Vísir - 09.05.1962, Side 15

Vísir - 09.05.1962, Side 15
by Únited Featurt Syndlcate, Inc. WHEN ALL WATEK. HAI7 7KAINE7 AWAV THE TOF’IANS OPENEP ANOTHEK. POOK.- AN7 THUS ENTEKEI7 THEIK, TEWF'LE l CECIL SAINT-LAURENT (CAROLINE CHERIE) Miðvikudagur 9. maí 1962. VISIR í hvaða hættu þú leggur þig með því að halda hér kyrru fyrir? Henri yppti öxlum. — Vitanlega geri ég mér grein fyrir því og ég ætla líka að fara frá París undir eins og ég get því við komið. Ég geri mér vonir um að komast til föð- ur míns. Georges var farinn að ganga um gólf fram og aftur. — Ég vildi óska, að ég gæti hjálpað þér. Því miður getið þið víst ekki gert ykkur grein fyrir stefnu og stöðu flokks míns nú. Karólína hefur aldrei viljað tala við mig um slíkt. Og ég hef ekki getað vakrð áhuga hennar fyrir þeirri stjórnmálastefnu, sem ég fylgi. Kannske vitið þið ekki, að litið er á mig sem girondista. Allt er nú snöggum breytingum háð og staða mín getur eftir nokkra daga orðið enn hættu- legri en þín, en það er þó ekki enn fyrir það girt, að ég geti útvegað þér nauðsynleg skjöl til þess að komast undan. Hann sneri sér að Karólínu. — Karólína, þú verður þegar í kvöld að láta mig vita á hverju bróðir þinn þarf að halda. Ég verð bróðir þinn þarf að halda. Ég verð nú að hraða mér á þing- fund. Komi ég ekki vekur það grunsemdir um, að ég hafi orðið skelkaður — og þá er ég glat- aður. Um leið og hann fór mælti hann lágri röddu. — Það er skelfilegt — það eru eftir 50 aftökur, sem ljúka á af fyrir birtingu. Þegar hann var farinn flýttu systkinin sér að hleypa Gaston út úr skotinu. Karólína var hin ánægðasta yfir hversu farið hafði og drjúg yfir frammistöðu sinni, og nú þurfti hún framveg- is engu að leyna, þótt hún færi til fundar við bróður sinn. En Henri batt skjótan endi á þessa gleði hennar. — Georges hefur rétt fyrir sér, sagði hann. Það væri hreinn bjánaskapur af mér að halda lengur kyrru fyrir hér í París, þar sem sú hætta vofir yfir mér að ég láti lífið á höggstokknum. Engum mundi gagn að dauða mínum, en kæmist ég til út- landa gæti ég kannske orðið að liði. Ég komst að niðurstöðu um þetta fyrir löngu, en það eru þessi fjárans skjöl, sem óhjá- kvæmilegt er að ná í. Geti Ge- orges útvegað mér þau verð ég hér ekki degi lengur. Karólína reiddist og kvað hann vilja skilja sig eftir í lífs- hættu í París og sjálfur hugsaði hann um það eitt að fara í stríð. En Gaston greip fram í fyrir | henni: — Henri verður að fara, sagði .■.V.V/.V.V.V.V.'.V.V.-.V.V. hann, hann er til neyddur. Eini möguleikinn fyrir hann til þess að komast hjá að lenda á högg- stokknum er að ganga í her lýð- veldissinna undir fölsku nafni. Geri hann það ekki verður hann að komast burt hið fyrsta. — Það eru þokkaleg ráð, sem frá yður koma, sagði Karólína, — það er nákvæmlega eins á- statt fyrir yður og bróður mín- um, en samt ætlið þér að vera hinn rólegasti í París. Aðra er- uð þér reiðubúinn til að senda úr landi eða undir klær lýðveid- issinna, en aðhafizt ekkert varð- andi sjálfan yður. — Þér ályktið skakkt, sagði Gaston rólega. Ég fer líka. Inn- an tveggja mánaða verð ég á vígstöðvunum — í her lýðveld- issinna, en ég hætti ekki á nánd- ar nærri eins mikið og Henri, því að ég hef ekki gerzt and- stæðingur byltingarinnar — ég var í flokki fyrstu aðalsmanna, sem gekk í þjóðvarnarliðið og enginn í mínu hverfi efast um borgaralegan hugsunarhátt minn. Þrátt fyrir það ætla ég að ganga í herinn til þess að getá verið alveg öruggur. I Hann þagnaði sem snöggvast og hélt svo áfram: — Og ég geri þetta ekki af tómum klókindum. Afleiðing byltingarinnar varð sú, að út í öfgar var farið, en hvað sem segja má um það, sem gerzt hef- ur, þá hefur byltingin vakið mikla hernaðarlega hrifni. Her- menn vorir trúa því statt og stöðugt, að þeir geti sigrað heim inn, og ég er líka trúaður á það. Kæri Henri, ég hef ekki viljað ræða þetta við þig, því að ég veit að þessi afstaða mín vekur fyrirlítniAí&ú’ í huga þínum á mér, ep. ég.er ekki í flokki þeirra aðalsmanna, sem halda dauða- haldi í fyrri'istöðu, hefð og titla, heldur þeirra, sem vilja til heið- urs vinna eins og þeir sem lögðu grunninn að velgengni og frægð ættar minnar. Ég segi þetta ekki ©PIB QíSt' -*?