Vísir - 14.07.1962, Blaðsíða 8
8
Otgefandi ölaðaútgatan VISIK
Ritstjðrar: Herstein: Pálsson Gunnai G Schram
Aðstoðarritstjðn Axei rhorsteinsson
Fréttaitjóri Þorsteinn 0 Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 45 krónui a mánuði.
I lausasöiu 3 kr. eint. — Sini. 1166X (5 linur)
Prentsrhiðja Vtsis — Edda h.f
«.—----——---------------------------------------J
Ibúðarlánin hækka
Nú koma til framkvæmda lögin um að lán Hús-
næðismálastofnunarinnar hækki um þriðjung, úr 100
þús. krónum í 150 þús. krónur. Hefir ráðherra ákveðið
að lögin skuli vera afturvirk, ná til 1. ágúst í fyrra.
Þessi lánahækkun mun reynast mörgum þeim sem í
byggingum standa mikil hjálp. Byggingarefni hefir
hækkað að undanförnu, svo að hækkun lánanna var
mikið sangirnis og réttlætismál. Stjórnarandstaðan hef
ir kvartað um það að ekkert gagn væri að þessari hækk
un vegna þess að sumir þeir, sem voru byrjaðir að
byggja fyrir ágúst í fyrra fái ekki hækkunina. Slíkar
röksemdir eiga engan rétt á sér. Lögin eru þegar aftur-
virk, og ef þau næðu langra aftur í tímann yrði .hlutur
þeirra sem nú byrja að byggja mjög skertur/Miklu
minna fé kæmi í þeirra hlut.
Það er ástæðulítið að rifja upp gamlar syndir, en
þessi skrif stjórnarandstöðunnar gefa tilefni til þess
að minnast þeirrar Ódáðahraunsgöngu, er vinstri
stjórnin gekk í þessu máli. Á valdatíma hennar lækk-
uðu húsnæðislánin úr 8.7 millj, krónum á mánuði í
3.9 milljónir og lán út á hverja íbúð lækkuðu úr 55
þúsundum í 36 þúsund. En nú hefir mjög rofnað til í
þessum efnum. í stað þess að Iækka lánin hækkar
ríkisstjómin þau um þriðjung.
En allir, sem einhvern tíma hafa reist hús eða
íbúðir munu sammála um að þrátt fyrir hækkunina
eru lán frá opinberum aðilum og bönkum til húsbygg-
inga of lág enda miklu lægri en í nágrannalöndunum.
Ástæðan er sú að við erum að byggja upp landið á
einum mannsaldri, og ekki aðeins íbúðir heldur öll
mannvirki.
En hækkun lánanna er ekki heldur einhlít. Eins og
Vísir hefir bent á er höfuðnauðsyn að byggingarkostn-
aður verið lækkaður. Þar á ríkið og stofnanir þess,
Atvinnudeildin og Iðnaðarmálastofnunin, að hafa for-
göngu. Það er bezti stuðningurinn við húsbyggjendur.
Gervihnötturinn og við
Enn hefir eitt undur tækninnar gerzt. Gervihnetti
hefir verið skotið út í geiminn og af honum geislast
sjónvarpsbylgjur um heim allan. En einu sinni hefir
mannsandinn sigrazt á ómælisvíðáttu himingeimsins.
Þessi áfangi tækninnar færir okkur ísledinga inn
í þjóðbraut sjónvarpsins. Nú er ekkert því til fyrir-
stöðu að við njótum sjónvarpssendinga frá fjarlægum
heimshornum, rétt eins og við hlustum á Helga Hjörvar
í okkar eigin ríkisútvarpi. Gervihnötturinn mun því
hafa áhrif á annað hvert íslenzkt heimili eftir örfá ár,
þótt hann svífi ómældar rastir yfir höfðum okkar. Af
völdum hans munum við fylgjast með jarðskjálftum
í Japan og brúðkaupi á Borneó á samri stundu og þeir
atburðir eiga sér stað.
Flugvélin færði okkur í þjóðbraut veraldar. Gervi-
hnötturinn geymir lykilinn að viðburðum heimsins og
innan skamms mun hann flytja okkur þá á Iitlu hvítu
tjaldi.
VÍS/R
Laugardagur 14. júlí 1962.
Jón, Kristján, Þórir og Einar eru að siá upp fyrir 2. hæðinni.
Sunnan við Suður-
landsbrautina og við
Hallarmúla og Ármúla
hefur risið nýtt hverfi
stórhýsa á síðustu 3—4
árum. Aðeins eitt þess-
ara húsa er fullgert enn,
ljósmyndaranum en blaðamann-
inum.
— Hver á þetta hús?
— Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga.
— Hvað er grunnflöturinn
mikill?
