Vísir - 09.04.1962, Síða 3

Vísir - 09.04.1962, Síða 3
Mánudagurinn 9. apríl 1962. VISIR 3 i j íþróttamyndi eða hvað ? að sýna enga miskunn. Með ýmiskonar orðrómi og ummæl- um var vakið upp hatur milli þessara tveggja manna og þegar þeir mættust f hringnum virtist sem þeir yrðu óðir af hatri og hefndarlöngun. Kappleikurinn stóð heiiar tólf lotur, þá komu Ioks úrslit. Griffith kom rothöggi á Paret, þar sem hann stóð út við kaðl- ana. Paret féll aftur á bak á kað- alinn, sem hélt honum uppi. Það varð hans ógæfa, því að meðan kaðlamir héldu honum uppi mátti andstæðingur hans sam- kvæmt leikreglum halda áfram að berja hann. Griffith var sem blindaður af hatri og hefndarhug. Þama stóð hann yfir meðvitundarlausu fóm arlambi sínu og ’ét hvert höggið á fætur örðu dynja á höfði hans. Þetta vom hnitmiðuð högg, sterk eins og gufuhamar. ! Á meðan stóð dómarinn j Ruby Goldstein hjá og horfði á, þá Ioks stöðvaði hann leikinn. , þangað til 25 högg höfðu fallið, Þetta var sami dómarinn sem stöðvaði á sfnum tíma leikinn milli Ingemar Johannsson og Floyd Patterson, þegar Ingemar hafði slegið Floyd sjö sinnum niður. Þá var honum úthúðað fyrir að stöðva leikinn of snemma. Benny Paret var borinn með- vitundarlaus út úr hringnum og á sjúkrahús. Hann komst aldrei til meðvitundar, en andaðist nokkrum dögum síðar. Þegar andstæðingi hans, Griffith var tilkynnt lát hans, svaraði hann: — Ég mun aldrei keppa oftar í hnefaleikum. Nefnd hefur nú verið skipuð í New York til að rannsaka þetta mál og hvort höfða beri sakamál vegna manndráps. Myndsjá Vísis birtir í dag tvær „íþróttamyndir", það eru myndir af íþrótt þeirri sem hef- ur verið kölluð „hin göfuga list sjálfsvamarinnar“. En þetta eru um leið myndir af manndrápi. Fyrir nokkrum dögum fór fram í New York keppni um heimsmeistaratitilinn í velter- vigt, Bandaríski svertinginn Emile Griffith hafði skorað á heimsmeistarann kúbanska út- lagann Benny Paret að verja tiltil sinn. Kappleikurinn milli þeirra varð mjög harður. Þjálfarar þeirra höfðu lengi brýnt þá á Loksins eftir 25 högg stöðvaði dómarinn leikinn. Enn halda kaðlarnir Paret uppi. / Það var ógæfa Parets, að kaðlamir héldu honum uppi. Griffith lét höggin dynja á honum rænulausum. . K1, {*! litiiiJlijH 1 \

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.