Vísir


Vísir - 18.05.1962, Qupperneq 4

Vísir - 18.05.1962, Qupperneq 4
4 VISIR Föstudagur 18. maí l-9[62. Rabbað við Guðjón S. Sig■ urBsson, formann Iðju Einn af yngri og þekktusíu verklýðsleið- togum Reykjavíkur, Guðjón Sverrir Sigurðs- son, form. Iðju, sklpar sjötta sætið á framboðs lista Sjálfstæðlsmanna við borgarstjórnarkosn- ingarnar. Guðjón hefur verið varaborgarfulltrúi s. 1. kjörtímabil og starf- að í ýmsum nefndum borgarstjórnar en tekur nú sæti sem aðalfulltrúi. Guðjón er þrjátíu og sex ára að aldri og eru foreldr- ar hans Birna Hafliðadóttir og Sigurður Pétursson, sjó- maður. Hann lauk stúdents- prófi 1946 og stundaði nám í eðlis- og efnafræði í Dublin frá 1947—1951. Hjá At- vinnudeild Háskólans starf- aði hann frá 1952—1955, en hefur síðan unnið í Málninga verksmiðjunni Hörpu. Eftir að Guðjón hóf störf í verksmiðjuiðnaðinum hefur hann unnið mikið að mál- efnum iðnverkafóiks og und- ir forystu hans unnu lýðræð issinnar Iðju úr höndum kommúnista árið 1957. Ár- lega síðan hefur hann verið kjörinn formaður félagsins við vaxandi fylgi. Auk þess að vera formað- ur Iðju, er Guðjón einnig formaður Byggingarsam- vinnufélags iðnverkafólks og varaformaður Fulltrúaráðs verkaiýðsféiaganna í Reykja vík. Vísir hitti Guðjón að máli í fyrradag og fékk hann til að spjalla nokkur áhugamál sín. T EIÐIN liggur í Málningaverk- smiðjuna Hörpu við Skúla- götu. Til þess að hitta Guðjón að máli þarf að fara gegnum stóran verksmiðjusal, þar sem framleiðslan er í fullum gangi og konur og karlar og að þvl er virðist mikið af ungum og falleg um stúlkum vinna að því í óða önn að framleiða Hörpumáln- ingu í öllum regnbogans litum. í enda salarins I sérstöku her bergi hefur Guðjón bækistöð sína, en okkur skildist fljótt, að þar héldi hann sjaldan kyrru fyrir til lengdar. Við höfðum heitið því að tefja hann sem minnst við vinnuna og urðum því að taka því með jafnaðar- geði að þurfa að byrja samtalið einum þrisvar sinnum, því allt- af varð Guðjón að bregða við og sinna störfum Sínum. Fyrst kom stúlkuandlit í gætt ina og spurði: „Viltu koma og líta á vélina hjá okkur, það er eitthvað að henni“. Næst var Guðjón sóttur í skyndi og kom hann strax aftur með ungan mann, sem hafði brennzt á hönd ' um og hálsi, en sem betur fer ekki alvarlega. Guðjón skrúfaði frá kalda krananum og maður- inn setti hendurnar undir bun- una og hálsinn var kældur með blautum klútum. Eftir nokkra stund voru brunasmyrsl borin á sárin og síðan þótti vissara að maðurinn færi upp á slysavarð- stofu. Þá kom maður einn og vildi fá Guðjón til að athuga þykktina á málningu, en að því loknu gafst loksins nokkurt hlé til að spjalla saman. — Og þá er það fyrsta starfið hér? — Það er fyrst og fremst fólg ið í því að fylgjast með fram- leiðslunni, athuga að staðaldri gæði vörunnar og verður þetta að sjálfsögðu að vinna í nánu samstarfi við það fólk, sem sér um framleiðsluna á hverju stigi. Verkefnin í þessu sambandi eru mörg, en auk þess kalla að margs konar önnur störf og snúningar eins og þú hefur kannske orðið var við. — Og þú hefur unnið hér lengi? — Ég byrjaði £ Hörpu árið 1955 og hef verið