Vísir - 31.03.1962, Page 7
Laugardagurinn 31. marz 1962.
VISIR
7
Stjóm Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. — Sitjandi frá vinstri: Valgerður Hauksdóttir,
meðstj., Teodór A. Jónsson, form., Richard Þorgeirsson, meðstj., Sigurvin D. Kristinsson,
varameðstj., Ólöf Ríkarðsdóttir, ritari. — Standandi frá vinstri: Trausti Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastj., Eiríkur Einarsson, gjaldk., Adolf Ingimarsson, meðstj., Pálína Snorradóttir,
meðstj., Jón Þór Buch, meðstj., Zophanías Benediktsson, varaform.
Sjálfsbjörg, lands-
samband fatlaðra
Ég leit í vikunni inn í skrif-
stofu Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra, í húsi SÍBS,
Bræðraborgarstíg 9, til þess að
fá upplýsingar um starfsemi
Iiennar, og ræddi við þá Thedór
Jónsson, formann sambandsins
og Trausta Sigurlaugsson, fram
kvæmdastjóra þess.
—- Við höfum haft skrifstofu
hér frá því 14. nóvember 1960,
sögðu þeir mér, en annars var
landssambandið stofnað vorið’'
1959. Hlaut það nafnið Sjálfs-
björg, landssamband fatlaðra.
Fyrsta Sjálfsbjargarfélagið var
annars stofnað á Siglufírði 10.
júní 1958, síðar á árinu félög í
Reykjavík, Isafirði, Akureyri dg
Árnessýslu. Síðar voru stofnuð
félög í Bolungarvík, Húsavfk og
Vestmannaeyjum og enn síðar,
þ.e. um áramót síðustu og ný-
lega á Sauðárkróki og Keflavík.
Starfsemin.
Hún miðast við að efla félags
líf og kynni meðal fatlaðs fólks
og hefur verið mikið félagslíf
í öllum déildunum. Það er fatl-
að fólk, sem stofnar félögin, en
aðrir geta gerzt styrktarfélagar
með tillögurétti og málfrelsi. Á
Sauðárkróki voru stofnendur 40
fatiaðir og 170 styrktarféiagar
gengu í félagið. Og stofnendur
í Keflavík voru um 20 .fatlaðir,
en þess er að geta að á stofn-
fundinn þar var ekki boðað
nema fatlað fólk. Það er að
sjálfsögðu fyrst í stað sem, að-
allega er miðað við almenna fé-
lagsstarfsemi og að sinna ýms-
um hagsmunamálum þ^irra, og
fvo síðar að koma upp vinnu-
stofnun fyrir þá eða svo fljótt
sem auðið er.
Vnnustofur.
Sjálfsbjörg á ísafirði hóf rekst
ur vinnustofu snemma árs 1960
og hefur gengið vonum framar.
Á.formað er að kaupa hús í sam
vinnu við Berklavörn á isafirði
og þá jafnframt fyrirhuguð
stækkun vinnustofunnar og
verður þá miðað að aukinni fjöl
breytni í framleiðslu. 1 vinnu-
stofu deildarinnar á Siglufirði
eru framleiddir vinnuvetlingar.
Akureyrardeildin hefur komið
-iér upp vinnu- og félagsheimili.
Var hafizt handa um byggingu
féiagsheimilisins vorið 1959 og
var það tekið í notkun í maí
1960. Heitir það Bjarg. Húsið er
vistlegt og hentugt. Kostaði það
um 600 þúsund kr. í vor er á-
formað að bæta við og byggja
vinnusal.
— Hve margir fatlaðir eru í
öllum deildunum?
— Á sjöunda hundrað og
styrktarfélagar álíka margir. í
Rvík er hæst tala fdtlaðra ,150,
en annars er fatlað fólk hér,
sem ekki er í félaginu. í Reykja
víkurdeildinni hefur verið gott
fclagslíf, fundir fjölsóttir á vetr
um, og jafnan farið , í eina
skemmtiferð á sumrin. Bygg-
ing öryrkjaheimilis er á undir-
búningsstigi.
