 útlendinga í
þjónustu sinni ,en mátti reglum
samkvæmt ekki nota nema 2, en
það tókst ekki.
Udinese fer í 2. deild.
Mú þegar útséð er að Udinese
mun falla í 2. deild, verða Ujdinese
menn að losna við a.m.k. tvo út-
lendinganna, því ekki má nota
sama fjölda erlendra leikmanna í
2. deild og 1. deild. Framkvæmda-
stjórinn hefur líka sagt mér að
eitthvað muni gerast innan næstu
fjögurra vikna. Ég hef sjálfur
heyrt orðróm, sem segir líklegt að
ég verði -seldur til Spánar, Frakk*
lands eða til Rómar. Það eru líka
einu kostirnir, sem ég g-ang að. Ég
hef samkvæmt samningum rétt til
að hafa lokaorðið i sambandi við
sölu milli félaga. Eigi t.d. að selja
mig svissnesku félagi, þá er ég
ekki til viðtals.
Vegna falls Udinese £ 2. deild
er framtíð hinna leikmannanna
flestra nokkuð óráðin og andinn
innan knattspyrnumannanna ekki
sem beztur. Samt hafa þeir alltaf
aflögu huggunarorð handa mér, en
það reynist erfitt að brosa á stuiid
um sem þessum.
Löndunum gengur vel.
1 frítímanum hugleiði ég oft
hvernig löndum mínum, Fleming
Nieisen og Harald Nielsen gangi,
og hvernig mér mundi hafa geng-
ið í þeirra sporum. Báðir hafa
náð mjög góðum árangri og eftir
síðustu leiki sína er Harald talinn
hættulegasti sóknarleikmaður ítal-
íu. Þetta eru stór orð ,en eftir að
hafa séð hann í sjónvarpi efast ég
ekki um þetta. Og Fleming er
meira en nokkur annar „heilinn"
í Atlantaliðinu. Engum hafði dott-
Körfuknattleikssamband islands
fræddi blaöamenn í gærkvöldi á
næstu áætlunum sinum og áform-
um, en þau eru bæði mörg og
stór fyrir hið unga samband.
Landsliðsnefnd hefur nýlega
verið skipuð og eiga sæti í henni
þeir Þórir Guðmundsson, Viðar
Hjartarson og Helgi Jóhannsson,
sem jafnframt er landsliðsþjálfari.
Nefndin valdi til æfinga 28 pilta,
en því miður hafa þeir enn sem
komið er ekki sýnt málefninu næg-
an áhuga, en æfingarnar hafa ver-
ið fólgnar í þrekþjálfun, sem KR-
ingar hafa hat't og leyft KKÍ góð-
fúslega að nýta ásamt sér.
KKl sneri sér til Upplýsingaþjón
ustu Bandaríkjanna og hafði upp
úr þvi þjálfara, sem sendur verður
í maíbyrjun og mun kenna hér í
3 mánuði. Heitir hann John Wood
og er háskólaþjálfari.
Æfingar munu fara fram í Vals-
heimilinu 5 kvöld í viku. Frá kl.
5—7 alla virka daga mun hann
kenna, yngri mönnum grundvallar-
atriðin, en frá kl. 8—10 mun lands
liðið æfa, enda næg verkefni fram
undan, þar sem er POLAR CUP
keppnin I Stokkhólmi 2.—4. nór-
ember n.k. Sigurvegarinn £ þeirri
keppni mun komast meðal 15 liða
í Evrópumeistaramótinu í Póllandi
1963.
Allt mun þetta kosta sambandið
mikla peninga og nú mun ráðgert
að halda Bingó sem fyrsta atriðið
í fjáröflun til þessa 180.000 króna
fyrirtækis, sem verið er að leggja
út í.
Bingóið fer fram í Háskólabiói
mánudaginn 8. apríl og aðalvinn-
ingurinn er ekki af lakara taginu
— Fiat 500 Station bifreið og mun
vinningurinn, gagnstætt mörgum
bingóum öðrum, verða dreginn út
á þessu eina kvöldi. Aðrir vinn-
ingar eru og stórkostlegir.
Nánar munum við segja frá
körfuknattleiksmönnunum siðar.
Kari eftirsóttur
þjálfari / Noregi
Hinn góðkunni knattspyrnu-
þjálfari Karl Guðmundsson er nú
á förum til Sandefjord í Noregi,
en það er 25.000 manna bær á
suðvesturströnd Noregs. Þarna
hefur Karl fengið það hlutverk að
þjálfa knattspyrnumenn staðarins,
en þeir leika i 1. deildinni.
Einn frægasti knattspyrnumað-
ur Noregs og jafnframt sá bezti
um árabil, miðvörðurinn Tor-
björn Svendsen er einn af leik-
mönnum þessa liðs og margir fleiri
góðir knattspyrnumenn eru í
Sandefjord. Svendsen glímir nú
við að ná heimsmeti Billy Wrights
að leika fleiri landsleiki. Billy
hefur leikið alls 104 landsleiki
fyrir England, en Torbjörn Svend-
sen hefur leikið 101 fyrir Noreg.
Það verður því liklega eitt af verk-
efnum Karls að koma Svendsen
enn nokkrum sinnum í landslið,
en auðvitað er aðalverkefnið að
ið í hug að hann mundi útvega
Atlanta sína beztu útkomu hingað
til, en það gerði hanh.
Heim a brúðarbekk.
Strax og „eitthvað gerist" er ég
ákveðinn í að gera allt til að gera
næsta keppnistímabil betra en það
síðasta. Ég fer heim i sumarfri og
meðan ég er heima ætla ég að
kvænast, því unnusta mín og ég
erum búin að ákveða daginn. Hún
var hér á Ítalíu í sumarfríinu sínu
og það er staðreynd að manni
gengur betur, þegar maður hefur
félaga sér við hlið.
tryggja Sandefjord áframhaldandi
setu í 1. deildinni norsku en nokk-
ur vafi leikur á þvi nú sem stend-
ur.
Norðmenn eru að breyta fyrir-
komulagi 1. deildarinnar. Áður
léku 16 lið £ tveim „grúppum" og
efstu liðin léku siðan til úrslita. Nú
stendur til að fyrstu deildina
skipi 10 lið og keppa 16 liðin, sem
fyrir voru nú um það. Sandefjord
er nokkuð fyrir neðan miðju og er
þvi i hættu að detta niður í 2.
deild. Hyggja Norðmenn gott til
glóðarinnar að fá Karl til sin því
^ nafn hans sem þjálfara er talið
mjög gott meðal frænda vorra, og
staðreynd er að landslið okkar
hafa staðið sig mjög vel einmitt
er hann hefur þjálfað þau, sbr.
1 —1 í Kaupmannahöfn 1959.
Við hringdum í Karl í gær og
spurðum hann frétta af ferðinni.
- Já, ég hygg gott til glóðar -
innar. í Sandfjord er af meiru að
| taka heldur en í Lillehammer, þeg-
ar ég var þar. Sandefjord vann
Unglingaflokkinn £ fyrra og svo
stendur Torbjörn Svendsen alltaf
fyrir sínu, enda þótt árin séu farin
að færast yfir hann sem knatt-
spyrnumann. Hann er alltaf með
liðinu og er nú nýkominn heim
frá New York þar sem hann þjálf-
aði norska sjómenn I knattspyrnu
um nokkurt skeið, en nú æfir
hann mjög vel og er staðráðinn í
að hnekkja 104 landsleikja heims-
meti Billy Wrights.
Karl fer utan á mánudag.
j. b. p.
)