hér síðan og býst við að áframhald verði á því. CVO við snúum okkur að öðr- ^ um efnum. Þú hefur ekki alltaf verið í verksmiðjuiðnað- inum hér í Reykjavík? — Nei, eftir stúdentspróf stundaði ég um nokkurt skeið efnafræðinám í írlandi, en eftir að ég kom heim vann ég hjá Atvinnudeild Háskólans í nokk- ur ár eða þangað til ég fór að vinna hér hjá Hörpu. — Hvernig var það, stund- aðirðu ekki guðfræðinám um tíma? — Jú, reyndar gerði ég það. Þegar ég vann hjá Atvinnudeild inni innritaði ég mig í guðfræði og hóf nám í henni. Tók ég þar flest undirbúningspróf — jú, grlskan var eitt af þeim — og var því allvel á veg kominn með Guðjón Sigurðsson við starf sitt í Hörpu. vantaði þá á kjörskrá. Það er svo ekki að orðlengja það, að I febrúar árið eftir unnum við Iðju úr höndum kommúnista með 25 atkvæða mun og hef ég gengt formennsku I félaginu frá þeim tíma. Kom það fljótt af sjálfu sér, að starfið I verka- lýðshreyfingunni ásamt vinn- unni hér gaf ekki rúm fyrir frekari námshugleiðingar. Ég vil þó taka skýrt fram, að ekki hef ég séð eftir þvl að hafa gefið mig að þessum málum og að ánægjulegt hefur verið að vinna fyrir iðnverkafólk hér I Reykjavlk. TjÚ ert fjölskyldumaður, Guð- ^ jón? — Já, ég er kvæntur Valdlsi Danielsdóttur og eigum við þrjú börn, einn strák 15 ára og tvær stelpur 7 og 8 ára. — Nokkur sérstök áhugamál, önnur en félagsmálin. — Jú heilrpörg blessaður vertu, en ég hef bara engan tíma haft til að sinna þeim. Á námsárunum í írlandi tefldi ég nokkuð og lenti þar m.a. I skák- keppni milli írskra háskóla og Oxford. Hét keppinautur minn dr. Schenk og hafði eitt sinn verið skákmeistari Tékkóslóva- l^/WVWWWVWWWS/WVWVWWWN námið, þegar á mig hlóðust önn ur verkefni, sem mig hafði ekki órað fyrir. — Já, það sem skeði var það, að ég var farinn að vinna I Hörpu og byrjaður að kynnast málefnum iðnverkafólks. Sum- arið 1956 kynntist ég fáeinum áhugamönnum, sem blöskraði yfirgangur kommúnista I Iðju og vildu gjarnan gera eitthvað til að ráða bót á því, þótt ekki væri verkefnið árennilegt, þar sem um eitt sterkasta kommún- istahreiður á öllu landinu var að ræða. Það varð úr, að við fórum fram með lista á móti kommun- um I Alþýcusambandskosning- unum um haustið algjörlega með tvær hend :r tómar. Niður- staðan varð sú, að við fengum 202 atkvæði og kommarnir 385 og þótti okkur það ágætt, þar sem mikill fjölda iðnverkafólks kíu — og ég tapaði auðyitað. Síðan hef ég eiginlega ekkert getað teflt og aðeins einu sinni eða tvisvar tekið þátt I mótum hér og komst þá I fyrsta flokk hjá Skákfélagi Reykjavfkur. Annars hef ég grúskað við ýmsa hluti eins og útskurð og fleira, sem ekki tekur að nefna. ' ★ — Svo við snúum okkur að lokum að borgarmálum. Hvað vildir þú helzt segja okkur um þáttöku þína I þeim? — Síðastliðið kjörtímabil hef ég verið varaborgarfulltrúi og því fylgzt að staðaldri með störf um borgarstjórnarinnar. Einnig hef ég starfað nokkuð £ nefnd- um, m.a. verið I' stjórn Náms- flokkanna og varamaður 1 fræðsluráði og stjórn Innkaupa- stofnunarinnar. Þau mál, sem vinna þarf að I næstu borgar- stjórn eru ýtarlega rakin I stefnuskrá Sjálfstæðismanna