Vísir - 18.04.1962, Qupperneq 16
¥ISIR
Miðvikudagurinn 18. apríl 1962.
Sólbaðað
skíðaland
Hundruð manna eru á skíða-
vikunni, sem fram fer um þess
ar mundir á Akureyri í sam-
bandi við Skíðalandsmót ís-
lands. Þessa mynd tók ljósmynd
ari Vísis Mats Wibe-Lund af
Hlíðarfjöllunum, þar sem skíða-
mótið fer fram. Landið er snævi
þakið og sólin baðar hlíðarnar.
Á myndinni sem er tekin úr
lofti í gær, sézt hinn nýi og
glæsilegi skíðaskáli Akureyr-
inga.
MBF borgaði
4,34 á lítra
Aðalfundur MBF var haldinn í
Aratungu í gær og sátu hann um
500 manns, en það er öllu minni
sókn en á fyrri fundum.
Borgarstjórnarlisti Sjálfstæðis-
fíokksms samjiykktur / gær
Það kom meðal annars fram á
fundinum, að mjólkurverðið til
bænda á framleiðslusvæði mjólkur-
búsins, nam kr. 4,34 á lítra á síð-
asta árj. Þar frá dregst svo flutn-
ingskostnaður að stöðvarvegg, en
hann mun hafa numið allt að 75
aurum á lítra, ef miðað er við þá
framleiðendur, sem lengst eiga að
sækja í búið.
Á fundi Fulltrúaráðs Sjálfstæðis
félaganna í gærkvöldi var listi
Sjálfstæðisflokksins við borgar-
stjórnarkosningarnar í vor sam-
þykktur. Höskuldur Ólafsson,
bankastjöri hafði orð fyrir kjör-
nefnd og bar fram listann. Er hann
birtur á forsiðu blaðsins í dag.
Fundarstjóri var Jóhann Hafstein
alþm. ,og minntist hann í fundar-
MAGNUS KJARAN,
stórkaupmaður, látinn.
Magnús Kjaran stórkaup-
maður varð bráðkvaddur að
heimili sínu, Hólatorgi 4,
skömmu eftir hádegi í gær,
og skorti þá tvo daga á 72.
aldursár.
Magnús fæddist í Vælu-
gerði f Flóa 19. apríl 1890,
sonur Sigríðar Pálsdóttur og
Tómasar Eyvjndssonar. Þau
fluttust til Reykjavíkur rétt
eftir aldamótin og skömmu
síðar gerðist Magnús starfs-
maður Th. Thorsteinsson,
sem segja má,' að hafi alið
upp marga þeirra manna, er
síðar urðu mestir umsvifa-
ménn á sviði kaupsýslu hér
og víðar. Magnús varð síðan
Framh. á 2. síðu.
byrjun Magnúsar Kjarans stórkaup
manns. Risu fundarmenn úr sætum
í virðingarskyni við hinn látna.
Nokkrar umræður urðu um álit-
kjörnefndar og tóku til máls þeir
Guðmundur H. Guðmundsson sjó-
maður og Bjarni Guðbrandsson,
pípulagningarmaður. Breytingartil-
lögur komu ekki fram við listann
og var hann samþykktur meðöllum
greiddum atkvæðum gegn þremur.
Þá tók Geir Hallgrímsson borgar
stjóri til máls. Þakkaði hann það
traust, sem honum og öðrum full-
trúum á listanum væri sýnt. Þakk-
aði hann og þeim fulltrúum, sem
I hverfa af listanum fyrir góð störf
í borgarstjórninni á liðnum árum.
Minntist hann þess sérstaklega að
Gunnar Thoroddsen hverfur nú úr
borgarstjórn eftir 24 ár. Þakkaði
hann honum fyrir mikil og heilla-
drjúg störf í þágu höfuðborgarinn-
ar.
Þá vék borgarstjóri að áróðri
andstæðinganna og bað alla Sjálf-
1 dag fóru fram þinglausnir á
Alþingi. Friðjón Skarphéðinsson
forseti gaf yfirlit yfir störf þings-
ins á fundi Sameinaðs þings í dag.
Með þessu er lokið einu athafna-
samasta þingi, sem einkennzt
hefur af óvenju mörgum merkum
málum er samþykkt hafa fengið.
