Vísir


Vísir - 09.05.1962, Qupperneq 1

Vísir - 09.05.1962, Qupperneq 1
Einn af starfsmönnum vegagerðarinnar við aðra vigtina og bílstjórinn fylgist með af athygli. Kæra ofþunga 52. árg. — Miðvikudagur 9. maí 1962. — 103. tbl. Ástand veg* hefur farið batn- andi undanfarna daga, sam- kvæmt upplýsingum sem blaðið fékk frá Vegamálastjórninni í morgun, og er nú enginn vegur nema Laugardalsvegurinn með öllu ófær. Má að talsverðu leyti þakka hið bætta ástand þvi, að þurrt hefur verið undanfarna daga. Hætt er þó við að mjög breyt- ist til hins verra ef nú gerir rigningar. Pessi vika er sú hættu iegasta, þar sem nú er einmitt að þiðna niður úr klakanum. Vegamálastjórnin hefur ' nú tekið upp þann hátt að vigta alla vörubíla, sem fara um vegi í nágrenni Reykjavíkur, til að fylgjast með því að fylgt sé sett- um reglum um hámarksþunga á vegum. Hámarksþungi á leiðinni austur á Selfoss, er til dæmis, 4,5 tonn á öxui með einföldum hjólum, sex tonn á öxul með tvöföldum hjólum og átta tonn á tvo samliggjandi öxla með tvö- földum hjólum, Til að vigta bílana eru potað- ar léttar vigtir, sem auðvelt er að flytja með sér. Er notuð ein vigt fyrir hvert hjól og afturhjól vigtuð í einu lagi og framhjól í öðru. Reynist þyngd of mikil verða menn annað hvort að létta bílinn á staðnum eða í nágrenn- inu. Ef t.d. bíll reynist of þung- ur á leið út úr bænum, þegar komið er að Álafossi, er honum snúið við. Allir þeir sem reyn- ast með of mikinn þunga eru kærðir. Undanþágu frá reglum þessum hefur verið veitt fyrir tankbíla sem flytjá mjólk til Reykjavikur. Ástæðan er sú, að mjólkin skemmist ef hún gutlar fram og aftur í tankinum á leiðinni. Ekki Vi/ja kaupa miklu meira síldarmagn Síldarverksmiðja Heide í Krist jánssundi, sem byrjuð er síldar- flutninga frá íslandi hefur nú til kynnt að hún sé reiðubúin að kaupa miklu meira magn af síld en þau 5000 tonn sem hún hef- ur þegar fest kaup á. En hún setur það að skilyrði að henni sé tryggt það magn sem hún kaupir. Fulltrúar verksmiðjunar sem hér dveljast hafa ekki tilgreint hvað mikið magn þeir vilja kaupa, en svo virðist sem engin takmörk séu á því, aðeins ef þeir hafa tryggingu fyrir að fá það. Bæði fyrstu síldartökuskipin eru nú lögð úr höfn áleiðis til Noregs og flytja samtals um 9000 tunnur af síld. Síðan er að komast enn meiri skriður á flutningana, þannig að útlit er fyrir að flutningaskip komi á hverjum degi. Tvö skip eru þeg ar lögð af stað frá Noregi og það þriðja að leggja af stað. Munu þau koma til Akraness á laugardag, sunnudag og mánu dag. Það er Haraldur Böðvars- son og Co á Akranesi sem er seljandi allrar síldarinnar. Þá verður unnið að því til þess að tryggja að síld verði alltaf fyrir hendi til að setja í skipin að koma upp nokkrum lager á Akranesi. — Sagði Gunnar Petersen sem annast hefur sölur þessar, að allt hefði gengið vel fram til þessa. Ekki er þó vitað um fitumagn síldar- innar fyrr en hún verður mæld í Noregi. Járnsmiðaverk- fallið isama farinu Engin hreyfing er sem stendur til þess að leysa jámsmíðaverk- fallið. Afleiðinga þess fer nú að gæta víðar en hjá vélsmiðjunum, m. a. í stórbyggingum, þar sem járn- smiðavinnu er ólokið. Þessi stöðvun kemur sér að sjálf sögðu mjög illa, einkanlega standi hún lengi. Enn gefur Braathen Nýlega hefur norski stórút- gerðarmaðurinn Ludvig G. Braa- then sent Skógrækt ríkisins 10 þúsund norskar krónur til skóg- ræktar. En eins og kunnugt er hefur hann um mörg ár stutt íslenzka skógrækt með stórgjöf- um. Stórspjöll í Trípolíbíói Vísir frétti í morgun, að vinna járasmiða í Bændahöllinni, hefði stöðvazt, að minnsta kosti að mestu, en öll slík vinna var á all- góðum vegi, þegar verkfallið hófst s.l. föstudag. Vinna sú, sem hér um ræðir er m. a., að ganga frá stigagrindum, og er því verki að vísu langt komið. Ennfremur hafa járnsmiðir unnið að því að koma upp sérstökum palli í veitingasal og að festingum á gluggum o. s. frv. í nótt voru stórspjöll unnin í gamla Trípólibíóinu, er nema munu samtals þúsundum, ef ekki tugþús- undum króna. Undanfarið hefur verið unnið að því að rífa klæðninguna innan úr húsinu og var í því skyni komið fyrir tveiinur færanlegum vinnu- pöllum innanhúss. í nótt voru þeir báðir felldir niður og brotnir illa og stórskemmdir. Þá höfðu spellvirkjarnir farið inn í hliðarherbergi og mölbrotið tvær klósettskálar og þrjá skol- kassa. Lolcs réðust þeir á stólsetur og stólbök í bekkjaröðunum, flettu af þeim áklæðinu, en stálu svamp- inum, bæði úr setunum og bakinu. Trípólibíó á nú að flytja burt þaðan sem það er og mun fyrir- tæki eitt hér í bænum hafa keypt það með öllum innanstokksmun- um til brottflutnings og ætlar sér að koma húsfnu annars staðar nið- ur og nota fyrir birgðaskemmur. Rannsóknarlögreglan hefur beðið Vísi að koma þeim skilaboðum á framfæri til þeirra, sem hafa orðið varir við mannaferðir þarna í nótt, eða einhverjar upplýsingar geta gefið að láta sig vita hið allra fyrsta. Tveir bílar frá Þórði Þórðarsyni á Akranesi stoppaðir við Álafoss. Fremst á myndinni sést Guðmundur Hermannsson, varðstjóri. eru sérleyfisbílar heldur vigtað- ir. — Fyrst eftir að farið var að vigta reyndust flestir bílar veru- lega of þungir. Hefur þetta breytzt mjög síðan og hlýða flest fyrirtæki og einstaklingar reglunum nú fúslega. Fyrst eftir að byrjað var á þessu voru menn oft mjög reið- ir yfir þessu. Segja starfsmenn vegagerðarinnar að nú gangi þetta allt með friðsemd, en á því hafi verið nokkur misbrest- ur fyrst. Einn bílstjóri stóð til iæmis í karpi við lögregluna og bílaeftirliðið í sex klukkutíma, áður en hann féllst á að létta bíl inn. Mikið er nú unnið hjá vega- gerðinni við að lagfæra vegi og standa vonir til að óþægindi af vegaskemmdum fari minnkandi, ef veður verður ekki því óhag- stæðara.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.