Vísir - 30.03.1962, Síða 16
Guido Argentínu-
forseti um sinn
Yíirmenn landvarna Argentínu
birtu tilkynningu snemma i morg-
un þess efnis, að landher, flugher
og floti styddu José Maria Guido,
sem í gærkvöldi vann embættiseið
sinn sem ríkisforseti til bráða-
birgða. Stóð sú athöfn aðeins tvær
mínútur. Hann tilkynnti að henni
lokinni, að milli hans og hershöfð-
ingjanna hefði ekkert samkomulag
verið gert.
Það er samkvæmt stjórnar-
skránni, sem Guido tekur við em-
bættinu, en hún mælir svo fyrir,
að forseti öldungadeildarinnar
skuli gegna því, er löglegur for-
seti hafi forfallazt. Fréttir í gær-
kvöldi hermdu, að hershöfðingjarn
ir hefðu neitað að viðurkenna Gu-
ido, en nú hefur sú afstaða þeirra
breytzt sem að ofan getur. Hafa
þeir nú boðið hann velkominn og
TÓNLEIKARNIR VERÐA
í HÁSKÓLABÍQINU
Nemendatónleikar Tónlistar-
skólans í Reykjavík sem sagt var
frá í frétt Víseis í fyrradag og
halda átti í Austurbæjarbió á
laugardag kl. 3 síðdegis, 5 verða á
öðrum stað, sem sé í samkomu-
húsi Háskólans á sama tíma
Ástæðan fyrir þessari breyt-
ingu, er sú, að þegar átti að æfa
konsertinn fyrir 2 pianó og
4strengjasveit eftir Bach, :o rust
píanóin tvö ekki fyrir með góðu
móti á sviðinu í Austurbæjirbíó
svo að flytja varð vestur í Há-
skólabióið, þar sem tónleikarn r
fara fram á morgun, og þyk'r öll
um sú breyting góð.
bera fram óskir um, að samstarf
í þágu lýðræðis og velmegunar
landsmanna verði tryggt.
Frondizi forseti er nú í fangelsi
á eynni Martin Garcia í La Plata
fljóti. Eftir honum var haft, að það
hefði verið bezta lausnin eins og
komið var, að Guido tók við. —
Frondizi hélt fast við ákvörðun sína
að biðjast ekki lausnar, og létu
hershöfðingjarnir að lokum hand-
sama hann. — Almenningur safn-
aðist saman á götúnum og heimt-
aði Frondizi £ forsetasæti á ný, en
fólkinu var dreift með táragasi.
HIÐ umfangsmikla saka
mál, sem dagsdaglega
gengur undir nafninu
Olíumálið, var í morgun
þingfest í sakadómi
Reykjavíkur af umboðs-
dómurum í málinu. Var
þá jafnframt ákveðið að
málið skuli verða tekið
til munnlegs málflutn-
ings hinn 1. júní.
Þingfesting málsins hófst
klukkan 10 í morgun í réttar-
sal sakadómaraembættisins.
Voru umboðdómendur máls-
ins Guðmundur Ingvi Sigurðs
son hrl. og Gunnar Hlelgason
hdl. mættir, og skömmu síðar
kom sækjandinn í málinu
Ragnar Jónsson hrl. Næst
kom Sveinbjöm Jónsson hrl.,
Olíumálið
í sakadómi í morgun
en hann var skipaður verj-
andi Vilhjálms Þórs banka-
stjóra. — Var nú hlé á þing-
haldi, framundir klukkan 11,
er Benedikt Sigurjónsson hrl.
lcom en hann verður verjandi
Hauks Hvannbergs. Síðastur
kom Guðmundur Ásmunds-
son hrl., sem ásamt Jóhanni
Gunnari Stefánssyni hrl. voru
skipaðir verjendur stjómar-
manna Olíufélágsins h.f. Þeir
Benedikt og Guðmundur
höfðu verið bundnir við störf
uppi í Hæstarétti, er þingfest
ing Olíumálsins hófst.
Lögmönnunum voru afhent
gögnmálsins ,og umboðsdóm
arar tilkynntu þeim að málið
yrði tekið til munnlegs mál-
flutnings fyrir sakadómi
Reykajvíkur hinn 1. júní næst
komandi, daginn eftir upp-
stigningardag.
Sækjandi og verjandi við þingfestingu Olíumálsins í morgun. — A fremstu myndinni koma
niður tröppumar þeir Sveinbjöm Jónsson hr. og Ragnar Jónsson sækjandi í málinu að baki
honum, — með þykkann bunka af gögnum er Benedikt Sigurjónsson hrl. kemur til þing-
festingar, og loks er Guðmundur Ásmundsson hrl. taka við sínum skjölum. — Ljósm. Vísis
I. M. tók myndimar.
VISIR
Föstudaginn 30. ,marz 1962.
I í Skotlandi á að byggja nýja
borg fyrir einkaframtak manna og
verður hún við enda hinnar nýju
brúar yflr Forthfjörð. Kostnaður
er áætlaður 12 millj. punda og
mun verkið taka 7 ár.
Stórstigur frumfurir /
hitu- og vutnsveitumúlum
í gær var haldinn fundur í Lands
málafélaginu Verði. Fluttu þar
ræður þeir Jóhannes Zoéga hita-
veitustjóri og Þóroddur Sigurðs-
son vatnsveitustjóri og lýstu þró-
un þessara mála, frá upphafi til
þessa dags. Formaður Varðar,
Höskuldur Ólafsson bankastjóri,
setti fundinn og las upp inntöku-
beiðnir 168 nýrra félaga, sem all-
ar voru samþykktar.