<2 . . . og þar við bætist söluskattur . . . til þess að þér snúist hugur, heldur til þess að ... — Þessi áform munu ekki heppnast þér, svaraði Henri sót- rauður af reiði. Rausaðu bara áfram og gaktu í félagsskap með þessum þorpurum, en ég lít á það sem persónulega móðg- un, ef þú álítur mig mann, sem gæti farið þannig að. Gaston svaraði engu og Henri var einnig þögull. — Fyrirgefðu mér það, sem ég lét út úr mér fara, sagði Gaston loks. Ég hef engan rétt til þess að fella neinn dóm yfir þér. Við gerumst báðir hermenn, hvor í sínum flokki, en ég bið þess, að við mætumst ekki á vígvelli. — Ef svo yrði, þarftu ekki að óttast af minni hálfu. — Fyrirgefðu mér, en ég get ekki sagt hið sama. Karólína hlustaði á þá sem væri hún lömuð. Henri fannst allt tal þeirra nánast brjálæðis- legt. — Þið ætlið þá að fara, báðir tveir. Og hvað verður um mig, þegar ég er ein eftir? — Henri gekk til hennar og tók í hönd hennar. • ■ ■■_■_■_■ ■■■■■ ■■■■■■.■ ■«■3 THE MEN NOW 5WAV\ INTO A SWALL, KbCTANGULAK 5?ACE- AIK LOCK.1. ONCE INSIPE, THE WATER. WAS ALLOWEI7 TO KBCS^E— Ókunnu mennirnir syntu með | Tarzan inn í einkennilegan fer- .W.VAV.V.V.V.V.V.VuVAVaV.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V.V. Barnasagan KALLI og hafsían i hyrndan klefa. Þeir lokuðu dyrum i Síðan gátu þeir gengið inn í I og brátt var vatninu dælt út. hofið. >•*»!•? Ol'N- ** * *•* Prófessor Sifter átti í engum erf- iðleikum með að halda Tomma og Manga í skefjum, þegar hann mið- aði á þá þessu furðulega vopni. Hann þurfti ekki einu sinni að skjóta með því. Það hafði nú held- ur ekki verið ætlun prófessorsins. Hann var mótfallinn því að nota ofbeldi, sagði hann, og hann gerði það aðeins, ef hann þyrfti að verja hagsmuni vísindanna. Hafsían þaut með eldingarhraða niður í átt til botnsins. Til allrar hamingju fyrir Kalla og Stebba, sem voru í haf- síunni, var hagsmunum þeirra og vísir.danna nú jafnt komið, þvl að Sifter vildi heldur ekki láta haf- síuna sína brotna. Hann náði fljót- lega stjórn á henni á ný, og það varð til þess að bjarga lífi hinna tveggja, sem voru um borð í henni. „Hefur nokkuð gerzt. Eruð þið ennþá á lífi, herrar mínir?“ sagði Sifter í senditækið. Lengi heyrðist ekkert. Loksins kom þó svarið: „Ja, hvllíkt og annað eins. Það munaði mjóu.“ — Elsku systir mín, ef þig skortir ekki áræði til þess að fara með mér á leið minni um Frakkland, skal ég lofa þér að koma með mér. —Ég get ekki farið, ég hef skyldum að gegna — gagnvart Louise og einnig de Tourville — og manninum mínum vitanlega. Ég get ekki yfirgefið hús mitt og heimili, húsgögnin mín ... Gaston greip fram í: — Georges mundi ekki geta útvegað yður nauðsynleg skjöl Afleiðingin yrði, reyndi hann það, að þér kæmuð upp um bróður yðar. Látið hann fara. Þið munduð hittast síðar. Og hvað mig snertir — styrjöldin stendur ekki að eilífu — ég fæ líka leyfi — og þá kem ég og heimsæki yður. Hún gat ekki stillt sig og varpaði sér í faðm hans: — En skiljið þér ekki, að þér fallið kannske! Henri skipti litum og beit á vör sér. — Það er fyrirlitlegt af þér að tala .þannig, sagði hann. Fað- ir okkar berst með þeim, sem verja konungdæmið, og ég hef aldrei heyrt þig láta í ljós nein- ar áhyggjur um hann. Nú er eins og hulu hafi verið svipt frá aug- um mér. Það er vissulega tími til kominn, að við förum hvort sína leið, og tökum þeim örlög- um, sem bíða okkur. Karólína var þungt hugsi og vonsvikin, er hún kom heim. Á leiðinni heim varð hún nú í- fyrsta sinn vör þeirrar æsingar, sem gripið hafði um sig meðal allra. Þar sem maður hennar var ekki kominn heim snæddi hún með Louise og de Tourville og fékk þær til að ræða stjórn málahorfurnar. Hún gerði sér vonir um, að þær kynnu að segja eitthvað, sem henni væri hughreysting í, en hún reyndi ekki að komast að niðurstöðu um hverjir berðust fyrir rétt- um málstað eða hverjir myndu sigra. Allt snerist um að geta fundið einhverjar stoðir til þess að treysta vonir sínar um á- hyggjulausa framtíð, þegar aft- ur yrði haldnar veizlur og efnt til skemmtana. En þær voru áhyggjufullar, ^ bölsýnar, snöktandi. Þær furð- 1 uðu sig á hinum skyndilega á- huga hennar, fóru ekki dult með tilfinningar sínar og voru kvart- andi og ásakandi. Karólína fór snemma í háttinn, en gat ekki sofnað. Hún lá andvaka þar til Georges kom inn til hennar kl. þrjú um nóttina.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.