Vísir - 09.05.1962, Blaðsíða 10

Vísir - 09.05.1962, Blaðsíða 10
10 VISIR Miðvikudagur 9. maí 1962. Framh. al bls. d. Kynbætur, — Og svo við snúum okkur að kornræktartilraununum, ger- ir þú þér vonir um að þær geti styrkt grundvöll kornræktarinn- ar hér á landi? — Já, tilraunastarfsemin hef- ur verið og verður aíltaf grund- völlur allrar ræktunar. Það er staðreynd að Bretar, sem hafa þó leng: stundað akuryrkju hafa getað tvöfaldað uppsker- una á tíu árum með ræktunar- tilraunum aðallega með kyn- bótum, við ættum ekki síður að geta það með víxlun og stofnræktun afbrigða, sem heppileg eru fyrir íslenzka veðr- áttu. Það má bæta eiginleika kornsins á margan hátt. Tökum til dæmis byggið. Hér hefur lengi verið ræktað norska afbrigðið Flöja, sem er snemm- þroska og uppskerumikið og heldur tiltölulega vel á korninu í veðrum. Aðalgalli þess er, hvað stráið er veikt og hætt við, að það leggist og brotni, sér- staklega í óveðrum. Nú er annað sænskt bygg- afbrigði ræktað hér, sem kallast Edda. Það er eins og Flöja snemmþroska og getur verið uppskeru mikið. Andstætt Flöja hefur það sterkt strá. En aðal- ókostur þess er, hve mikið fýkur úr korninu í óveðrum. Á s.l. hausti eyðilagðist mik- ið af bygginu á Rangárvöllum og víða í stormum, sem þá skullu á. Þá fauk mikið af korn- inu úr Eddu-afbrigðinu en Flöj- an lagðist og skemmdist þannig. Hér er opin leið að víxla þessum byggafbrigðum saman og reyna að fá út úr því nýjan stofn, sem hefur sömu eigin- leika og Flöja og Edda hvað þroskatíma og uppskerumagni viðvikur, en hefði einnig þann eiginleika Flöja að halda vel korninu og hið sterka strá frá Edda. Mikilvæg hjálp frá Kanada. Hér á landi er ekki hægt að framkvæma slíka víxlun vegna skorts á aðstöðu, en hinn ágæti Vestur-lslendingur dr Sigurður B. Helgason, prófessor við Manitoba-háskólann, sem er sérfræðingur í bygg-kynbótum, hefur vfxlað þessum tveimur afbrigðum fyrir mig og þegar ræktað fyrstu kynslóðina vestur í Kanada. Næsta sumar verður svo önnur kynslóðin ræktuð hér og þá reynt að velja nýjan stofn úr einstaklingum, sem hafa strástyrkleika Edda og við- nám Flöja gegn kornhruni. Þetta er aðeins eitt dæmi, en allir geta séð hvaða þýðingu það hefði, ef þetta heppnaðist. Alveg samskonar vandamál er í hafraræktinni. Þar er eitt af- brigði, sem hefur þann galla, að kornið hrynur úr því og annað afbrigði, sem hefur of veikt strá. Hefur kanadískur sérfræð- ingur í Ottawa tekið að sér fyrir mig að víxla þessum tveimur afbrigðum, en afkvæmunum verður sáð hér í vor. Höfum við þegar töluvert magn af víxluð- um fræjum til að velja úr, mörg þeirra hafa komið frá vestur- íslenzka vísindamanninum dr. Þorvaldi Johnsson. Ég er alveg sannfærður um það, segir dr. Björn, að með slíkum kynbótum er hægt að gera uppskeruna árvissa 30 tunnur á hektara, en til þess þurfum við að leggja í kostnað og fyrirhöfn við ræktunartil- raunir. Viðtækar tilraunir. — Hvaða kornræktartilraunir eruð þio nú að framkvæma? — Ég hóf í fyrra all víðtækar ræktunartilraunir á korni á veg- um Atvinnudeildarinnar, í Gunnarsholti og á Korpúlfsstöð- um og ennfremur var gerð til- raun á Skógasandi í samráði við ráðunauta Sunnanlands. S.l. haust tók ég svo við öllurp kornræktartilraunum á vegum Atvinnudeildarinnar og hef auk- ið tilraunirnar allmjög. Vantar þó mikið á að nægilega góð að- staða eða fjármagn sé fyrir hendi. Fékk ég 100 þús. kr. aukafjárveitingu til þessa í vor, en sú upphæð nær skammt og verðum við því i stórvandræð- um næsta haust, þegar þarf að rannsaka niðurstöðurnar, ef ekki rætist úr. Nú í vor sáum við korni í um 1500 tilraunareiti að Gunnars- holti og auk þess allmikið að Korpúlfsstöðum. Ennfremur er sáð í tilraunareiti í samráði við ráðunauta viðkomandi héraða á Skógasandi, hjá Vík í Mýrdal, í Hornafirði, Héraði, Suður-Þing- eyjarsýslu og Austur-Húna- vatnssýslu. I þessum tilraunareitum próf- um við 8 —10 mismunandi korn- afbrigði með mismunandi á- burðaskömmtum, nema í Gunn- arsholti, þar eru afbrigðin af byggi, höfrum og