Jóhannes Zoéga hitaveitustjóri
tók fyrstur til máls. Rakti hann
fyrst all ýtarlega sögu hitaveitu-
framkvæmda í bænum, en þær
hófust fyrir 1930. ÞaS ár voru
tengd 70 hús, en 1942 var tala
notenda komin í 32.000 manns.
Lýsti hann síðan fimm ára áætlun
þeirri í hitaveitumálum, sem nú
hefur, verið í framkvæmd í eitt ár.
Samkvæmt þeirri áætlun er reikn-
að með að allir Reykvíkingar hafi
hitaveitu eftir 4 ár.
Öll vinna við framkvæmdir þess
ar, faeni kostur er, verður boðin
út, til einkafyrirtækja. Er ætlunin
að framvegis verði lögð hitaveita
í hús jafnóðum og þau eru byggð.
í fjölmennari hverfin verður lagt
svokallað tvöfalt kerfi, en þá renn-
ur vatnið til baka og er hitað að
nýju. Vegna kostnaðar er lagt ein-
falt kerfi í strjálbýlli hverfi.
Einnig ræddi hitaveitustjóri
möguieika á því að koma upp iðn-
aðarhitaveitu í vissum hverfum,
sér í lagi ef um stóriðju væri að
ræða. Slíkur iðnaður þarf oft heit-
ara vatn en það, sem hitaveitan
nú hefur. Myndi þetta þá koma
smærri fyrirtækjum að gagni um
leið.
Boianir eru nú hafnar að nýju,
eftir nokkurt hlé. Standa vonir til
að hægt verði að afla á næstu
fjórum árum alls þess vatnsmagns,
sem stækkun þessi útheimtir. All-
ur kostnaður við framkvæmdir
þessav er áætlaður 237 milljónir.
Má það teljast til tíðinda að alls
þess fjár hefur verið aflað fyrir-
fram.
Næstur talaði Þóroddur Sigurðs-
son, vatnsveitustjóri. Rakti hann
fyrst sögu vatnsveitunnar, sem er
elzta þjónustufyrirtæki bæjarins
og tók til starfa árið 1909. Þá var
vatnsmagn veitunnar 38 lítrar á
sekúndu, eða 3 og hálfur sekúndu-
lítri á 1000 íbúa. Á vatnsveitu-
svæði Reykjavíkur eru nú 84.000
manns og vatnsmagn nú 8,4 sek-
úndulítrar á 1000 íbúa.
Ekkl hefur nýting vatnsins verið
Framh. á 10. síðu.
Sfóð fram yfir
miðnætfi
I GÆRKVÖLD hafði sáttarsemj-
ari rikisins í vinnudeilum kallað
til fundar við sig sameiginlega
nefndir deiluaðila í togarasjó-
manna-verkfallinu. Hafði sá
sundur staðið fram yfir mið-
nætti. Ekki hafði sáttasemjari
í fundarlok boðað annan fund,
og lítt hafði málum þokað í
samkomulagsátt á þessum fundi.
Sjálfstæðisfélag nú
stofnað í Arnessýslu
Laugardaginn 10. þ.m. var stofn-
að Sjálfstæðisfélagið Muninn í Ár-
nessýslu og er félagssvæði þess
Grímsnes-, Grafnings- og Þing-
vallahreppur. Stofnfundur félags-
ins var haldinn að Minni Borg í
Grímsnesi.
Hergeir Kristgeirsson, erindreki,
Selfossi, setti fundinn og las upp
nöfn stofnenda, sem voru 30. —
I Fundarstjóri var kjörinn Ingileifur
| Jónsson, Svínavatni og fundarrit-
! ari Pétur Hjálmsson, Úlfljótsvatni.
Axel Jónsson fulltrúi fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins
flutti erindi um skipulagsmál Sjálf
stæðisflokksins og lagði fram frum
! varp að lögum fyrir félagið, sem
í síðan var samþykkt. Hlaut félagið
nafnið Muninn.
í stjórn voru kosnir: Pétur Að-
alsteinsson, írafossi, formaður,
Pétur Hjálmsson, Úlfljótsvatni og
Ingileifur Jónsson, Svfnavatni.
í varastjórn voru kosnir: Sig-
urður Möller, Ljósafossi, Ingólfur
Guðmundsson, Miðfelli og Árni
Einarsson, Minni-Borg. Endurskoð-
endur: Gísli Jóhannsson, Hraun-
prýði og Tyrfingur Þórðarson,
Steingrímsstöð. Þá var kjörið í
fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í
Árnessýslu og fulltrúar í kjördæm-
isráð Sjálfstæðisflokksins í Suður-
Iandskjördæmi.
iOKAIIPP-
BOÐ í DAG
Klukkan 5 í dag hefst uppboð
á bókum í Sjálfstæðishúsinu.
Flestir bókamenn eru á einu
máli um það að þar sé um einr
mesta og bezta feng bóka ið
ræða, sem nokkru sinni hefur
komið fram á uppboði hjá Sigurði
Benediktssyni fyrr og síðar.
Meiri hluti þessara bóka 1; ur
áður verið talinn upp hér i bl-rð
inu, og því ekki farið nánar út í
þá sálma hér, en aðeins bent á að
þar eru margar bækur prentaðar
Skálholti, Hólum, Hrappsey, Leir-
árgörðum og víðra.