og mun ég að sjálfsögðu Ieggja þeim lið eftir getu. Persónulega hef ég mikinn áhuga á þv£ ný- mæli, ef hægt væri að gera ráð- stafanir til að auðvelda iðn- verkakonum I verksmiðjum og fiskiðjuverum að vinna úti með því að stofna <til dagheimilis, sem sérstaklega væri ætlað börnum þeirra. Teldi ég ekki ó- eðlilegt, að vinnuveitendur væru aðili að máli þessu, því konur eru þeim £ mörgum grein- um mjög dýrmætur vinnukraft- ur. — Þá er ég fylgjandi því að eftir lit með hollustu og heilbrigðis- háttum á vinnustöðum verði aukið og er það eðlileg þróun I samræmi við stækkun borgar- innar. Frá þv£ að 'ég'vann hjá Atvinnudeildinni hef ég haft mikinn áhuga á rannsókna- og tilraunastarfsemi £ sarhbandivið götur og gatnagerð. Er það ánægjuefni, að þegar skuli liggja fyrir ákvarðanir um nýtt átak I þessu efni. í skólamálum hefur þróunin verið mjög ör og nýjar leiðir hafa verið farn- ar. Eitt af þv£, sem mér finnst að ætti að reyna, er að stofna til sérstakrar kennslu fyrir af- burðanemendur £ barna- og gagnfræðaskólum á svipaðan hátt og gert hefur verið með stofnun sérdeildar fyrir treg- gáfaða unglinga. IFjESSU spjalli hefði verið fróð- ^ legt að halda lengur áfram, þvl Guðjón virtist eiga margt fleira I pokahorninu. En yfir- verkstjórinn er kominn og á þessum stað hlýtur hann að eiga forgangsrétt á því að tala við starfsmennina. Kjörin stjérn Hins íslenxkn bókmenntnfélngs Kosningu I stjórn og fulltrúaráð Hins íslenzka bókmenntafélags er nýlega lokið. Kjörseðlar voru send- ir félagsmönnum I janúar I vetur, og var frestur til þess að skila þeim útrunninn að kvöldi 30. apríl. Kjörfundur hefir verið haldinn og atkvæði talin. Úrslit kosninganna urðu þessi: Forseti var kjörinn próíessor Einar Ól. Sveinsson og varaforseti pi-ófessor Steingrlmur J. Þorsteins son, báðir til tveggja ára. I full- trúaráð voru kjörnir til sex ára: dr. Kristján Eldjárn þjóðminjavörð- ur og Steingrímur J. Þorsteinsson, til fjögurra ára: Halldór Halldórs- son prófessor og til tveggja ára: dr. Broddi Jóhannesson. Fyrir voru í fulltrúaráði dr. Alexander Jó- hannesson og Einar Bjarnason rík- isendurskoðandi, gjaldkeri félags- ins. Eftir kjörfundinn var haldinn stjórnarfundur, og var Halldór Hall dórsson þar kosinn skrifari félags- ins, enda hafði Alexander Jóhannes son beiðzt undan endurkosningu. Sóðhesfnsýning og nnglnboðhinup ' "in árlega firmakeppni Hesta- mannafélagsins Fáks fer fram á skeiðvelli félagsins við Elliðaár sunnudagir.n 20. maí kl. 15. Verða um 200 hestar £ keppninni, og er það stærsta góðhestasýning, sem hér hefir verið haldin. Sú nýbreytni verður tekin upp I sambandi við dóma hestanna, að áhorfendur dæma sjálfir ásamt dómnefnc. Að keppninni lokinni verður háð svokallað nagla-boðhlaup, sem þrjár sveitir úr félaginu taka þátt I og mun áreiðanlega þetta skemmti atricl eiga eftir að kæta margan áhorfandann. Margs konar veiting- ar verða á boðstólum, og aðgang- ur er ókeypis. Happdrættismiðar félagsins verða þar og til sölu, en dregið verður I happdrættinu á 2. hvítasunnudag, þegar kappreiðarn- ar verða háðar.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.