hveiti um 90 talsins, þ. e. 40 af byggi, 30 af höfrum og 20 afbrigði af hveiti. Auk þess eru margar á- burðartilraunir að Gunnarsholti, svo og á Skógasandi og á Hér- aði. Tilraunaræktunin er þannig feikilega margbrotin og um- fangsmikil og verður mikið verk að vinna úr henni. Það létt- ir vonandí starfið að Atvinnu- deildin er búin að fá leigðar skýrsluvélar af IBM-kerfi er ætti að auðvelda úrvinnsluna. Eru þessar skýrsluvélar þegar notaðar við úrvinnslu gagna úr sauðfjártilraunum Stefáns Að- alsteinssonar og hafa gefizt mjög vel. Ég vil bæta því við að við svo þröngan fjárhagsstakk sem til- raunastarfinu er skorinn væri nær óhugsandi að undirbúa og framkvæma svo umfangsmiklar tilraunir ef ég nyti ekki hjálpar svo ágætra samstarfsmanna, sem þeirra búfræðikandidatanna Gunnars Ólafssonar og Ólafs Ásgeirssonar. Tvíraða bygg og franskt hveiti. Þegar fréttamaðurinn er að kveðja Björn, tekur hann allt í einu upp visk af byggi með gul- um og gildum kornöxum. Sjáðu þetta er tvíraða bygg, sem var ræktað í fyrrasumar austur á Rangársöndum'/ ‘ vþ,efta‘ bygg' er eins og þáð bezt getur orðið, hvort sem er til fóðiirs eðá f ölgerð. Svona tvíraða bygg eiga þeir erfitt með að rækta í Vestur-Kanada, en þetta er talið bezta byggið hér á landi Menn vita ekki fyrir víst af hverju ræktun þess er auðveldari hér, kannski þroskast það betur við lengri dagsbirtu, en þarf ekki eins mikinn hita og í Kanada. Og ég er að gera svolitla tilraun núna austur á söndum, það verður gaman að sjá hvernig hún tekst, ég sáði þar finnsku vorhveiti í þriðjung hektara. Ég er að vona að hún takist vel, en það yrði þá saga til næsta bæj- BJARNI GUÐMUNDSSON HÖFN I HORNAFIRÐI F. 2. maí 1886-D. 1. maí 1962 Falla nú sé ég foldarblómin frjómorgun lífsins, dauð og kalin. Svanirnir þagga sæta róminn. Svipskuggar klæða skreytta salinn. Sólgeislar frjósa’ að nöktum nálum nárósa forða — á sumarmálum. ★ Fallinn er vinur forn í valinn, forn og nýr sem til gæfu alinn. Víxlspor hann aldrei átti nein. Ættararf gulli glæstri hann átti og gæta þess arfs hann jafnan mátti. Þar öðlings Iundin var ávallt hrein. Að sáttmálsborði við saman stóðum. Samhyggðar vígi af fimleik hlóðUm, en alúðarlund signuð árdagsblæ. .Þar hindraði ekkert strit né starfið, er stóð frá dögun að sólarhvarfi, og verkföll ei þekktust þar á bæ. Hvar sem að bagga bæri að landi blikaði dröfn, eða hrönn að sandi risi, og öldnum ei sýndist sæför greið, ungmennin hófu sín tröf að húnum, og hafgolan þandi þau siglurúnum, af gæfunnar ströndum var gamanleið. Þú hafðir, Bjarni, glæst þína sögu þjóðrækni sannri, svo hún varð fögur, 1 og öðrum skýr bending um afl gegn þraut. Þú helgaðir starf þitt orlcu og anda, og ávallt hlauzt sigur í lífsins vanda, er endaði’ á Ijómandi Iistabraut. Svo kveð ég þig vinur þakkarorðum, þökk fyrir allt, sem var dýrmætt forðum. Lifðu nú heill við hinn helga brag. Skreyttu svo heilaga niminsali hátignarverkum í þúsundatali! Þar Drottinn gefur þér góðan dag! Sigurður Arngrfmsson. NliSdir flugflutningar Hér sést skurðþreskivél á akri á Rangársöndum Mikil umierð hefur verið á flug- leiðum hér innanlands að undan- förnu, en einkum þó um páskana, að því er Sveinn Sæmundsson full- trúi hjá Flugfélagi islands tjáði Vísi í morgun. Um páskana voru um 800 flug- farþegar fluttir til Akureyrar og Isafjarðar, langmest skfðafólk, sem fór eingöngu þeirra erinda að komast á skíði og njóta sólar og útivistar — fólk sem yfirleitt hefði ekki ferðast ef það hefði ekki verið í þessum erindum. Annars sagði Sveinn að umferð á innanlandsflugleiðum væri yfir- leitt jöfn og mikil og flugvellir allir oþnir en Egilsstaðaflugvöllur, hefur undanfarit ekki þolað þyngri vélar en Douglasvélar. Vis- count- eða Skymastervélarnar hafa ekki getað lent þar um nokkurt skeið vegna bleytu þar til í gær. í gær íóru milli 70 og 80 manns til útlanda með vélum Flug- félags íslands og eru það næsta miklir farþegaflutningar milli landa um þetta leyti árs.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.