— Grunnflötur þess, sem bú
ið er að byggja er um 1500 fer-
metrar. Það á eftir að verða
miklu stærra um sig. Alls á það
að verða um 5000 fermetrar. Sá
hluti, sem eftir er að byggja er
þó ekki nema tveggja haeða.
— Hvernig kunnið þið við
ykkur svona hátt uppi?
— Mig svimar ekki enn. Ef
þeir halda reisugildi er ekki að
vita nema maður verði enn
hærra uppi.
Trésmiðjan Meiður.
Við förum nú yfir Hallarmúl-
ann og komum að reisulegu 4ra
hæða húsi. Út úr því kemur
stór og stæðilegur maður, og
við snúum okkur að honum.
— Hver er eigandi þessa
húss?
— Það er ég.
— Til lukku. Hvert er nafn-
ið?
— Emil Hjartarson.
— Hvað er gert við nllt
þetta?
— Meginhluti hússins er hús
gagnaverkstæði. í haust er ætl-
unin að opna hér einnig hús-
gagnaverzlun, sem verður á
þrem hæðum fremst í húsinu.
— Hvað er húsið stórt?
— Alls er flatarmálið um 670
fermetrai. En nú er ég tíma-
bundinn og verð að fara.
Að svo mæltu býður hann
okkur að skoða húsið og hverf-
ur. Við göngum lengi innan um
alls kyns húsgögn og rekumst
loks á mann. Hann kveðst heiía
Sigtryggur Agnarsson, kallaður
Levy.
— Hvort er nafnið skrifað
Levy eða Levi?
— Málsnillingar segja mér r.ö
hvort tveggja sé jafnrétt.
— Hvað eruð þið að fást við
núna?
— Við erum meðal annars að
smíða ný sæti sem fara f Camla
bíó. Auk þess erura við a5 gera
upp öll gömlu sætin sem vcrba
notuð áfram niðri. Þar s.5 auki
er svo okkar vcnjuloga hús-
gagnaframleiðsla.
sem er hús H. Benedikts
sonar & ,Co á Suður-
landsbraut 4.
Hverfi þetta er öllum
almenningi ókunnugt
enn sem komið er og
héldu því blaðamaður
og ljósmyndari Vísis
í rannsóknairleiðangur
þangað, til að kynna sér
hvað væri þarna um að
vera. Mörg fyrirtæki eru
þarna, ný og gömul,
þekkt og óþekkt.
Kr. Kristjánsson h.f.
Við byrjum á Suðurlands-
brautinni og komum að húsi
Kr. Kristjánssonar á nr. 2. Þar
eru tveir menn að slá mót utan
af vesturenda hússins, sem er
nýbyggður. Hinn endinn hefur
verið í notkun um nokkurra ára
skeið og er þar bílaverkstíeði
fyrirtækisins og varahlutalager,
en skrifstofur eru uppi á ann-
arri hæð. Við gefum okkur á
tal við þessa menn.
— Hvað er þetta hús stórt?
— Allt húsið er 104 metrar á
lengd. Á breidd er það tæpir
20 metrar. Sá hluti hússins sem
nú var verið að steypa upp er
um 900 fermetrar.
-— Er þá búið að steypa upp
allan grunnflöt hússins?
— Enn er eftir að byggja
bílaverkstæði bak við húsið.
Það er aðeins til bráða'oirgða
í austurendanum.
— Hvað er reiknað með að
húsið verði hátt?
— Á teikningunni eru níu
hæðir, en styrkleiki járna er
nægilegur fyrir ellefu hæðir.
Við göngum nú sem Ieið ligg
ur meðfram húsinu og getum
ekki varizt þeirri hugsun, að fá
fyrirtæki hérlend, geti boðið
fólki að horfa á hundrað metra
hlaup út um glugga sína.
Sambandið.
Næst göngum við til hægri,
upp Hallarmúlann og að húsi
einu miklu, sem er í byggingu
hægra rriegin við hann. Við
finnum á fyrstu hæð nokkra
múrara að vinnu. Þeir keppast
mjög við — senilega í uppmæl-
ingu — svo að við truflum þá
ekki. Við göngum upp marga
stiga og erum komnir á fimmtu
hæð áður en við verðum nokk-
urs lífsmaiks varir aftur.
Við höldum áfram og klöngr
umst eftir lóðréttum stiga upp
á þak á sjöttu hæð, sem verið
er að ljúka við að slá upp fyrir.
Þar er mjög fallegt útsýni í all-
ar áttir og margir menn að
vinnu. Við tökum tali trésmið,
sem reynist heita Freddy Laust
sen og er áhugaljósmyndari,
sem hefur meiri áhuga á
Arinbjöm Steindórsson að slá
utan af hjá Kr. Kristjánssyni.