Vísir - 09.04.1962, Blaðsíða 16
VfSIR
u. öpni ivojz.
HarBur
\ v
árekstur
í gærkvöldi varð harkalegur á-
rekstur á Miklubraut, er bifreið
lenti út af veginum og á rafmagns-
staur.
Rafmagnsstaurinn brotnaði og
bíllinn fór tilsvarandi illa, þvi hann
var ekki ökuhæfur á eftir og varð
að flytja hann á burt á kranabif-
reið. Ökumaður gaf þá skýringu,
að hann hafi misst stjórn á farar-
tækinu og bíllinn við það runnið
út af götunni og lent á staurnum.
Mál þetta mun vera í frekari rann-
sókn.
► Averill Harriman aðstoðar-utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna seg
ir ágreininginn milli Sovétstjóm
arinnar og Pekingstjórnarinnar
um hugsjónir og stefnu meiri en
svo, að þar geti gróið um heilt.
— Hann varaði bandamenn við
að áiykta, að þeir gætu grætt á
þessum ágreinini, sem hefði
gert Krúsjév ihaldssamari og
ktnverska kommúnista ábyrgð-
arlausari.
Flugfélag íslands hefur nú í
notkun sex fjögurra hreyfla
millilandavélar. Á laugardaginn
kom það fyrir í fyrsta skipti að
þær voru allar heima í einu.
Ljósmyndari Vfsis tók þessa
mynd af fimm véianna, en Vis-
count vélin Gullfaxi var inni í
flugskýli, og er því ekld með á
myndinni.
Fremst á myndinni er Vis-
count vélin Hrímfaxi. Næst er
Cloudmaster DC6B, Skýfaxi og
þá Sólfaxi, sem er Skymaster
DC4. Vélarnar tvær á endanum
eru báðar leiguvélar af Sky-
master gerð. Sólfaxi og leigu-
vélin á endanum eru báðar stað
settar á Grænlandi, en allar hin-
ar f Reykjavík.
Samanlagt geta þessar véiar
flutt 450 manns í einu, og er
þá Gullfaxi talinn með. Það er
nógu fróðlegt að vita að saman-
lögð hestaflatala þessara sex
véla er um 35 þúsund hestöfl,
sem jafngildir aflinu I mn það
bil sjö hundruð Renault bílum.
Lokast
Við veðurbreytingarnar um
helgina gerði nokkurt snjóföl
hér á Suðvesturlandi, en lang
mest snjóaði á Snæfellsnesinu
Fékk æðiskast
Á laugardaginn safnaðist all
margt fólk fyrir utan hús eitt í
Bústaðahverfi, er það sá lög-
reglumenn klifra upp á húsþalc.
Ekki vissi fólk hverra aðgerða
lögreglan var þangað komin og
vænti það einhverra tiðinda,
ekki sízt er það sá lögreglu-
mann beita táragasbyssu.
Það sem þama skeði var það,
að ungur piltur — ódrukkinn
með öllu — fékk æðiskast, réð-
ist á móður sína og umtumaði
öllu, braut og bramlaði f fbúð-
inni. Móðir piltsins gat þó kom
izt f síma og beðið lögregluna
um aiistoð.
Þegar lögreglan kom á stað-
inn, læsti pilturinn sig inn í
þakherbergi og hafði vopnað sig
með stórri sveðju, sem hann
hótaði að beita ef með þyrfti, og
ennfremur hafði hann við orð
um að fara út um þakgluggann
og fleygja sér niður af húsinu
ef lögreglan gerði tilraun til að
brjótast inn í herbergið til sín.
Greip lögreglan til þeirra
gagnráðstafana að fara upp á
húsþakið eins og sést hér á
myndinni og þaðan varð hún
að beita táragasi við piltinn,
þar eð hann neitaði að gefast
upp. Pilturinn var síðan hand-
tekinn og fluttur í vörzlu, en
Iæknir jafnframt kvaddur á
vettvang.
og þar er kálfadjúpur jafnfallinn
snjór.
Sumar leiðir þar vestra lok-
uðust vegna snjóþyngsla, þ. á.
m. bæði Fróðárheiðin og útnes-
vegur, þ. e. vegurinn vestur fyrir
jökul til Hellissands. Vegurinn
yfir Kerlingarskarð er ennfrem-.
um mjög þungfær orðinn. Sam- (
kvæmt upplýsingum frá Vega-
gerð ríkisins verður Fróðárheiði.
mokuð á morgun.
Strax þegar austar dró varð;
minna úr snjókomunni og hvergi |
til neinna trafala.
Voru með heimabrugg
NOKKUR brögð voru að ýmiskon-
ar óknyttum hér í bænum um
helgina, svo sem þjófnaði, innbrot-
um og fleira.
I" fyrrinótt var þremur hjólum
stolið af og úr sendiferðabifreið,
sem stóð á bílastæðinu fyrir utan
Sendibílastöðina hf. við Borgar-
tún. Þegar eigandinn kom að bíln-
um í gærmörgun var búið að stela
báðum afturhjólunum undan hon-
um, ennfremur varahjóli, sem |
geymt var inni í bílnum, tjakk og
felgulykli. Ef einhver getur gefið
upplýsingar á einn eða annan hátt
eru þær rannsóknarlögreglunni
mjög kærkomnar. Þess má geta,
að felgurnar, sem stolið var, eru
bláar að lit.
Tvö innbrot voru framin um
helgina. Annað í Borgarþvottahús-
ið við Borgartún. Þjófurinn hafði'
upphaflega gert tilraun til að kom-
Framhald á bls. 5.
