Vísir - 09.05.1962, Síða 16

Vísir - 09.05.1962, Síða 16
VISIR FELLD Málamiðlunartillaga sáttarsemj- ara, sem lögð var fram í togara- deilunni fyrir nokkru, var felld á fundi beggja deiluaðila í gær, með yfirgnæfandi meirihluta. Skotið á kröfu- göngu í Lissubon Fréttir undangengna daga sýna vaxandi andúð á einræðisstjóm í Portúgal. öryggislið var sent til Lissabon og Oporto í gær, eftir að dreift hafði verið flugmiðum með áskorun til manna um að safnast saman til þess að bera fram mót- mæli gegn stefnu ríkisstjórnarinn- ar. Öryggislið og lögregla beittu skotvopnum I Lissabon og voru 9 menn fluttir í sjúkrahús vegna skotsára og ein kona beið bana. 1. maf, á degi verkalýðsins, var einnig látin í ljós andúð gegn stjóminni, og mannfjölda dreift með táragasi. Einræðisstjórnin skellir allri skuld á kommúnista. Fíugferðum fjölgað Flugfélag fslands er nú að gefa út áætlun fyrir sumarstarf- semi sína, en þar verður ferð- um 1 innanlandsflugi fjölgað stórlega frá þvf sem það hefur verið mest áður. AIIs er gert ráð fyrir 120 flug- tökum á viku í innanlandsflug- inu. Ekki er þó búizt við að flog- ið verði til fleiri staða en áður, heldur verði ferðum fjölgað til ýmissa staða, þar sem líklegt má telja að aðsókn verði mikil. Þannig verður ferðum til Egils- staða t.d. fjölgað úr 6 f 7 ferðir á viku, eða með öðrum .orðum teknar upp daglegar ferðir þang- að. Til Hornafjarðar verður í sum- ar flogið 4 sinnum í viku í stað þriggja ferða áður og til Húsa- vfkur verður flogið þrisvar í viku, var tvisvar áður. Vertíðin bezt / Grmdavík og Þorlákshöfn Þessi þrjú fallegu systkyni eruj ekki nema rúmlega viku gömulj og gera ekki betur en að standa < út úr hnefa, en eðlið er fijótt að' segja tii sín, því einn kettling-, urinn sennilega Iæða er að i mynda sig til að bíta. ^wwvwwwwwww Nú á föstudaginn er lokadagur- inn og þó hætt sé að miða vertíð- arlok beinlínis við hann, þá mun það nú verða vfðast svo að neta- bátar verða búnir að taka netin upp nú f vikulokin. Það kemur þá f Ijós, að vertiðin nú í vetur hefur verið víðast hvar með lakasta móti. Stafar þetta í fyrstu af hinum tíðu ógæftum sem urðu fyrri hluta vertiðarinnar, en síðan hefur neta- veiðin verið heldur dræm. í ver- stöðvunum Uér við Faxaflóa Kefla- vík, Reykjavík og Akranesi er ver- tíðin þess vegna með lakara móti. Sama er að segja við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Vertíðin hefur nú orðið einna bezt f tveim verstöðvum Grindavík og Þorlákshöfn. Það er vafalaust að aflamagnið á bát er hlutfalls- 0%. lega bezt í Grindavík á öllu landinu. Þar berjast tveir bátar Áskell frá Grenivík og Þorbjörn frá Grindavfk um efsta sætið hvor með um 900 tonn. í Þorlákshöfn er aflahæstur Frið rik Sigurðsson með 840 tonn, Þor- Iákur II með 773 tonn og Kristján Hálfdáns með 690 tonn. Þar eru bátarnir nú að taka upp netin og hætta og búa sig nú undir að hefja humarveiðar um miðjan mánuðinn. teinn Hreinasta mildi að tókst að bjarga Orra frá Patreksfirði bráðdeki í gær tókst að bjarga 75 tonna fiskibáti, Orra frá Patreksfirði, sem óstöðvandi leki hafði komið að á miðunum út af Breiðafirði. Fiskibóturinn Orri frá Patreksfirði sem var nærri sokkinn, Ljósm. Snorri Snorrason Við björgunina voru að verki fyrst fiskiskipið Pétur Thor- steinsson og. síðar kom varð- skipið Óðinn og dró Orra til hafnar á Patreksfirði. Skipstjórinn á Orra, Ásmundur Sigurjónsson sagði fréttaritara Vísis á Patreksfirði, að ef ekki hefði viljað svo heppilega til, að Pétur Thorsteinsson var á næstu grösum, þá hefði verið vonlítið að bjarga skipinu, því að dælur þess höfðu ekki við. Meðan Pétur Thor- steinsson var að draga skipið til lands var enn alls óvíst að takast mætti að bjarga því. Það var ekki fyrr en Óðinn kom með kraftmikla dælu og dældi upp úr skipirfu, sem björgun varð viss. Skipstjórinn skýiir svo frá að þeir hafi farið á sjó i fyrradag og lagt línuna 25—30 sjómílur SV af Bjargtöngum. Þá gerðist það segir skipstjórinn um hádegi á þriðjudaginn, er ég ætlaði að kalla út eins og venja er, að þá var allt rafmagnslaust. Var þá farið að athuga í vélar- j rúm og kom í ljós að þar var kom- | inn allmikill sjór og rafmagnstafl- an rennandi blaut, gírinn farinn að ausa yfir sig sjó. Þar sem rafmagnið var farið var talstöðvarsamband slitið, en skip- stjórinn gat þó kallað út með að- stoð rafgeyma, en gat ekki heyrt neitt að sér. Pétur Thorsteinsson frá Bíldudal var þarna skammt frá og mun strax hafa heyrt kallið um að mikill leki væri kominn að Orra og dælur hefðu ekki undan. Skipverjarnir á Orra sáu Pétur Thorsteinsson í nokkurri fjarlægð og tóku þá áhættu að keyra með vélina hálfa í-sjó í áttina þangað. Þegar skipin mættust drápu þeir F>amhald á hls 5 Sfrandorkirkju berast gjafir Vinsældir Strandarkirkju koma víða fram. Ekkert lát er á áheitum á þessa frægu kirkju, en auk þeirra berast henni stundum gjafir frá velunnurum sínum, sem ekki vilja alltaf láta nafns síns getið. Biskups skrifstofan skýrði blaðinu svo frá í morgun að Strandakirkju hefðu borizt tvær myndarlegar gjafir ný- lega. önnur gjöfin eru tveir kerta- stjakar á altari, mjög fagrir, en hin gjöfin er 5 eintök af Passíu sálmunum. * AV.t'.Vi il AJZitíf-* •* *r

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.