Vísir - 14.07.1962, Síða 1
VISIR
52. árg. — Laugardagur 14. júlí 1962. — 159. tbl.
Allur flotinn fyrír austan,\
en engin síU fyrir norSan
Hálf afköst hjá
Áburðarverksmiðju
Fyrir um það bil þremur vikum
var sagt frá því í fréttum að
Áburðarverksmiðjan hefði stöðvazt
vegna véiarbilunar. Eftir algjöra
stöðvun í rúma viku, var hægt að
hefja framleiðslu verksmiðjunnar
aftur en þá aðeins með hálfum af-
köstum. Er svo enn, en þau afköst
hafa þó nægt til þess að fullnægja
allri eðlilegri eftirspurn.
Hins vegar hefur slæmt tíðarfar
Framh. á 5. síðu.
Nú er engin síldveiði fyrir Norð-
urlandi, en áframhaidandi ágæt
veiði fyrir Austurlandi og ailur flot-
inn kominn þangað. Þrær verksmiðj
unnar á Raufarhöfn eru nú orðnar
fullar og fjöldi skipa bíður þar
löndunar.
Svipað er uppi á teningnum fyrir
austan, löng löndunarbið. Stærstu
skipin bregða nú mörg á það ráð
að sigla með fullfermi af miðunum
eystra beint til Siglufjarðar Þar er
yfirnóg þróarpláss og engin lönd-
unarbið. Sökum þess hve mörg
skip bíða nú löndunar, og önnur
sigla um langan veg norður með
aflann, eru allmiklu færri skip úti
á miðunum en voru fyrst eftir að
síldin tók að veiðast eystra. Sam-
kvæmt síðustu fréttum virðist ekk-
ert lát á síldinni fyrir Austurlandi
Yfir þúsund hestar þegar
komnir á Þingvöll
Mikinn fjölda fólks úr öllum
landsfjórðungum hefur drifið að
Þingvöllum, undan farna tvo
daga, en þar halda hesta-
menn sitt fjórða landsmót um
helgina. Yfir þúsund hestar eru
komnir til Þingvalla.
Segja má að mótið hafi raun-
verulega byrjað í gaer, en þá
1 mættu sýningarhross um morg-
! uninn fyrir dómnefnd.
Margt verður til skemmtunar
i á þessu móti, hestasýningar,
kappreiðar og hópdans undir
beru Iofti á grasi gróinni
keppnisbraut.
Það sem beðið er eftir með
mestri eftirvæntingu er keppnin
^essa mynd tók B.G. Jjósmyndari Vísis í gær. Er það hestavörður-
inn Óskar Halldórsson meðfótfráanlO vetra gæðing Víking, sem
talinn er raeðal liklegri sigurvegara í 800 metra kappreiðinni.
Er mikill spenningur meðal hestamanna végna þessa °.0 þúsund
króna. hlaups.
I í 800 metra kappreiðum. Verður
nú í fyrsta skipti á landsmóti
keppt á hringbraut og er úrslit-
anna beðið með ^eysilegri eftir-
væntingu. Líklegastir til sigurs
eru taldir Víkingur frá Ártúnum
í Rangárvallasýslu og Gnýfari
frá Gufunesi í Mosfellssveit.
Þriðji hesturinn sem talinn var
líklegastur, Bleikur á Laugar-
vatni kemur ekki til keppni
vegna þess að hann er haltur.
1 þessum kappreiðum er um
20 þúsund króna verðlaun að
keppa, mestu verðlaun sem
nokkru sinni hafa verið veitt hér
á landi í kappreiðum.
Fréttamaður og ljósmyndari Vísis
skruppu í stutta ferð austur í gær
og var þá komin mikill fjöldi bæði
af mönnum og hrossum.
Að Skógarhólum þar sem mótið
fer fram hittum við fyrst fyrir
framkvæmdarstjóra mótsins, Sig
urð Haraldsson, en hann hefur dval
izt fyrir austan samfellt síðasta
hálfa mánuð til að undirbúa mótið,
notuðum við því tækifærið og lögð-
um nokkrar spurningar fyrir Sig-
urð.
— Búizt þið ekki við að mikill
fjöldi fólks leggi leið sina hingað
um helgina.
— Jú, ég held að við getum
fastlega búizt við því, annars er
það auðvitað mikið undir veðrinu
komið. Annars er sagt að við hesta-
menn séum undir sérstakri heilla-
stjörnu, hvað veður snertir,.
— Sækja ekki menn úr öllum
landsfjórðungum þetta mót.
Framh á bls. 5.
Bastilludag-
urinn í dag
í dag er Bastilludagurinn, þjóð-
hátíðardagur Frakka. I tilefni þess
mun Jean Strauss sendiherra
Frakka, taka á móti vinum Frakk-
lands í franska séndiherrabústaðn-
um, Skálholtsstíg 6, eftir kl. 5,30
í dag.
og veiðist hún allt frá Digranes-
flaki og suður í Reyðgrfjarðardýpi.
Þar virtist sízt minni veiði í gær-
kvöldi en undanfarin kvöld, þótt
nákvæmar tölur um aflamagn hefðu
eigi borizt er blaðið fór í prentun.
17 ára i síUinni
Sylvía Elíasdóttir heitir þessi fallega stúlka, sem er ættuð i
úr Ólafsvík. Hún hefur saltað síld eitt sumar áður.
ÞB
Ekki veit ég
#/
• •
„Ekki veit ég hvernig fer hér
á Siglufirði, ef ekki Kemúr
meiri síld tií söltunar“. Þannig
fórust Siglfirðingi nokkrum orð
við blaðamann Vísis, sem var
þar staddur í gær, ásamt ljós-
myndara blaðsins. „Menn höfðu
treyst á þetta að vanda, enda
hefur gengið mun betur síðan
1958. Núna í sumar hefur þetta
svo gengið verr en undanfarin 1
sumur“, bætti hann við.
Á Siglufirði eru nú 22 sflct-
arsöltunarstöðvar og hefur sú '
hæsta þeirra saltað 3600 iijim-'
ur. Aðeins utn hebningur sdíðv (
anna hefur saltað 500 tunijar1
eða meira Allar eru stöðvuri;-
ar með fiólda fólks. kvos.na ojr J
Framh. á bis. £.