Almaunavaruir undirbúnar
Tillaga dómsmálaráðherra Bjarna
Benediktssonar um að frumvarp-
inu um almannavarnir væri vísað
til ríkisstjórnarinnar, var sam-
þykkt á fundi neðri deildar á laug-
ardaginn með 20 samhljóða at-
kvæðum. Fjórtán þingmenn sátu
hjá og sex voru fjarstaddir.
Daginn áður hafði Bjarni Bene-
diktsson gert grein fyrir tillög-
unni. Aðalefni ummæla hans þá
var á þá lund að hann myndi þeg-
ar í stað gera ráðstafanir til að
undirbúningur almannavama megi
hefjast. Kvað hann undirbúnings-
starfið myndi taka marga mánuði
svo að framkvæmdir þyrftu ekki
að hefjast, þótt löggjöf biði til
hausts. Þar sem komið væri að
þinglokum væri augljóst að erfitt
myndi verða að afgreiða frum-
varpið og lagði því til að það hlyti
ofangreinda afgreiðslu.
Tillagan um hina rökstuddu
dagskrá var svohljóðandi:
, Með samþykki fjárlaga fyrir
1962 lýsti Alþingi vilja sínum til
þess, að almannavarnir skyldu
upp teknar og treystir deildin rík-
isstjórninni til að hefja nú þegar
undirbúning þeirra í samræmi við
meginreglur þessa frumvarps,
meðal annars um þátttöku sveitar-
félaga í kostnaði, og afla sér með
bráðabirgðalögum heimilda til
skyndiráðstafana, ef brýn nauðsyn
ber til og heimildir gildandi laga
um ráðstafanir til loftvarna og
annarra varna gegn hættum af
hernaðarráðstöfunum vérða ekki
taldar fullnægjandi. Þar sem nú er
orðið áliðið þings og sýnt er, að
afgreiðsla frumvarpsins muni taka
verulegan tíma, en frestun sam-
þykktar þess nú mun samkvæmt
því, sem fyrr greinir, ekki- valda
töfum á framkvæmdum, tekur
deildin fyrir næsta mál á dagskrá,
enda verði frumvarpið lagt fyrir
næsta þing strax og það kemur
saman.“
Átta hafa látist
í Wales úr bólu
Enn lézt sjúklingur úr bólusótt
í gær í Wales. Er það annar sjúkl-
ingurinn, sem deyr þar á skömmum
tíma. Var það kona 62 ára, — ein
af 8 sjúklingum í kvennadeild geð-
veikraspítala sem tekið hafa veik-
ina, en sennilega hafa fleiri smitazt.
Nákvæmlega er fylgzt með öllum
sjúklingum deildarinnar og víðtæk
ar ráðstafanir gerðar til þess að
hafa upp á öllum, .sem þarna hafa
komið í heimsókn: Fjölda margar
bólusetningarstöðvar hafa verið
opnaðar í bæjum í grennd við hæl-
ið. -
Alls hafa látizt úr bólusótt á
Englandi og í Wales 13 sjúkling-
ar, þar af 8 í Wales.
Eining um
mál Kenya
Eining náðist á Lundúnarráð-
stefnunni um Kenya, sem lauk í
London um sl. helgi.
Leiðtogarnir frá Kenya, er sátu
hana, eru komnii heim og hafa
hvatt fylgismenn sína til stuðnings
við samkomulagið, sem þar náðist
en samkvæmt þvi hefur verið mynd
uð samsteypustjórn með þátttöku
beggja aðalflokka og á hvor um sig
7 ráðherra í henni, en alls eru ráð-
herrar 16. Mynduð hefur verið.
sterk stjórn fyrir allt landið; eins
og einn leiðtoganna sagði í gær.
Einn þjóðkunnur svikahrappur, |
Sigurður Arnbjörnsson, en Vísir
skýrði nýlega frá ýmsum afrekum
hans, kom nokkuð við sögu hjá
lögreglunni si. laugardag.
Hafði Sigurður setið inni í fanga
geymslu lögreglunnar í vikunni
sem leið og var þá að afplána ölv-
unarsektir. Á föstudaginn var hann
látinn laus, en daginn eftir sveik
hann fé út úr manni og var þá tek-
inn að nýju um kvöldið. Hafði Sig-
urður kcmið inn í verzlun eina hér
í bænum, villti á sér heimildir og
spurði kaupmanninn hvort hann
kærði sig um að hann útvegaði
honum áfengi og sterkan bjór fyr-
ir lítinn pening. Ekki gekkst kaup-
maðurinn upp við þ^tta og ekki
fék Sigurður peninga hjá honum
fyrr en hann hafði sett úr sitt að
veði. Út á það fék hann lánaðar
400 krónur.
Að því búnu fór Sigurður út, en
kom að vörmu spori inn í verzlun-
ina aftur og kvaðst rétt sem
snöggvast þurfa að líta á úrið. Það
fékk hann, en un: leið hrifsaði Sig-
urður úrið úr hendi kaupmanns,
tók á rás út úr búðinni og hvarf
sýnum í einni svipan.
Kaupmaðurinn kærði máiið fyrir
lögreglunni, sem renndi fljótlega
grun í, eftir lýsingunni á þjófnum v
áð dæma, hver maðurinn myndi
vera. Og strax á laugardagskvöld-
ið var Sigurður Arnbjörnsson
handtekinn á ný og settur í vörzlu.
Kváðust fangaverðirnir hafa geymt
klefann handa Sigurði, því þeir
hefðu verið þess fullvissir að hann
myndi koma strax aftur. Sú varð
og raunin.