Vísir - 05.04.1962, Side 3
Fimmtudagtirinn 5. apríl 1962.
VISIR
3
Stærra hús fyrir
MYNDSJ
, :■ giátgg
Hljómsveit Tónlistarskólans á sviðinu I samkomuhúsi Háskólans s.l. laugardag.
sæti setið í þessum stærsta tcn-
leiksala borgarinnar. Það go'ist
nú sjaldnast oftar en einu sinni
á ári, að kostur gefst á að hlýða
S.l. laugardag hélt hljómsveit
Tónlistarskólans i Reykjav/k
tónleika í samkomuhúsi Há-
skólans, og var nærri hvert
á þessa hljómsveit, sem er aðal-
lega strengjasveit, sem Björn
Ólafsson, konsertmeistari og
yfir-fiðlukennari skólans, kom
á legg og hefir stjómað siðan.
Á þessum tónleikum koma líka
fyrst fram með hljómsveit sum-
ir efnilegustu einleikarar, sem
nám stunda í skólanum, stigr
sin fyrstu frægðarspor á hljóm-
sveitarpallinum. Að þessu sinni
voru flutt tvö nútímaverk,
Lftill konsert fyrir pianó og
strengjasveit eftir Walter Le<gh,
einleik á píanó lék Helga Ing-
ólfsdóttir (magisters Davíðsson-
ar), og Simple Symphony fyrir
strengjasveit eftir Benjamin
Britten (meginefni hennar er úr
sinfóniu sem tónskáldið samdi
sem bam). Síðan komu tvö
klassisk verk gamalla meist-
ara: Konsert fyrir hnéfiðlu og
hljómsveit i D-dúr (1. þáttur)
eftir Joseph Haydn. Þar lék ein-
leik á hnéfiðlu ungur piltur af
Akureyri, Hafliði Hallgrimsson,
scm vakti feikna hrifningu með
leik sinum og hefir raunar gert
áður, lék á tónlelkum hljóm-
sveitarinnar í fyrra og er farinn
að leika i Sinfóniuhljómsvcit
íslands. Loks var fluttur kon-
sert fyrir 2 píanó og strengja-
sveit í a-moll eftir Johan
Sebastian Bach. Á pianóln
léku Eygló Helga Haraldsdóttlr
(skrifstofumanns Gislasonar)
og Sigríður Einarsdóttlr (verk-
fræðings Pálssonar). Píanóin,
sem þær léku á, reyndust svo
rúmfrek, að þau komust ekki
fyrir á sviðinu í Áusturbæjar-
bíó, þar sem tónleikarnir áttu
að fara fram, og varð því að
flytja þá í samkomuhús Há-
skólans, þar sem húsfyllir var..
og hefðu þvi margir orðið frá
að hverfa á hinum staðnum. —
Hinn ungi, efnilegi hnéfiðlu-
leikari, Hafliði Hallgrimsson,
leikur einleik í konsert eftir
Haydn.
Bjöm Ólafsson þakkar ungfrú Helgu Ingólfsdóttur fyrir ein
leikinn í Litla konsertinum eftir Walter Leigh.
Hér em feðgar á ferð, þeir leika báðir í hljómsveit Tón-
listarskólans: Jón Sigurðsson bassafiðluleikari (leikur einnig
í sinfóníuhljómsveitinni) og sonur hans Sigurður (13 ára),
sem leikur á fiðlu.
Þama leika þær tvíleikinn á hin fyrirferðarmiklu píanó, í konsertinum eftir Bach, Sigríður
Einarsdóttir og Eygló Helga Haraldsdóttir. Fjarst stendur hljómsveitarstjórinn, Björn Ól-
afsson, með tónsprotann.
i