Samt vóru umræður á þinginu ó-
venjulega stuttar og virtist það
stafa af því að stjórnarandstaðan
var fremur máttvana og hafði hún
Iítið fram að færa af raunhæfum
umbótamálum. Það var sjaldgæft
á þcssu þingi, að kommúnistar
héldu uppi löngu málþófi eins og
þeir hafa þó gert oft áður.
Þingið stóð samtals í 178 daga.
Það hófst 10. okt. og stóð til 19.
desember, síðan var fram haldið
1. fébrúar til 18. apríl.
Stjórnarfrumvörp voru samtals
84. Voru 44 lögð fram í Neðri
deild, 38 í Efri deild og 2 í Sam-
einuðu þingi. 74 þeirra voru af-
greidd sem lög, 1 afgreitt með rök-
studdri dagskrá en 9 urðu ekki út-
rædd.
Þingmannafrumvarp voru 57.
Voru 43 lögð fram f Neðri deild en
14 í Efri deild. Ber að geta þess að
8 þeirra voru lögð fram af nefnd,
þar af 4 að beiðni ríkisstjórnar-
innar. Af þeim voru 14 frumvörp
samþykkt sem lög, 1 fellt, 4 af-
greidd með rökstuddri dagskrá en
33 urðu ekki útrædd.
Fundir í Neðri deild og Efri deild
voru jafn margir. eða 98, en í Sam-
einuðu þingi 58.
Fyrsta stjórnarfrumvarpið, sem
lá fyrir þinginu var fjárlaga-
frumvarpið fyrir árið 1963, en þar
var gert ráð fyrir allverulegúm
sparnaði í opinberum rekstri. Síð-
an rak hvert umbótafrumvarpið
annað flutt af ríkisstjórninni, eða
að hennar beiðni. Án þess að telja
þau upp í þeirri röð, sem þau komu
fram má nefna laskkun aðflutn-
ingsgjalda á fjölmörgum nauðsynja
vörum, lækkað verðlag í landinu,
frv. um tekjustofna sveitarfélaga,
en með því^var bæjar- og sveitar-
félögum séð fyrir nýjum og ör-
uggum tekjustofnum til að mæta
vaxandi útgjöldum vegna aukinnar
starfsemi. Með frumv. um stofn-
lánadeild landbúnaðarins var lána-
sjóðum landbúnaðarins bjargað
frá algjöru gjaldþroti og sjávarút-
Framh. á 2. ,síðu.
stæðismenn að vera vel á verði.
Herbragð andstæðinganna værí nú
greinilega það að láta sem svo að
Sjálfstæðismenn væru vissir með
sigur og vildu þeir með því slæva
baráttuhug Sjálfstæðismanna. En
verum vel á verði, sagði borgar-
stjóri, og vinnum að kappi að stór-
sigri Sjálfstæðisflokksins. Kjósum
samhenta meirihlutastjórn, en ekki
glundroðastjórn vinstri flokkanna.
Bjarni Benediktsson dómsmála-
ráðherra ræddi nokkuð um listann
og sagði það stolt og ánægju
Sjálfstæðismanna, að þeir hefðu
svo mörgum góðum mönnum á að
skipa, að þeir gætu stillt upp mörg
un listum, sem ef ril vill væru
jafngóðir þeim sem nú hefði verið
samþykktur. Hvatti .hann Sjálf-
stæðismenn til þess að standa fast
saman í komandi átökum og
minn/i á það hverskonar örlög
Reykjavík væri búin ef svipuð
stjórn sæti að völdum í borginni
og vinstri stjórnin 1958.
ISamþykktj
Eitt af merkari frumvörpum S
ríkisstjórnarinnar, frumv. um <
kjarasamninga opinberra starfs- S
manna varð að lögum á Alþingi c
í gær. Með því er eins og kunn- >
ugt er viðurkenndur samnings-- c
réttur opinberra starfsmanna og S
launalög félld úr gildi. Bandalag c
starfsmanna ríkis og bæja hafði >
lýst stuðningi sínum við frum- c
varpið svo að það átti greiðanS
aðgang gegnum þingið. c
V í SI R
kemur ekki út laugardag-
inn fyrir páska, þar sem
þá er ekki unnið í prent-
smiðjum. Næsta blað kem-
ur út n.k. þriðjudag, 24.
þessa mánaðar.