Relcstur
skrifstofu.
— Skrifstofa sambandsins
annast efnisútvegun til deild-
Misskilningur.
— Okkur langar til að biðja
Vísi að leiðrétta þann misskiln-
ing sem oft kemur fram hjá al-
menningi, að samtökin heiti
Landssamband fatlaðra og lam-
aðra, en svo er ekki. Litum við
svo á í upphafi, að lömun væri
aðeins ein tegund fötlunar, og
væri þv£ fullnægjandi og rétt-
ara að nefna sambandið aðeins
Landssamband fatlaðra.
Bifreiðakaup
öryikja.
— Er eitthvað fleira, sem þið
vilduð minnast á?
— Já, við vildum mega minn
ast á, að stjórn Sjálfsbjargar
hefur beint þeirri áskorun til
Öiyrkjabandalags íslands, að
það beiti sér fyrir eftirtöldum
leiðréttingum á bifreiðamálum
öryrkja:
a. að öryrkjar hafi frjálst val
til bifreiðakaupa.
b. að eftirgefin aðflutnings-
gjöld afskrifist á 5 árum.
c. að hækkuð verði eftirgjöf
aðflutningsgjalda af bifreið-
um til fatlaðra £ samræmi
við hækkað verðlag, frá því
eftirgjafarupphæðin var
ákveðin.
d. að settar verði ákveðnari
reglur um úthlutun bifreiða
til öryrkja.
Óánægja.
Lýsti stjórn Sjálfsbjargar yf-
ir óánægju út af þeirri ákvörð-
un, að þótt innflutningur bif-
reiða væri gefinn frjáls, skyldi
lcyfi til innflutnings bifreiða ör-
yrkja bundið ákveðnum teg-
anna úti á landi og hvers konar
fyrirgreiðslu, sem þær þurfa á
að haldat — og yfirleitt alla fyr
irgreiðslu fyrir deildirnar og
fatlaða, §em henni er unnt að
Iata í té. Sambandið hefur eng
an fastan tekjustofn og var þvf
á sl. hausti stofnað til ferða-
happdrættis til þess að afla fjár
til þess að standa straum af
rekstri skrifstofunnar. Tekjur
af þvi urðu 228 þúsund krónur.
Er í ráði að efna til happdrætt-
is á ný 1 sama tilgangi og verð
ur bifreið aðalvinningurinn.
Frumvarp um aðstoð
við fatlaða.
Það liggur nú fyrir Alþingi.
Gjald það af sælgæti sem frum
varpið fjallar um rennur i
Styrktarsjóð fatlaðra og verður
fenu varið samkvæmt lögunum
tii byggingar og rekstrar vinnu
stofnana fyrir fatlað fólk. —
S'yrktarsjóðurinn á samkvæmt
lögunum að vera í vörzlu fé-
iagsmálaráðuneytisins, en renn
ur ekki beint til Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra, sem
hinsvegar mun fá tillögurétt um
ráðstöfun fjársins samkvæmt
sérstakri reglugerð. — Þessu
frumvarpi fagna fatlaðir, en
eins og augljóst er verður sam
bandið að afla fjár til rekstrar
skrifstofu sinnar áfram upp á
eigin spýtur.
undum og að ekki skuli leyfi-
legt að færa eftirgjöfina yfir á
aðrar tegundir. Telur hún meg-
inskilyrði £ lýðræðisþjóðfélagi
frjálst val borgaranna og ailir
hafi sama rétt, en hér hafi skap
azt misræmi, sem eigi því sfð-
ur rétt á sér, þegar tillit sé tek-
ið tii þess, að öryrkjar eru flest
ir lftt efnum búnir og þurfa að
eiga bifreið, sem er traust og
hægt að selja við sæmilegu
verði, þegar viðhaldskostnaður
hennar hækkar.
Fötlun sumra er auk þess
þannig, að þeir þarfnast sér-
staklega útbúinna bifreiða, t.d.
sjálfskiptra eða með vökvastýri.
í ályktun stjórnarinnar eru
leidd rök að þvf, að öryrkjar
hafi öðrum fremur þörf á
frjálsu vali. 1 niðurlagi hennar
er beint þeirri áskorun til Ör-
yrkjabandalags íslands, að það
beiti sér fyrir þvi, að fylgt verði
fastar eftir reglum um úthlutun
bifreiða til öryrkja, sbr.: „Heim-
ilt er... að fella niður eða
lækka aðflutningsgjöld á allt að
50 bifreiðum árlega fyrir fólk
með útvortis bæklanir eða Iam-
anir, ennfremur fólk með
lungnasjúkdóma og aðra hlið-
stæða sjúkdóma, og loks fólk,
sem þjáist af afleiðingum slysa,
allt á svo háu stigi, að það
getur ekki farið ferða sinna án
farartækis.“
— Og hvað hefur svo gerzt
í málinu?
— Öryrkjabandalagið sendi
rikisstjórninni ályktunina og er
hún til athugunar hjá henni, og
— við vonum hið' bezta.
A. Th.
2o.ooo liggja í in-
fíúenzú í K.-höfn
1 i síðustu viku voru til-
kynnt 4909 ný tilfelli af in-
flucnzu í Kaupmannahöfn.
Reiknað er með að sjúkdóm-
urinn hafi nú náð hámarki.
Borgarlæknirinn í Kaup-
mannahöfn telur að sjúkdóms
tilfelli muni vera fjórum
sinnum fleiri en þau sem til-
kynnt eru, eða um tuttugu
þúsund..
Læknirinn sagði einnig að
um væri að ræða tvær teg-
undir af inflúenzu, A-gerð og
B-gerð. Verður fólk veikara
af þeirri fyrri, en báðar teg-
undir endast í 4 til 5 daga.
Ekki vilja læknar þar telja
þennan faraldur alvarlegan.
Segja þeir að til þess þyrftu
tilfellin að tvöfaldast.
Allmiklir erfiðleikar hafa 1
samt skapast af þessu. Til |
dæmis liggja 300 bréfberar og
algengt að tveir menn verði
að ljúka þriggja manna
vinnu.
Mikið hefur verið um veik-
ina í skólum, bæði hjá kenn-
urum og nemenáum. Hefur
komið fyrir að 30 prósent
kennara liggi í sama skóla.
Hefur í sumum skólum verið
gripið til þess ráðs að kenna
tveirh bekkjum saman, þar
sem ekki hefur reynst fært
að útvega íhlaupakennara.
Hjá rikisjárnbrautunum
hafa orðið alvarlegar tafir og
fjöldi manna orðið að fresta
vetrarfríum af þessum sök-
um.
Talið er að veikin muni
strax byrja að réna í þessari
viku.
II Thanf þakkar
U Thant framkvæmdastíóri
SÞ hefur þakkað íslendingum
fyrir þann stuðning er þeir sýna
starfsemi samtakanna með þvi
að kaupa skuldabréf Samein
uðu þjóðanna fyrir 80 þúsund
dollara. En Alþingi samþykkti
þessa ráðstöfun fyrir nokkru og
var U Thant tilkynnt um þá á-
kvörðun þann 19. marz.
Nú hafa 16 þátttökuriki SÞ
tilkymít að þau muni kaupa
sinn hluta i skuldabréfunum,
sem eru tii þess að standa
straum af margháttuðum kostn
aði m. a. við gæzlustörf '
Kongó.
Þrjú ríki hafa þegar lagt
fram fé fyrir skuldabréfuin.
Skuldabréf nr. 1 keypti Noreg-
kom Finnland næst með 1,4
ur fyrir 1,8 milljón dollara. Þ.'i
millj. dollara og þá Danmörk
með 2,5 millj. dollara.
i